Læknaneminn - 01.04.2005, Page 35
Sumarvinna í héraði
einnig verið að greiða ferðakostnað fyrir afleysingamenn. Álag á
vöktum er lítið. Það veldur því að lítið verður af grænum miðum.
Algengt er að einingafjöldi eftir mánuðinn sé nálægt 500. Vakta-
samvinna er við Ólafsfjörð um helgar. Á sumrin hefur þessi
samvinna oft verið nánarí, allt eftir því hvað afleysarar vilja sjálfir.
Þetta þýðir venjulega að fólk er á vakt þriðju hverja helgi og er
þá með bæði héruðin. Þetta er auðveld viðbót sem tvöfaldar
vaktalaunin enda þá greidd vaktalaun frá báðum héruðunum.
Það er mjög erfitt að segja til um fjölda einstaklinga sem sinnt er
á vöktum. Á venjulegum hversdagsvöktum sér maður um 1-2
en um helgar 4-5 á sólarhring. Næturútköll eru fátíð.
Umsögn unglæknis:
Upptökusvæði ca. 2500 manns og þetta er H2 stöð. Meðtalið
er Árskógssandur, Hauganes og Hrísey. Farið er í Hrísey tvisvar
í viku og fannst læknanemanum það góð tilbreyting. íbúð til
umráða ca. 60-70 fm, 2 herbergja með öllu því helsta (þvotta-
vél, sjónvarp). Vaktir eru tvískiptar en þrískiptar um helgar með
Ólafsfirði. Þannig að þriðju hverja helgi er viðkomandi með
Dalvík og Ólafsfjörð saman. Rólegt er á vöktunum, ca 2-5 hring-
ingar á vakt. Grænir teknir með en eru ekki það margir. Vaktbíll
á staðnum (Rav4), sem skiptist milli þeirra sem eru á vakt.
Heilsugæslan er vel tækjum búin með litla rannsóknastofu sem
hægt er að gera það helsta á staðnum, annars sent á FSA. Gott
aðgengi að læknum á FSA, ca 35 km frá Dalvík. Hentar mjög vel
fyrir þá sem vilja hafa það gott yfir sumarið, tilvalið fyrir fjöl-
skyldur, góð sundlaug í næsta húsi og golfvöllur á staðnum.
Heilsugæslan á Egilsstöðum
Upplýsingar frá Pétri Heimissyni, yfirlækni.
Egilsstaðalæknishérað er víðfeðmt með miðju á Egilsstöðum.
Heilbrigðisstofnunin á Egilsstöðum er ein 8 deilda Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands ( HSA ). Á Egilsstöðum eru heilsugæslu-
stöð og sjúkrahús samrekin í einu og sama húsinu. Læknar eru
hinir sömu á sjúkrahúsi og heilsugæslu og eru á vakt á báðum
stöðum í einu. Frá Stöðinni eru 110 km á þann sveitabæ sem
lengst er í burtu og 95 km að Kárahnjúkum. Landbúnaður og
þjónusta einkenna atvinnusvæðið. Einnar klst. akstur er á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Neskaupsstað og 3 klst. akstur á FSA. í
alvarlegum slysa- og veikindatilfellum er oft notað sjúkraflug ef
þörf er á hátæknisjúkrahúsi. Algengur biðtími eftir sjúkraflugvél
er 1,5-2 klst. eftir útkall. íbúafjöldi er um 3.500 + ca 1500
manns að vinna við Kárahnjúkverkefnið. Fjórir (e.t.v. fimm á
komandi sumri) læknar að störfum ef allt er eðlilegt. Alltaf 2
læknar á vakt, þ.e. einn á vakt og annar á bakvakt. Læknanemi
tekur þátt í vakt en ekkí bakvakt. Lækni á bakvakt er ætlað að
vera mjög aðgengilegur, sérstaklega fyrir læknanema sem tekur
vakt. Læknir á bakvakt er alltaf með fullt lækningaleyfi. Stofnunin
útvegar húsnæði sem reynt er að sníða að einstaklingsbundnum
þörfum. Húsnæðið er leigt lækninum á mjög sanngjörnum
kjörum. Greitt er fyrir græna seðla á vakt, þ.e. utan dagvinnu-
tíma. Að sumri til er almennt mikið að gera á vöktum vegna
mikils ferðamannastraums.
