Læknaneminn - 01.04.2005, Side 32
Sumarvinna í héraði
Inngangur:
Einn góðan veðurdag kemur að því í lífi hvers læknanema að fara í fyrsta sinn út á vinnumarkaðinn í hlutverki læknis. Fyrir
flesta er það stórt skref að stíga. Til að koma í veg fyrir að ættartengsl eða klíkuskapur ráði hvaða læknanemar eru ráðnir í
læknisstöður hafa læknanemar búið til ráðningakerfi. Þar ræður hlutkesti hverjir fá að velja fyrst úr potti af læknisstöðum.
Haldnir eru ráðningafundir mánaðarlega og sá stærsti er í byrjun apríl ár hvert en þá er úthlutað stöðum fyrir sumarið. Sumir
stefna út í hérað en aðrir kjósa heldur vinnu á spítölum þar sem læknar með lengri starfsreynslu styðja við bakið á þeim sem
enn eru blautir á bak við eyrun. Spítalaumhverfið er flestum vel kunnugt enda fer bróðurparturinn af verknáminu fram þar.
Héraðslækningar eru hins vegar framandi í augum læknanema. Eftir sumarráðningafund átta margir sig á því að þeir vita í
raun ekki hvað bíður þeirra um sumarið.
Grein þessari er ætlað að upplýsa læknanema um hvað felst í því að vera afleysari í héraði. Haft var samband við flestar
heilsugæslustöðvar úti á landi sem ráðið hafa til sín læknanema í afleysingar undanfarin ár. Fenginn var fulltrúi frá hverri
heilsugæslu til að skrifa stutta lýsingu á staðnum. Ennfremur var fengin umsögn læknanema eða unglæknis sem hafði
reynslu af vinnu á staðnum.
Ritnefnd Læknanemans þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn við ritun þessarar greinar.
Heilsugæslan á Akranesi
Upplýsingar frá Reyni Þorsteinssyni, yfirlækni.
Þjónustusvæði HA liggur úr Hvalfjarðarbotni norður fyrir Hafnar-
fjall. Heilsugæslustöðin er sambyggð Sjúkrahúsi Akraness sem
sinnirflestum bráðatilvikum. Til Reykjavíkur er um 30 mín. akstur
ef mikið liggur við. íbúar svæðisins eru um 6300 þar af um 5500
á Akranesi. Þrjár stöður lækna eru á Akranesi. Einn læknir er á
vakt á heilsugæslunni en annar á bakvakt! í starfsmannabústað
er gistiaðstaða sem ekki er greitt fyrir ef um stuttar afleysingar er
að ræða. Aðstaðan rúmar ekki stóra fjölskyldu. Afleysarar þurfa
að hafa eigin bíl til afnota. Greitt er fyrir ferðir í göngin við komu
og brottför og hóflega þess á milli. Unnið er með græna miða á
vöktum. Vaktir eru að jafnaði þrískiptar en samkomulag um
annað. Á vakt virka daga þarf læknir að sinna frá 3-10 sjúk-
lingum en mun meira um helgar.
Þjálfaðir sjúkraflutningamenn sinna sjúkraflutningum.
Umsögn unglæknis:
Ég var þarna sumarið 2004, þ.e. frá síðustu helginni í maí til 1.
sept. Vinnuálagið er hæfilegt, maður er með móttöku alla daga
frá 09-16 og símatíma einnig alla daga vikunnar í 1 klst. Vaktir
eru venjulega þrískiptar og hægt að fá fleiri ef mann fýsir í það.
Vinnuaðstaðan er góð og bak við sjúkrahúsið er hús þar sem
eru nokkur svefnherbergi og eldhúsaðstaða og sjónvarpsher-
bergi þannig að það er ekki á neinn hátt hægt að kvarta yfir
aðstöðunni, hvorki í vinnu né vöktum. Starfsfólkið er með
eindæmum yndislegt og gott að leita til allra þarna. Sérfræðingar
á staðnum taka allir vel í fyrirspurnir frá manni og eru alltaf reiðu-
búnir að hjálpa og svara spurningum frá manni. Einnig er alveg
frábært að geta labbað upp á deild og hitt þá sem maður leggur
inn og fylgjast með hvernig viðkomandi hefur það sem er virki-
legur kostur. Maður sér allt nema slys og saumaskap sem allt fer
á slysó á sjúkrahúsinu þannig að það er lítið um svoleiðis nema
helst þegar hátíð er í bænum og allt yfirfyllist. Þá reynir maður að
taka yfirfallið og það sem þeir vísa á mann á vaktinni. Laun eru
sanngjörn og góð ef maður er til í að taka slatta af vöktum. Ef
menn eru golfarar er hægt að vera á þessum flotta golfvelli sem
er innan bæjarmarkanna og er maður skotstund af honum hvert
sem er í bæinn. Bakaríin eru tvö og annað ber af. Það er í litlu
húsi við torgið, man ekki alveg hvað það heitir, svo er fínt gym
og sundlaug en maður er nú ekki mikið í sundi á vöktunum. Mér
leið vel á Heilsugæslunni á Akranesi og fannst mjög gott að fá
að vinna þar og mæli eindregið með því.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
Upplýsingar frá Pétri Péturssyni, yfirlækni.
Heilsugæzlustöðin er í 11/2 km fjarlægð frá hátæknisjúkrahúsi
(sem raunar sinnir ekki brjósthols- eða heilaskurðlækningum).
Samgöngur innan héraðsins eru afar góðar og eru nánast allir
vegir lagðir bundnu slitlagi. Útstöðvar eru á Grenivík í 50 km fjar-
LÆKNANEMINN
2005