Læknaneminn - 01.04.2005, Side 36
Sumarvinna í héraði
þarna um svo oft þess fyrir utan. Að mínu mati er staðurinn mjög
heppilegur til þess að vinna í heilsugæslu. Þar skiptir mestu
hversu fjölbreytt viðfangsefnin eru og nálægð við sérfræðingana
og ef fólk er almennt tilbúið til þess að vera út á landi í heilsu-
gæslu að þá er þetta ábyggilega einn af betri stöðunum til að
vera á.
Heilsugæslan á Eskifirði
Upplýsingar frá Hannesi Sigmarssyni, yfirlaekni.
Eskifjarðarlæknishérað nær frá Vattanesi að Gerpi, tekur yfir
hluta Fáskrúðsfjarðahrepps og tvö þéttbýli í Fjarðabyggð, Eski-
fjörð og Reyðarfjörð. Búist er við miklum umsvifum og mann-
fjölda á svæðinu næstu tvö ár á meðan á uppbyggingu stóriðju
stendur og Ijóst er að íbúum fjölgar umtalsvert á svæði heilsu-
gæslustöðvanna á Eskifirði og á Reyðarfirði, en báðar stöðv-
arnar eru H1 stöð tímabundið. Núna eru 2200-2300 manns á
svæðinu með íbúunum sem eru 1700. f september á þessu ári
er gert ráð fyrir að fólksfjöldinn verði samtals 3200 manns. Tveir
yfirlæknar eru á svæðinu, einn á Reyðarfirði og annar á Eskifirði
og eru þeir með samstarf sín á milli. Ætlast er til þess að álagi
vegna álversframkvæmda dreifist jafnt á báða læknana. Stefnt
er á að ráða þriðja lækninn á svæðið en óljóst er hvenær hann
mun byrja. Vaktir eru tvískiptar, G1 og G2. G1 alla daga og G2
alla virka daga. í stuttu máli má segja að lækningastarf sé mjög
fjölbreytt á Eskifirði og á Reyðarfirði og hafa þeir ungu læknar
sem hér hafa komið og leyst af og einnig reyndari læknar tjáð sig
um það. Telja þeir samvinnu við hjúkrunarfræðingatil fyrirmyndar
og eru verulega ánægðir með það samstarf sem skapast við
Ijósmóður og hjúkrunarfræðinga. Þá tala afleysingalæknar um
að hér sé fullmikið að gera. Læknabústaður verður á Eskifirði og
væntanlega einnig nýr bústaður á Reyðarfirði. Hvor læknir hefur
bíl til umráða. Heilsugæslustöðvarnar á Eskifirði og Reyðarfirði
hafa löngum notið mikillar velvildar einstaklinga, félagasamtaka
og stofnanna á Austurlandi sem gefið hafa stóran hluta af tækja-
kosti bæði á Eskifirði og Reyðarfirði. Telja má að báðar stöðv-
arnar séu nokkuð vel tækjum búnar. Röntgen og augnsmásjá
eru á Eskifirði.
Umsögn unglæknis:
Ég var á Eskifirði/Reyðarfirði yfir jól og áramót 2003/2004. Þetta
eru tvær stöðvar sem eru mannaðar af einum lækni (ættu klár-
lega að vera tveir). Það var mikið að gera, móttaka var oftast til
18 á daginn og töluvert á vaktinni. Ég bjó í einbýlishúsi, sem er
staðsett á Reyðarfirði, en þar sem að talsvert meira er að gera
á Eskifirði er mikið af akstri þarna á milli. Vinnuaðstaða, starfs-
fólk og mórall þarna er góður. Þetta er heilsugæsla með þeirri
breidd viðfangsefna sem þeim fylgja, einnig er þarna dvalar-
heimili sem maður kíkir á 2-3 í viku. Það er tiltölulega stutt á
Sjúkrahúsið á Neskaupstað sem er þægilegt. Laun eru skv.
taxta en vegna þess hve mikið er að gera verður lokatalan
sæmileg. Ég hef trúlega skekkta mynd af því að vera þarna. Mér
fannst ég eyða jólunum þarna, meira og minna í Skoda-station
keyrandi á milli fjarða, í blindhríð. Aðstaðan er hinsvegar góð og
yfirlæknir og samstarfsfólk hið besta.
