Læknaneminn - 01.10.1991, Page 112

Læknaneminn - 01.10.1991, Page 112
rétta mér góðgætið. En þó að lystin væri engin, reyndi ég að halda virðingu minni, sat al varlegur og hugsandi og braut kleinur. Yfirhjúkrunarkonan hefur sennilega séð hvað mér leið, því að hún sagði hug- hreystandi:”Það koma víst fáir að sjá unga lækninn í dag. Það er alltaf fátt á laugardögum og svo veit víst enginn, að þér eruð komnir.” Við þessi orð hresstist ég það mikið, ég fór að geta svarað spurningum fólks nokkurn veginn skynsamlega. Kl. 11 stundvíslega opnaði ég biðstofudyrnar. Þetta var allstór biðstofa og vistleg í betra lagi, en því miður full af fólki. Mér sortnaði fyrir augum og varð kaldsveittur af skelfingu. Einhvern veginn stundi ég þó upp: “Fyrsti, gjörið svo vel!” Tveir þeir fyrstu drógu upp tóm meðalaglös og báðuumáþauaftur. Egskrifaðireceptogfóraðverða rólegri. Sá þriðji var með tómt glas undan phenemal mixtúru, sagðist vera hjartveikur, órólegur og eiga vont með svefni. Hann sagðist þurfa þriggja pela flösku, ef þetta ætti að duga eitthvað. Eg horfði á manninn furðulostinn. Það var naumast að hann vildi verða rólegur. Til að láta þetta heita eitthvað, hlustaði ég hjarta hans. Eg heyrði að vísu, að hjartað sló, annað græddi ég ekki á hlustuninni. Tók þá að hugsa um Kristins-fræðina og allt í einu mundi ég orðið: Barbiturætur. Það var vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig. Ég horfði á manninn og hann horfði á mig. “Tvö hundruð grömm,” sagði ég og var ákveðinn. “Tvö hundruð grömm! Hvað er það fyrir mig, svona órólegan og hjartveikan?” svaraði hann og varð fúll. Ég skrifaði recept og rétti honum. Hefur honum sennilega þótt lítið til minnar læknislistar koma, því að ég sá hann ekki aftur. Mér tókst að veita öllum, sem á stofunni voru, einhverja úrlausn, að ég held, skar í kýli og gaf sprautur. Kandídatinn. vinur minn, hafði haft allmarga í sprautukúr, einkum voru þar á ferðinni vítamínistar, kerlingar með útstungna rassa og alltaf að hressast. Þennan dag voru þrjár vitjanir, tvö skikkanleg og virðuleg kveftilfelli, og afgreiddi ég þau eins og vera bar með gagnkvæmum virðuleik og recepti. Þriðja tilfellið var eitt af þessum lúalegu útbrotaandsk..., sem enginn ræður við. Sá þjáði var tæplega ársgamall. Ég gekk inn alvarlegur og hugsandi, eins og ég hafði tamið mér síðustu klukkustundirnar. Móðirin leiddi mig að vöggunni, sá litli steinsvaf. Nú var ég skjótráður, breytti um “taktik” í einu vetfangi, gerðist blíður á svipinn og mjúkmáll. “Við skulum ekki vekja agnaskinnið, það sefur s vo vært. Ég skal koma seinna”, sagði ég og hafði í huga gálgafrest. En móðirin var ekki á því. Hún dreif barnið upp og afklæddi það. En húð þess var hvít og mjúk, hvar sem á var litið. Þegar hér var komið sögu, var barnið vaknað og horfði á mig, undrandi og móðgað. Það var dauða þögn, allir voru að búa sig undir að segja eitthvað. Krakkinn varð fyrstur. Hann talaði að vísu ekki nein ósköp, en orgaði þeim mun meir, blánaði fyrst en roðnaði síðan. Þá tók móðirin að benda mér á hina og þessa staði á líkama hans, sem henni fundust athugaverðir. Ég sagðist ekkert sjá, sem ekki væri eðlilegt. Hún féllst að lokum á þetta, en sagðist skyldu hringja í mig seinna, þegar útbrotin væru greinilegri. Tveim dögum síðar kom ég þangað aftur, sprenglærður í húðsjúkdómum, diagnosticeraði ofnæmi, gaf krakkanum viðeigandi meðferð. Síðar frétti ég frá Ijósmóður staðarins, að krakkinn væri stórum betri. Tvisvar lenti ég í því vandasama verki að vera kvaddur að dánarbeði. Annað tilfellið var háöldruð kona, sem hafði dottið niður stiga. Ég var ekki rólegur fyrr en ég heyrði lát hennar tilkynnt í útvarpinu. Hitt tilfellið var nýfætt barn, er lézt á spítalanum. Ég hlustaði það, þar til ein hjúkrunarkonan benti mér vinsamlega á það, að barnið væri farið að stirðna. Jæja, dagar liðu, sjálftraustið óx, en sjúklingum fækkaði. Dag einn í seinni hluta viðtalstíma, kom til mín ung stúlka. Hún var vel vaxin, há og grönn og lagleg í betra lagi og rauðhærð í ofanálag. Hún sagðist vera taugaóstyrk. Ég spurði, hvort nokkur sérstök ástæða væri til þessa taugaslappleika. Hún horfði á mig stórum, döprum augum og sagðist ætla að gifta sig eftir viku. Ja, hvert þó í logandi. Ég hafði hingað til haldið, að flest kvenfólk gengi um í sæludraumi, þar til þær væru búnar að láta hlekkja sig eða öfugt og væru sízt af öllu taugaslappar. En hér sat ein, var taugaóstyrk og kvíðin og sem verra var, hún ætlaðist til, að ég bjargaði málinu við. Mér datt strax í hug: Láttu stelpuna lesa bókina Hjónaástir, sem ég hafði einhverntíma heyrt nefnda. En við nánari íhugun áleit ég, að það væru sennilega 20-30 ár síðan sú bók kom út og því líklega ekki til nema á söfnum eða þá í eigu bókasafnara, sem safna fágætum og merkilegum bókum.Tabl.phenemali min. lx3ádagogróandiorð urðu að duga. Töflurnar fékk hún og einhver orð sagði 110 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.