Umsögn unglæknis:
Fyrstu sporin sem ég tók í heilsugæslu voru á Egilsstöðum um
jólin þegar ég var á fimmta ári eða síðla árs 2002. Þá strax kunni
ég vel við staðinn og vinnuumhverfið. Ég fór aftur þegar ég var í
námi á 6. ári en í millitíðinni hafði ég verið á Heilsugæslunni í
Keflavík. Það lá því ágætlega við að taka kandidatsskylduna þar
enda hafði ég kunnað vel við mig á staðnum og þekkti til
aðstæðna. Því var ég þar við störf í rúma 3 mánuði sumarið
2004. Vinnuálagið getur verið nokkuð mikið og er áberandi
meira að gera yfir sumarið vegna ferðamanna. Þá daga sem
maður er á vakt er svokölluð flýtivakt eftir hádegi og þá bókað á
10 min fresti. Erindin eru þá misþung, allt frá einföldum málum
og svo þurfti að sinna stærri útköllum ef einhver voru. Þegar
mest var þá voru allt að 35-40 samskipti með símtölum yfir
dagvinnuna en yfirleitt var það minna. Aðra daga var hefðbundið
stofuálag sem var sanngjarnt og réði maður nokkuð bókunum
sjálfur þá daga. Vaktirnar voru nokkuð misjafnar, yfirleitt nokkrar
komur fram að kvöldmat og svo símtöl. Almennt má gera ráð
fyrir að sofa yfir næturnar en það er þó ekki alltaf og er nokkur
munur á vetri og sumri og þá mun fjörugra yfir sumarið. Vakta-
fjöldi er nokkuð mismunandi og fer eftir mönnun, allt frá 2. hvern
dag og svo sjaldnar. Aðstaðan á staðnum er ágæt. Manni er
útvegað húsnæði sem í sjálfu sér er ekki ríkulega útbúið en
stenst ábyggilega samanburð annars staðar á landinu. Stöðin er
með 4-5 læknum og einnig er lítið sjúkrahús sem er almenn
hjúkrunardeild en hægt er að leggja þar inn og meðhöndla ef
aðstæður leyfa. Annars er Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaups-
stað næsti staður en þangað er um 1 klst. akstur á löglegum
hraða. Mikið er skipt við FSA og þá oft notað sjúkraflug en einnig
er farið með sjúklinga til Reykjavíkur ef svo ber undir. Það er
röntgenaðstaða og meinatæknir á staðnum en þú hefur aðeins
aðgang að almennum blóðprufum á dagvinnu en röntgenmyndir
tekur maður sjálfur. Almennt er vinnuaðstaðan góð og starfs-
fólkið hjálplegt. Allir sérfræðingarnir á staðnum eru mjög hjálp-
legir og kennsluvænir og vel rútineraðir í því að hafa kandidata á
staðnum. Á vöktum er alltaf sérfræðingur á bakvakt með 2ja
tíma útkallsfrest en nær undantekningalaust eru þeir á staðnum
og því ekki langt undan. Starfið er mjög fjölbreytt enda svæðið
stórt og nokkur fjöldi á því sem margfaldast yfir sumarið. Um er
að ræða almenn heilsugæslustörf en mikið er af smáslysum,
sérstaklega yfir sumarið. Einnig þarf að sinna öllum bráðamálum
sem koma upp í héraðinu og eins og áður segir er héraðið stórt
og oft langt að fara. Launin eru sanngjörn en fara eftir vöktum
og hversu mikið er að gera á þeim. Vaktakaupið er almennt
nokkuð gott enda er maður bæði á vakt á heilsugæslunni og
sjúkrahúsinu á sama tíma. Segja má að flest af því sem maður
þarfnast sé á svæðinu, tam. ÁTVR, Bónus og BT. Veitingahúsa-
menningin er bæríleg en það gengur þó ekki að borða úti hvert
kvöld. Almennt eru flatbökur vondar á Egilsstöðum! Fyrir þá sem
hafa áhuga er nokkuð um veiði og hægt að fara á hreindýr ef
góður fyrirvari er hafður á. Sæmilegur golfvöllur er á staðnum
sem er sérstaklega góður fyir byrjendur en umferðin um hann er
frekar lítil og enginn að reka á eftir manni ólíkt því sem er hér í
bænum. Þess fyrir utan býður svæðið upp á ýmsa skemmtilega
ferðamöguleika sem vert er að athuga enda á maður ekki leið
LÆKNANEMINN
2005
33