Læknaneminn - 01.04.2005, Side 20

Læknaneminn - 01.04.2005, Side 20
Juvenile myoclonic epilepsy Heilkenni sem mikilvægt er að greina Ágúst Hilmarsson læknanemi læknadeild Háskóla Islands Elías Ólafsson læknir læknadeild Háskóla íslands taugalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss Útdráttur: Juvenile myoclonic epiiepsy (JME) erflogaveikiheilkenni sem einkennist af tveimur og stundum þremurgerðum floga*. Ekki finn- ast merki um sjúkdóm í heila að öðru leyti og grelnd vk. er eðlileg. Dæmigert er að sjúklingur með JME fái fyrst kippaflog um 12-18 ára aldur. Algengast erað kippirnir séu í báðum handleggjum og komi að morgninum eða þegar vk. er nývaknaður. í fyrstu áttar vk. sig oft ekki á að um óeðlilegt fyrirbrigði sé að ræða, hvað þá flog. Krampar byrja síðan oftast innan þriggja ára 1 og þá fyrst leitar vk. læknis. Þvi er mikilvægt að spyrja um kippi í handleggjum að morgninum hjá öllu ungu fólki sem leitar læknis vegna krampa. Heilarit sýnir dæmigerðar breytingar sem eru polyspike-wave útbreiddar flogabreytingar. Taugaskoðun og myndgreiningarrannsóknir af höfði (tölvusneiðmynd og segulómun) eru eðlileg. Kjörlyf við JME er valproate sem slær oftast vel á bæði kippina og krampana. Inngangur: Flog orsakast af samstilltri og stjórnlausri afskautun taugafruma í heilaberki. í tveimur þriðja tilfella finnst engin orsök fyrir flogum en í þriðjungi tilfella finnast merki um staðbundinn heilasjúkdóm, svo sem heilaæxli, heilaslag eða heilabólgu. Flogum er skipt í staðflog og alflog. Staðflog (enska: partial eða focal seizure) eiga upptök sín á afmörkuðu svæði í heil- anum en geta síðan breiðst út til annarra svæða. Ef staðflogin eru bundin við afmarkað svæði skerðist meðvitund ekki og flogin einkennast t.d. af kippum, sjón-, heyrnar- eða skyntruflunum og nefnast þau flog fyrirboðar í daglegu tali. Ef flogin breiðast út til beggja heilahvela (t.d. gagnaugasvæða beggja vegna) þá sést skerðing á meðvitund með eða án annarra einkenna (complex partial flog). Þegarflogin breiðast síðan út til alls heilans valda þau sk. krampa (secondarily generalized tonic-colonic seizure eða grand mal seizure) sem einkennist fyrst af samdrætti í vöðvum (tónískur fasi) og síðan kippum í útlimum (klónískur fasi). Hin megingerð floga eru sk. alflog (primary generalized seizure) sem eiga upptök sín allstaðar í heilaberki samtímis. Alflog greinast í ýmsar tegundir, þ.m.t. störuflog (absence seizures), kippaflog (myoclonic seizures) og krampa (primarily general- ized tonic clonic seizure). Á síðustu áratugum hefur verið reynt að flokka hinar ýmsu tegundir flogaveiki í heilkenni2 (syndrome) svo sem West syndrome, Lennox-Gastaut syndrome o.fl. Flogaveiki-heilkenni (epiletic syndrome) einkennast af ákveðnum tegundum floga, dæmigerðum aldri við upphaf einkenna, kynjadreifingu og horfum. Eitt best skilgreinda heilkennið er juvenile myoclonic epil- epsy (JME) og verður fjallað um það í þessu yfirliti. Saga sjúkdómsins Fyrsta greinagóða lýsingín á JME var gerð árið 1867 af franska taugalækninum Theodore Herpin. Hann lýsir því þegar 14 ára gamall sonur hans fær fyrst kippi í háls og axlir og síðar krampa.1,3 Á næstu 90 árum birtust margar greinar sem lýstu einkennum JME, en það var ekki fyrr en með lýsingu þjóðverj- * í þessari grein er orðið flog notað sem samheiti fyrir öll flog (enska: seiz- ure). Krampi (enska; generalized tonic clonic seizure eða grand mal seizure) er notað fyrir stórt flog sem einkennist m.a. af meðvitundarmissi og samdrætti í öllum vöðvum og síðan kippum í útlimum. ans Dieter Janz árið 1957 að almennt varð Ijóst að um ákveðið heilkenni var að ræða. Það einkennist af ákveðnum flogateg- undum (krömpum, kippaflogum og störuflogum), fyrstu einkenni koma fram snemma á unglingsárum og dæmigerðar flogabreyt- ingar sjást í heilariti. Horfur eru slæmar á að einkenni hverfi af sjálfu sér. Janz kallaði heilkennið „impulsive petit mal epilepsy". JME er einnig oft nefnt Janz syndrome, honum til heiðurs.4 Hverjir fá JME? Orsök JME er óþekkt og heilkennið tengist ekki sjúkdómum í heila. Lengi hefur verið talið að heilkennið tengdist erfðum þó að 18 LÆKNANEMINN 2005
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.