Heilsugæslan á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Upplýsingar frá Hjördísi Garðarsdóttur, rekstrarstjóra.
Fáskrúðsfjörður liggur sunnan við Reyðarfjörð og Stöðvarfjörður
er þar næst fyrir sunnan. Meðaltími á sjúkrahúsið á Neskaup-
stað er nú ca. 1,20 klst en verður 40 mínútur eftir að jarðgöng
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar verða tekin í notkun (
ágúst 2005. Um ferð á hátæknisjúkrahús gildir það að pantað er
sjúkraflug frá Akureyri sem kemur þá á flugvöllinn á Egilsstöðum
en þangað er klukkustundar ferð í dag en styttist í 30 mín þegar
göngin eru komin í gagnið. Tæplega 1.000 manns þúa á svæði
heilsugæslunnar. Einn læknir þjónar svæðinu og er á vakt allan
sólarhringinn. Afleysingalæknir býr í læknisbústaðnum sem er
ágætur og það er engin leiga. Hann fær bíl til umráða sem
tilheyrir læknishéraðinu. Greitt er fyrir flugferðir til og frá
staðnum. Grænir miðar eru greiddir eftir að dagvinnu lýkur kl.
17:00. Að mati heilsugæslulæknis er vakt yfirleitt róleg.
Umsögn unglæknis:
Unglæknir var á staðnum sumarið 2002. Alltaf var nóg að gera
á stofunni en rólegt á vaktinni. Venjulega var einn contact á vakt-
inni, símtal eða samráðskvaðning. Síðan sinnir maður líka hjúkr-
unarheimili. Ekki hægt að kvarta yfir of miklu álagi í svona törn,
en það er ekkert frí. Þetta er ágætlega búin stöð með öllum
helstu græjunum, s.s. röntgen, stuðtækl og sjúkrabíl. Ég var í
einbýlishúsi með alls kyns æfingagræjum s.s. hlaupabretti, stóru
sjónvarpi og fullt af DVD. Grill úti á svölum. Fínn vaktbíll sem
maður notar sem sinn eiginn. Maður er eini læknirinn á staðnum
og alltaf á vakt og ekki með bakvakt. Starfsfólkið er annars fínt
og góðir hjúkrunarfræðingar bæði á elliheimilinu og á stöðinni.
Þarna er náttúrulega ekki margt fólk en það dúkkar ýmislegt
upp. Ég myndi segja að heilsugæsla úti á landi sé almennt fjöl-
breytt starf. Maður verður að bjarga sér. Laun voru ágæt. Ég
held að þau séu sanngjörn miðað við að þarna fer fólk sem
ekkert kann. Það er lítið hægt að bregða sér af bæ, en þó er
hægt að skella sér til Egilsstaða án þess að það sé mikið mál.
Þar er allt til alls, þ.e. Bónus og veitingastaðir. Fín sundlaug á
Stöðvarfirði sem maður nýtti sér grimmt. Svo er mokveiði þarna
í firðinum (bryggjunni) þegar skipin koma til að landa. Það er líka
gaman að fara út að borða á Breiðdalsvík og fleiri litlum sveita-
hótelum þarna í kring. Ég get vel mælt með þessu en þetta er
mjög afskekkt. Fólk skýst ekki í heimsókn því það tekur a.m.k.
9 klst að keyra og þetta er krókur útfrá hringveginum.
Heilsugæslan á Grundarfirði
Upplýsingar frá Erlingi Huga Kristvinssyni, yfirlækni.
Heilsugæslustöð Grundarfjarðar er staðsett í Grundarfirði, norð-
anvert á Snæfellsnesinu miðju. Það er um 90 mín. akstur til
Akraness sem er það sjúkrahús sem þjónar okkur hvað mest.
Þurfi maður til Reykjavíkur þá eru það um 2 tímar. Það er minna
sjúkrahús í Stykkishólmi sem hægt er að leggja inn í hvíldarinn-
lagnir og til að koma að baksjúklingum í þjálfun. Bráða lyfjameð-
ferðir og því um líkt er ekki að ræða. Svæðið nær yfir sveitafé-
lagið Grundarfjörð, er ekki stórt, u.þ.b. 10 km radíus í allar áttir,
34
LÆKNANEMINN
2005