Læknaneminn - 01.10.1991, Side 51

Læknaneminn - 01.10.1991, Side 51
Tveir breskir lífeðlisfræðingar við Cambridge háskóla, Alan Hodgkin og Andrew Huxley, fengu þá hugmynd að nota stóran taugasíma (axon) úr risasmokkfiski (Loligo), en síminn er um 1 mm í þvermál, og athuga hvaða ferli liggja að baki boðspennum (Hodgkin og Huxley, 1952). Þeir notuðu silfurvíra sem rafskaut og því þurfti stórar frumur. Af stakri þolinmæði og samviskusemi tókst þeim þetta, og skýrðu mörg þeirra ferla sem koma við sögu við myndun boðspenna. Fyrir þessa vinnu fengu þeirfélagarNóbelsverðlaun í lífeðlisfræði árið 1963. Þeirra vinna benti greinilega til þess að þær jónir sem koma við sögu við myndun boðspenna ferðist um frumuhimnur í gegn um einhverjar sérhæfðar brautir, eða jónagöng (ion channels), eins og þau eru nú kölluð. Þeir settu jafnframt fram stærðfræðilegar tilgátur um hegðun þessara brauta, sem sumar hafa reynst vera réttar en aðrar ekki. Á þessum tíma voru fundin mörg sérhæfð eiturefni sem virðast geta verkað á einstaka tegundir jónaganga, og reyndist spennuþvingun risasmokk-fisks afar hentug aðferð ti I þess að skoða verkan þessara lyfja (sjá t.d. Catterall, 1980). Þessar aðferðir gáfu að vísu ekki möguleika á að skoða hegðun einstakra jónaganga, en hægt var að reikna út vissa þætti, og spá fyrir um með ótrúlegri nákvæmni. Ein leið til að auka nákvæmnina var að minnka rafskautin, og með notkun glerpípa fylltar með leiðandi saltlausn. Með því að hita slíkar glerpípur (sem eru um 1 mm að ytra þvermáli) og draga þær í sundur á þann hátt sem sýnt er á mynd 3, myndast tvö örmjó örskaut (microelectrodes) með opnumoddi(caO,l pm). Oddinumáþessumörskaut- um er hægt að koma fyrir í utanfrymi eða í umfrymi og skrá rafvirkni með þeint. Með því að stinga tveimur slíkum skautum inn í eina og sömu frumu er hægt að spennuþvinga og skrá himnuspennu samtímis. Þrátt fyrir smæð örskautanna þurfa frumur að vera frekar stórar til þess að hægt sé að gera þetta. Á síðari árum hefur reynst mögulegt að nota aðeins eitt örskaut til þess bæði að skrá himnuspennu og senda straum inn í frumuna, og kallast slíkt einskauta spennuþvinga (single barrel voltage clamp). Byggist þetta á notkun nýrra gerða af formögnurum er “klippa” á milli skráningar og ertingar í gegnum sama örskaut. Er þá hægt að spennuþvinga smærri frumur. Mynd 3. Framleiðsla tveggja örskauta úr einni glerpípu. Glerpípan er sett ísérstakan hitara með hitaþræði, og segul er togar í annan enda glerpípunnar. Við hitun dregst pípan í sundur í miðju og myndast þá tvær glerpípur með mjóum oddum eins og sýnt er á miðhluta myndar. Lengst til hægri eru sýnd tvö örskaut tilbúin til notkunar. LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg. 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.