Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1997, Page 57

Læknaneminn - 01.04.1997, Page 57
Ofnæmi fyrirdýrum Taflal Helstu ofnæmisvakar frá dýrum. Dýrategund Ofnæmisvaki Staðsetning Köttur Fel d I, serum albumin húðkirdar, munnvatn Hundur Can f I og fleiri húðkirtlar, munnvatn Rotta Rat n I, Rat n II þvag Naggrís Margir ofnæmisvakar þvag, munnvatn Kanína Margir ofnæmisvakar þvag, munnvatn Stökkmýs Margir ofnæmisvakar húðkirtlar, sermi Hamstur Margir ofnæmisvakar húðkirtlar Mús Mus m I þvag Hestur Equ c I, Equ c II, Equ c III húðkirtlar Kýr Bos d I, Bos d II, Bos d III húðkirtlar flokknum önnur dýr má gera ráð fyrir að séu fyrst og fremst sauðfé og nautgripir, enda voru 10% þátttak- enda aldir upp í sveit og 38% höfðu dvalist í sveit að sumarlagi. Þegar könnunin fór fram voru aðeins 12,5% með ketti á heimilinu og 5,6% með hunda. Það er athyglisvert, að fleiri umgangast hesta en hunda. Þessar tölur um dýrahald eru lágar ef miðað er við nágrannalöndin t.d. Svíþjóð. Eigi að síður sést að skil- yrði eru til þess að mynda ofnæmi fyrir öllum þeklctum húsdýrum á landinu og nokkrum tegundum nagdýra. Sérstaklega er rétt að minna á mýs, sem lifa villtar um allt land og hreiðra um sig í útihúsum, vöruskemmum, gróðurhúsum og jafnvel íbúðarhúsum. Hér á landi hafa ofnæmisvakar frá músum fundist í heyi og í ryki úr mjölskemmu. Músaofnæmi hefur fundist hjá nokkrum tugum einstaklinga sem virðast hafa fengið ofnæmi af villtum músum. Hjá fullorðnum í þéttbýli er ofnæmi fýrir grösum algengast (8,5%). Algengasta dýraofnæmið er fyrir köttum (7,6%), þar næst fyrir hundum (6,3%). Ofnæmi fyrir hestum er hins vegar sjaldgæft (0,9%). Samtals hafa 11,2% ofnæmi fyrir einu eða fleirum þess- ara dýra en ekki er vitað um tíðni ofnæmis fyrir öðrum dýrategundum. Verulegur munur er á tr'ðni ofnæmis eftir aldurshópum (mynd 3) og ekki er vitað í hvaða aldurshópi tíðnin nær hámarki, þar sem rannsóknir á aldurshópum yngri en 20 ára vantar. Tíðni ofnæmis fyrir köttum og hundum er u.þ.b. helmingi lægra en á hinum Norðurlöndunum. I sveitunum eru orsakir ofnæmis afar frábrugðnar því sem er í þéttbýli. Þar valda heymaurar lang oftast ofnæmi, í öðru sæti eru nautgripir, þá rykmaurar, grös og birki, á undan hundum og köttum, sem sjaldan valda ofnæmi. Má það merkilegt heita þar sem hundar og kettir voru á flestum bæjum á þeim tíma sem könn- Tafla II Gæludýr á æskuheimili þeirra sem eru fæddir á árabilinu 1. desember 1945 til 30. september 1970 og bjuggu á Stór- Reykjavíkursvæðinu 5. október 1990. Stærð úrtaksins: 570. Heimili með dýr Kettir 41 Hundar 26 Hestar 16 Fuglar 36 Naggrísir 5 Hamstrar 13 Mýs 4 Kanínur 6 Önnur dýr 24 unin var gerð. Skýringin liggur sennilega í muninum á gæludýrahaldi í borgum og sveit: I þéttbýli eru dýrin fýrst og fremst innandyra og því verður einstakling- urinn fýrir mun meira magni af ofnæmisvökum. I sveitum landsins, eru hundar og kettir oftast útidýr, og þar er umgengni við dýrið því minni. I sveitum eru það nautgripir sem oftast valda atvinnutengdu dýraofnæmi, en þar næst koma dýr í útihúsum. I þéttbýli valda líklega tilraunadýr oftast atvinnutengdu ofnæmi. GREINING DÝRA0FNÆMIS Aður en sjúklingi er ráðlagt að losa sig við gæludýr, verður að staðfesta að tiltelcinn ofnæmisvaki sé valdur að einkennum hans. Góð sjúkrasaga, þar sem fram kemur t.d. verri einkenni í návist katta og lítil einkenni á vinnustað eða í fríum er undirstaðan að réttri greiningu. Erfitt getur reynst að fá fram örugga sögu um ofnæmi ef sjúldingurinn er með dýr á heimilinu, og því með stöðug og mallandi einkenni. Oft ríkir tölu- verð afneitun varðandi heimilisdýrið („það getur elcki verið kisan, hún hefur verið hjá mér í 15 ár en ég hef aðeins hafa einkennin í 10 ár“). Næsta stig í greiningu á dýraofnæmi er að sýna fram á allergen-sértækt IgE. Þetta er gert annað hvort með húðprófi (pikk eða intradermal) eða in vitro aðferðum t.d. radioallergosorbent prófi (RAST). Bæði prófm eru vel næm og sértæk (sensitive and specific) og greina oftast hvort um ofnæmi sé að ræða. Til eru einstakling- ar með kattarofnæmi sem eru ekki með ofnæmi fýrir Fel d I, heldur t.d. serum albumini. Þá er eklci nægilegt að prófa bara íýrir algengasta ofnæmisvakanum (Fel d I), og er nú hægt að nota 3 mismunandi lausnir: Fel d LÆKNANEMINN 55 1. tbl. 1997, 50. árg. 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.