Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 108
Innan IFMSA starfa ýmsar nefndir
(Standing Committees):
IFMSA og stúdentaskipti:
SCOPE, The Standing Committee On
Professional Exchange, hefur alltaf verið mest
áberandi og árangurríkasta nefndin, þar sem
stúdentaskipti hafagefist vel í þeim tilgangi að styrkja
alþjóðleg samskipti milli læknanema og víkka
sjóndeildarhring einstaklingsins. Síðastliðið ár tóku
yfir 4000 læknanemar frá 39 löndunt þátt í
stúdentaskiptum gegnum IFMSA. Fjölbreytileiki
hefur einnig aukist, fyrst var eingöngu eins mánaðar
dvöl á sjúkrahúsi í boði en nú er hægt að fara á
“preklínísk” námskeið, sækja sumarskóla (nú í
Danmörku, Tyrklandi, Egyptalandi, Svíþjóð og
Sovétríkjunum) og svokallað “elective”. Þetta
síðastnefnda eru stúdentaskipti sem vara allt upp í
nokkra mánuði og byggjast á ákveðnu
rannsóknarverkefni eða verkefni/námsskeiði sem
tengist klínískri vinnu. Þessi verkefni enda venjulega
með ritgerð og fær nemandinn það væntanlega metið
í sínu námi heima. Við í IMSIC erum að fara í gang
með slfk skipti í tengslum við rannsóknarvinnu 4. árs
nema og valmánuð 5. árs nema sem nú er verið að setja
á fót í nýju skipulagi í læknadeild. Ný nefnd innan
IFMS A hefur verið komið á fót til að sjá um þessi mál,
SCOEE (Standing Committee On Elective
Exchanges) og er Helena Sveinsdóttir okkar fulltrúi
þar.
Skipti eru venjulega tvíhliða og húsnæði og fæði
er yfirleitt frítt, þannig að nemandi þarf eingöngu að
borgafargjöldtil ogfrálandinu. Nefndir viðkomandi
lands skipuleggja yfirleitt ferðir um helgar og ýmsar
skemmtanir sem skiptinemamir taka þátt í að greiða.
IMSIC viðheldur öflugu sumarstarfi í samvinnu við
AIESEC, IAESTE og ELSA. Þið læknanemar góðir
eruð h vattir til að taka þátt í þessu starfi með okkur sem
getur orðið æði gaman.
Stúdentaskiptastjóri (National Exchange
Officer; NEO) er ábyrgur fyrir stúdentaskiptum síns
heimalands. Stúdentaskiptastjórar allra landa hittast
tvisvar á ári, á aðalfundinum og á fundi í mars á hverju
ári, þar sem skrifað er undir samninga á milli landa og
skipst er á umsóknum fyrir komandi sumar. Þetta er
oft flókið mál og mikið þref þannig að nauðsynlegt er
að við sækjum þessar ráðstefnur og göngum frá okkar
málum. Þetta eru þær ráðstefnur sem við sendum
okkar fulltrúa á innan IFMSA og er það mikill
kostnaðarliður.
IFMSA og læknismenntun:
SCOME, The Standing Committee On Medical
Education, er nefnd sem fjallar um kennslumál í
læknisfræði, skiptast á gagnlegum upplýsingum um
aðferðir til kennslu í hinum ýmsu löndum og mikil
áhersla hefur verið lögð á kennslu í frumheilsugæslu,
sérstaklega til upplýsinga fyrir fólk í þriðja heiminum
um hreinlæti, sýkingarhætíu og bólusetningar.
Allur hópurinn samankominn á sólskinsdegi. Verðlaun fyrir þá sem finna okkur á myndinni!
106
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.