Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1991, Qupperneq 74

Læknaneminn - 01.10.1991, Qupperneq 74
2ja ára aldur. Yfirleitt fékkst ekki eins góð vernd af þessu bóluefni þar og í Finnlandi og sumir töldu það gera lítið sem ekkert gagn. (4) Megingalli PRP bóluefnisins var auðvitað sá að það verndaði ekki þann aldurshóp sem sýkingar af völdum H. influenzae b bitna aðallega á. Annar galli var að mótefnasvar jókst ekki við endurgjöf þ.e. það vakti ekki T-frumuháð minnissvar ónæmiskerfis. Árið 1984 fór hér fram umfjöllun um þetta bóluefni á vegum bamalækna og landlæknis og var ákveðið að taka það ekki í notkun þar sem um 70% barna, sem hér veiktust af H. influenzae b sýkingum voru yngri en 2ja ára. PRP bóluefnið er stundum kallað H. influenzae bóluefni af fyrstu kynslóð. Þegar vankantar PRP sem mótefnavaka voru komnir í ljós fóru menn að huga að endurbótum á því í því sky ni að fá fram mótefnasvar hjá börnum á fy rsta ári og helst T-frumuháð til að hægt væri að hvetja mótefnamyndunmeðendurteknum bóluefnisgjöfum. Til er gömul athugun á mótefnasvari við fjölsykrungum pneumókokka sem sé að mótefni gegn þeim aukast ef þeir eru tengdir við eggjahvítuefni og gefnir inn í því formi. Þetta höfðu Avery og Goebels sýnt fram á í dýratilraunum árið 1929. Var nú farið að vinna eftir þessari fyrirmynd og þróa H. influenzae bóluefni tengd (conjugated) við eggjahvítuefni. (5) Fyrsta bóluefnið af þessu tagi sem tókst að fullþróa var með tengingu við diphtheria toxoid: PRP- D og er það enn framleitt (ProHibit, Connaught). Það er stundum kallað H. influenzae bóluefni af annarri kynslóð. Mótefnaprófanir á því fóru fram á árunum 1983-1985. (6,7) Finnar hófu síðan verndarpróf á þessu bóluefni haustið 1985 hjá 30.000 börnum með jafnstórum samanburðarhópi. Bóluefnið var gefið á 3ja, 4ra, 6 og 14 mánaða aldri. Þegar árangur var gerður uppíjúlí 1987 höfðu 3 bólusett bömfengið//. influenzae b sýkingu, öll innan 14 mánaða, en 20 í óbólusetta hópnum og reiknaðist vernd bóluefnisins 87%. Mótefnamælingar á 113 þessara bama fyrir og mánuði eftir hverja bóluefnisgjöf sýndu fremur lág mótefni eftir fy rstu tvær inngjafir, allgóða hækkun hjá hluta þeirra eftir þriðju gjöf og verulega hækkun hjá nær öllum eftir fjórtán mánaða skammtinn. Aukaverkanir voru ekki meiri en við venjulegar ungbamabólusetningar en reyndar fengu börnin þær um leið og nýja bóluefnið. (8) Vemdarpróf á PRP-D var einnig gert á 2000 börnum í eskimóabyggöum Alaska. Þar er heila- himnubólga af völdum H. influenzae miklu algengari en meðal hvítrabarna íN-Ameríku og börnin veikjast flest á fyrsta eða öðru ævimisseri. í þessum hópi reyndist bóluefnið gefa mjög litla vemd, aðeins 35%. (9) Greinilega var þama var þörf á bóluefni sem vekti há mótefni á fyrsta ári. Nú hafa þrjú bóluefni til viðbótar verið þróuð, sem öll framkalla hærri mótefni hjá börnum á fyrsta ári en PRP-D bóluefnið og teljast til þriðju kynslóðar. (10) 1. HbOC bóluefni (HibTITER, Praxis) er samsett úr stuttum sykrungskeðjum (OC=oligo saccharides) tengdum við meinlausa diphtheria toxín sameind (non-toxic mutant: CRM 197). Þettabóluefni vekur há mótefni um 6 mánaða aldur ef barnið fær skammt 2ja, 4ra og 6 mánaða. Finnar völdu þetta bóluefni fyrirhelmingungbamasinnaárið I989,hinn helmingurinn fékk PRP-D bóluefnið og reyndist vernd HbOC meiri en hins á fyrsta og öðru ævimisseri (11). Svipuð niðurstaða fékkst af stóru vemdarprófi í Kaliforníu. (12) Aukaverkanir hafa ekki reynst neitt vandamál. 2. PRP-OMP bóluefni (PedvaxHIB, Merck Sharp &Dohme). I því er PRP tengt eggjahvítuefni úr úthýði (outer membrane protein) B stofns meningókokka. Það framkallar töluvert magn mótefna eftir einn skammt á 2ja-3ja mánaða aldri og hámótefni eftirannan skammt 2 mánuðum síðar. (13) Vemdarpróf hefur verið gert á Navajo indjánabömum sem líkjast eskimóabörnum að því leyti, að H. influenzae heilahimnubólga herjar meira á þau og fyrr áæviskeiðien hvítbörn.Reyndistbóluefniðgefaþeim góða vernd a.m.k. fyrsta árið eftir bólusetningu á 2ja og 4ra mánaða aldri. (14) Þettabóluefni olli framan af þó nokkrum aukaverkunum, bæði staðbundnum og hitahækkun, enda er örlítið af endotoxínum meningókokka í því. Þessar verkanir minnkuðu til muna við að blanda hjálparefni (adjuvant) í það. (10) 3. PRP-Tbóluefni (Act-HIB,Pasteur/Merieux). 1 því er tengda efnið tetanus toxoíð en það var með l'yrstu eggjahvítuefnum sem tókst að tengja við PRP. (5) Þetta bóluefni vekur mótefni hjá 2ja-3ja mánaða bömum og eftir endurgjafir við 4ra og 6 mánaða eru mótefni orðin há. (10) Athugun í Svíþjóð á 85 bömum sem fengu þettabóluefni við 3ja, 5 og 12 mánaðaaldur 72 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.