Læknaneminn - 01.04.2005, Page 17
Primum non nocere
-Álit læknanema á breyttri læknadeild
„Listin er langæ, lífið stutt, tækifærin hvikul, tilraunir blendnar og dómur vandasamur.11* Þessi
setning, ásamt latneskum titli þessa greinar, er upprunnin frá Hippókratesi líkt og fyrsta loforð
Hippókratesareiðsins; „Fyrst og fremst að vinna eigi ógagn“*
Læknislistin, þó langæ sé, tekur í sífellu breytingum, líkt og þjóðfélagið allt og vandasamt er
að dæma hvort einstakar breytingar á henni séu til góðs eða ills.
Á síðastliðnum tveimur árum hafa orðið verulegar breytingar á skipulagi læknisnámsins við
Háskóla íslands. Numerus Clausus hefur verið felldur niður og í stað hans tekin upp inntökupróf
og auk þess tekið upp s.k. blokkakerfi þar sem eitt, eða örfá, fög eru kennd samfellt í nokkrar
vikur og síðan tekið próf í framhaldinu. Til viðbótar þessu voru fög færð milli ára og nú er t.d.
rannsóknarverkefni fjórða árs orðinn hluti þriðja árs en lyflæknis- og skurðlæknisfræðifög sjötta
árs eru nú kennd á því fjórða ásamt því að „embættis“ próf sjötta árs hafa færst niður á fjórða ár. Auk þess er áætlað að
heilsugæslukennsla færist frá fimmta ári á það sjötta.
Breytingar þessar hafa orðið hratt og haft víðtæk áhrif á nám fyrstu fjögurra árganganna og sumir segja nú tæpast hægt
að bera saman nám þeirra og það nám sem núverandi fimmta- og sjötta árs nemar sóttu.
Ritstjórn Læknanemans lék forvitni á að vita hvaða skoðanir læknanemar sjálfir hafa á breytingunum og hinni nýju Lækna-
deild. í því augnamiði voru spurningar þess efnis lagðar fyrir einn læknanema af hverju hinna fjögurra fyrstu ára, sem stödd
eru í hringiðu breytinganna.
Sólveig Helgadóttir, nemi á 1. ári
Hvernig líst þér á læknadeildina hingað til, er eitthvað sem hefur
komið þér óvart?
Ætli það hafi ekki komið mér einna mest á óvart hversu mikið
álagið reyndist vera. Líklega varð það þó meira en nauðsynlegt
þurfti sökum eigin skipulags- og undirbúningsleysis. Auðvitað
veit maður að háskólanám byggist á sjálfstæðum og öguðum
vinnubrögðum en stökkið á milli framhaldsskólastigsins og
háskólastigsins reyndist mun strembnara en ég hafði ímyndað
mér. Ég hélt því miður að maður gæti verið aðeins öruggari með
sig fyrst það er enginn clausus lengur.
Ég er hreint ekki viss um hver afstaða mín er til inntökupróf-
anna vs clausus-prófa, enda hafa báðar leiðir sína kosti og galla.
Inntökuprófsleiðin hentaði mér ágætlega þó að ég hafi í raun
ekki haft neina hugmynd um hversu erfitt námið myndi reynast.
Ég segi ekki að ég hefði hætt við að byrja ef ég hefði vitað það
en ég hefði kannski undirbúið mig betur en ég gerði. Þetta
vanmat á náminu tel ég einmitt vera einn stærsta gallann við
inntökuprófin, ef fólk veit ekki út í hvað það er að koma sér hljóta
líkurnar á brottfalli að aukast.
Fyrirkomulag námsins mætti líka vera betra á margan hátt.
Vissulega er aðstaðan í megindráttum ágæt og án efa ein sú
besta í HÍ. Að minnsta kosti hvað okkur fyrsta árs nemana
varðar. Ég vildi samt gjarnan vera í fleiri verklegum tímum og
bæta kost skólans að því leyti, eins og t.d. hvað varðar mögu-
*Steffensen, V. Híppokrates-faðir læknislistarinnar. Bókaútgáfan Norðri, 1946
leikann (eða ómöguleikann) á að fylgjast með og framkvæma
krufningar. Einnig væri gaman að sjá meira gert úr tengingu
námsins við klíníska þáttinn. Auk þess fyndist mér gaman ef
lögð væri aukin áhersla á þátt nemanna í kennslustundum því
stundum hefur það reynst erfitt að sitja og hlusta á kennarana
dag eftir dag án þess að nokkuð rúm sé gefið til virkilega sjálf-
stæðra vangaveltna.
Enn eitt sem betur mætti fara er einingagutlið sem maður
verður var við. Hvernig getur það staðist að sjúkraþjálfaranemar
fái 6 einingar fyrir nákvæmlega sama áfanga og læknanemar fá
5 einingar fyrir? Reyndar má deila um það hversu mikið samræmi
er milli einingafjölda og vinnuálags áfanga til að byrja með.
Kennarar deildarinnar finnast mér mestmegnis ágætir hingað
til. Auðvitað hefur manni litist misvel á þá en yfirleitt má segja að
þeir séu færir í sínu fagi og oftast prýðilega undirbúnir. Sumir
mættu þó líta aðeins í eigin barm, sérstaklega hvað varðar fram-
setningu efnis í tímum og frágang á glósum til nemenda. Eitt-
hvað virðist líka stundum standa á upplýsingaflæði til nemenda
og lögmálið í deildinni virðist stundum vera að Guð hjálpi þeim
sem hjálpi sér sjálfir.
Karl Erlingur Oddason, nemi á 2. ári
1. Nú ert þú í fyrsta árganginum sem komst inn í læknadeild með
inntökuprófi, hvert er þitt álit á inntökuprófunum?
Fyrir mína parta er ég ánægður með inntökuprófin. Ég hefði
aldrei farið í læknisfræði ef clausus væri enn til staðar þar sem
LÆKNANEMINN
2005