Læknaneminn - 01.10.1991, Síða 70

Læknaneminn - 01.10.1991, Síða 70
með þeim árangri að dánartala lækkaði niður í 15-25 % þar sem þessari meðferð varð við komið. Jafnframt hófust tilraunir með bóluefni úr heilum, dauðum meningókokkum. Voru margar tilraunir gerðar með þeirri tegund bóluefna fyrstu fjóra áratugi aldarinnar, einkuni í Afríkulöndum sunnan til við Sahara eyðimörkina þar sem meningókokkafaraldrar eru tíðari en annars staðar í heiminum (meningitis belt) Flestarþeirrabáru óljósan, lítinn eðaengan áranguren einstaka góðan. (2) Þegarsúlfalyfkomu ínotkun um 1938 reyndust þau mjög vel gegn meningókokkum bæði til meðferðar á meningókokkasjúkdómi (dánartala lækkaði niður í u.þ.b. 10%) og einnig til útrýmingar meningókokka úr nefkoki smitbera. Ahugi á þróun meningókokkabóluefna mun hafadvínað um hríðeftir tilkomu súlfalyfja en aukist aftur þegar bera tók á súlfaónæmi meningókokka í byrjun sjöunda áratugsins. Að vísu tóku önnur sýklalyf við, mjög virk gegn meningókokkum en dánartala sjúkdómsins hefur þrátt fyrir tilkomu þeirra haldist óbreytt um 10- 15% í iðnvæddum löndum, í þróunarlöndum er hún hærri. Enn ein tilraun með bóluefni úr heilum, dauðum meningókokkastofnum af fjórum hjúpgerðum var gerð í Afrfku á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar 1966-1968. Niðurstaða varð ekki marktæk. Bóluefnið reyndist þola geymslu illa og hafa allmiklar aukaverkanir. (3) Var þar með hætt tilraunum til að gera bóluefni úr heilum, dauðunt meningókokkum og menn sneru sér að því að leita að einstökum, hreinum mótefnavökum. Árið 1945 tókst Kabat að vinna fjölsykrung hjúpgerðar A hreinan með sams konar aðferðum og notaðar voru til að vinna fjölsykrunga úr hjúpi pneumókokka. Þessi A fjölsykrungur var síðan prófaður sem mótefnavaki á sjálfboðrdiðum, en þeir reyndust ekki mynda mótefni. (4) Lágu tilraunir af þessu tagi niðri í 20 ár en þá hafði verið sýnt fram á að sameindarþungi fjölsykrungs þurfti að vera a.m.k. 100.000 til þess að hann framkallaði mótefni. Sá sem Kabat vann upphaflega hafði sameindarþunga aðeins 20.000. Með nýjum aðferðum tókst Gotschlich og samstarfsmönnum undir lok sjöunda áratugarins að vinna vel virka mótefnavaka úr hjúpi A og C en ekki B. (5,6). Voru síðan þróuð fjölsykrungabóluefni gegn meningokokkum af hjúpgerðum A og C. Fyrsta prófun á þessum bóluefnum í stórum hópi fór fram árið 1969 á C bóluefni í æfingabúðum Bandríkjahers þar sem töluvert hafði borið á meningókokkasjúkdómi af hjúpgerð C síðan 1967. Alls voru 13.763 hermenn bólusettir. Engaralvarlegar aukaverkanir komu fram. Við samanburð á bólusettum og óbólusettum hópi reiknaðist vemd bóluefnisins 87%. (7) Bóluefni úr fjölsykrungi hjúpgerðar A var reynt í Nigeriu 1969 fyrir rúmlega 7000 skólabörn en gaf þeim enga vernd og var talið að bóluefnið hefði verið geymt við of mikinn hita (35-40° C). (8) Næst var það reynt 1973 í Egyptalandi í A faraldri. Fengu 62.000 börn á aldrinum 6-15 ára bóluefnið, ekkert þeirra veiktist en 15 í sambærilegum hópi óbólusettra. (9). Um svipað leyti var það notað í A faraldri í Súdan fyrir börn og ungt fólk að 21 árs aldri með góðum árangri (10) og í Finnlandi í A faraldri 1974, fyrst fyrir 16.000 hermenn, síðan fyrir tæplega 50.000 böm 3ja mánaða ti 15 ára. Reyndist bóluefnið gefa þeim um 90% vernd í samanburði við jafnstóran hóp sem fékk bóluefni gegnHaemophilus infiuenzae. (11). í Brasilíu hófst C faraldurárið 1971 en 1974tókskæður Afaraldurvið. Mérieux lyfjafyrirtækið tók þá að sér að framleiða tvígilt bóluefni, AC, sem gefið var 90 milljón manns árið 1975 með þeim árangri aðfaraldurinn rénaði. (12) Meningókokkabóluefni úrfjölsykrungum gegn hjúpgerðum Y og W135 bættust síðar við og er nú hægt að fá tvígilt bóluefni, AC, og fjórgilt, ACYW135. Aukaverkanir eru litlarhjá fullorðnum, aðallega roði og bólga á stungustað, en böm fá stundum hita auk staðbundinna einkenna. Hvorugt þessara bóluefna vekur T-frumuháð ónæmissvar. Mótefni gegn viðkomandi hjúpgerð hækka á 1-2 vikum en þau vara fremur stutt, 3-4 ár hjá fullorðnum, skemur hjá börnum og því skemur sem þau eru yngri. A bóluefni vekur aðeins lág mótefni hjá börnum á fyrstaári en C bóluefni vekurengin mótefni hjá bömum yngri en 2ja ára. (13) Þessi bóluefni eru nú ráðlögð til að stöðva faraldraeða hefta útbreiðslu viðkomandi hjúpgerðaef fleiri en eitt tilfelli af sömu hjúpgerð koma fyrir innan skamms tíma í ákveðnum fólkshópi. Þau eru einnig ráðlögð fyrir ferðamenn, sem eru að fara á svæði þar sem A eða C faraldur gengur. Hér á landi hafa þessi bóluefni tvisvar verið notuð í fólkshópa. Síðari hluta árs 1975 greindust 68 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.