Læknaneminn - 01.04.2005, Qupperneq 37
Sumarvinna í héraði
nær frá Hraunsfirði í austri til Búlandshöfða í vestrí. íbúafjöldi er
um 950 manns. Einn læknir á vakt, þetta er H1 stöð. Ekki nein
bakvakt. Það er þó stutt til Ólafsvíkur og Stykkishólms og hafa
læknar þar litið eftir héraðinu þurfi læknir að yfirgefa svæðið í
sjúkraflutning. Fyrir stutta afleysingu (1-2 mán.) hefur ekki verið
rukkuð húsaleiga en það er samnings atriði. Annars er húsa-
leigan 35.000 á mánuði sé um langtíma ráðningu að ræð. Hiti
og rafmagn er um 10-12.000 á mánuði. Hér er læknisbústaður,
175 m2 með bílskúr, bíll fylgir. Þannig góð aðstaða fyrir fjöl-
skyldufólk. Ferðir eru greiddar fyrir afleysingarlækninn til og frá
staðnum. Grænir miðar sem falla til utan dagvinnutíma
(17:00-09:00) fær maður greidda. Rukka þarf heilsugæsluna
beint. Allar vaktir eru innifaldar, ákveðin fjöldi yfirvinnu tíma er fyrir
að sinna bæði Kvíabryggju og dvalarheimilinu Fellaskjól. Á
vöktum er yfirleitt rólegt. Símtöl eru u.þ.b. 2 - 3 á vakt. Vitjanir
virka daga eru u.þ.b. ein annan hvern dag og 0-8 um helgar,
þannig að staðurinn er rólegur. Alls eru um 25-35 ferðir sjúkra-
bíls á ári og fer læknir með eftir þörfum. Það eru alltaf 2 sjúkra-
flutningsmenn með í hverri ferð. Staðan er yfirlæknisstaða með
möguleika á helgunarálagi enda sinni læknir ekki öðru launuðu
starfi samtímis.
Heilbrigðisstofnunin Hólmavík
Upplýsingar frá Jóhanni Birni Arngrímssyni, framkvæmda-
stjóra.
Frá Reykjavík til Hólmavíkur eru 273 km í gegnum Hvalfjarðar-
göng. Starfssvæðið nær yfir Broddaneshrepp, Hólmavíkur-
hrepp, Kaldrananeshrepp og Árneshrepp og vinnuálagið ekki
mjög mikið. Vinnuaðstaðan var góð og ágætur læknisbústaður.
Stofnunin skiptist í heilsugæslusvið og sjúkrasvið. Heilsugæslu-
sviðið er H1 stöð. Það er H stöð í Norðurfirði með móttöku á 2ja
vikna fresti og einnig sjúklingamóttaka á Drangsnesi á 3ja vikna
fresti yfir vetrarmánuðina. Næsta sjúkrahús er á Akranesi í 237
km fjarlægð. Sjúkraflutningar eru með sjúkrabifreið sem er á
staðnum eða sjúkraflugi, þá oftast til Reykjavíkur. Sjúkraflutn-
ingar geta verið frá 2 klst. eða lengur eftir aðstæðum. Á sjúkra-
sviði eru 12 hjúkrunarrúm og eitt bráðarúm. (búar læknishér-
aðsins eru um 720. Húsnæði vaktlæknis er sérfræðingsíbúð
sem er áföst heilsugæslu, ca 28 fm. Einnig er læknisbústaður
fyrir fastráðinn lækni. Bifreið til afnota fyrir lækni í vitjanir, en ekki
til einkaafnota. Ekki hafa verið sérstök fríðindi og ekki hefur verið
greitt fyrir ferðir til og frá staðnum. Greitt hefur verið fyrir græna
seðla á heilsugæslusviði. Læknir er á gæsluvakt 1,24 tíma vakt,
allan ráðningartímann. Fjöldi tilfella eftir dagvinnu er á bilinu 0-6.
Umsögn unglæknis:
Unglæknirinn var á staðnum jólin 2001. Vinnuumhverfið var
fremur afslappað sérfræðingarnir voru vinveittir og starfsfólkið
almennt fínt. Það var allgóður fjölbreytileiki í dagsverkunum.
Launin voru sanngjörn engin önnur fríðindi voru fyrir hendi. Golf-
völlur og sundlaug á staðnum. Almennt séð var prýðilegt að
vinna á Hólmavík.
Heilsugæslan á Hveragerði
Upplýsingar frá Herdísi Þórðardóttur, framkvæmdastjóra.
Heilsugæslan í Hveragerði þjónar bænum sjálfum og dreifbýli
Ölfushrepps. Um 2.450 manns búa á þessu svæði. Haustið
2004 voru vaktsvæði Hveragerðis, Selfoss og Ölfus sameinuð
og sinna um 10 læknar vaktþjónustu. Nær það svæði frá
Klaustri að Þorlákshöfn. Frá 16 til 20 eru tveir læknar á vakt í
móttöku. Frá 20 til 8 næsta morgun er einn læknir á vakt og
annar á bakvakt. Grænir miðar eru á vöktum. Gistiaðstaða er á
heilsugæslunni. Mikið álag er á hverri vakt og hefur það lítið
breyst eftir sameininguna. Læknanemi í afleysingu á möguleika
á að komast inn í áðurnefnt vaktkerfi. Næsta sjúkrahús er í 10
mínútna akstursfjarlægð (Sjúkrahús Suðurlands) og bílferð til
Reykjavíkur tekur rúman hálftíma.
Umsögn unglæknis:
Þegar læknaneminn var þarna náði svæðið yfir Hveragerði,
Ölfus og Þorlákshöfn. Hann keyrði á milli þegar um dagvinnu var
að ræða. Hann gisti á vöktunum á heilsugæslunni. Á vöktunum
var mismikið að gera. Fyrst um sumarið voru um 15 til 20 komur
á vaktinni þegar mest var að gera. Mikið er um hestamenn á
svæðinu og er ekki óalgengt að þeir detti og slasi sig. Bílastyrkur
var greiddur. Þegar líða tók á sumar var minna að gera á vökt-
unum. Þá var legið í sundlauginni og spókað sig í sólinni uns
vaktsíminn hringdi.
Heilsugæslan á Höfn
Upplýsingar frá Ragnhildi Magnúsdóttur, yfirlækni.
Höfn er stórt hérað, sem nær ca 160km í vestur, tæpa 100km í
austur og álíka langt upp á Vatnajökul. Við sendum mest til
Reykjavíkur og þá með sjúkraflugi. Það tekur 1-1.5 tíma að fá
sjúkravél frá Akureyri og er um klukkutímaflug til Reykjavíkur.
Þyrlan er kannski klukkutímann til okkar líka. Landfræðilega er
Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað álíka langt frá en
samgöngur þangað verri svo við sendum fyrst og fremst til
Reykjavíkur og til Akureyrar. Við sendum nánast aldrei sjúkrabíl-
inn svona langt, en fólk keyrir mikið á eigin vegum.
Það búa 2500 manns í öllu héraðinu, u.þ.b. 1700 á Höfn en
á sumrin eykst umferð verulega vegna ferðamanna, bæði
innlendra og erlendra. Heilsugæslulæknir hér sinnir líka hjúkrun-
arheimilinu og þar eru bráðasjúkrarými. Á stofutíma er nóg að
gera fyrir tvo lækna þ.m.t. stofugangar á deild, ungbarnaeftirlit,
og önnur vinna. Hér er að staðaldri reynt að hafa tvo lækna, einn
á vakt og annan á bakvakt.
Við höfum útvegað húsnæði fyrir afleysara og er ekki greidd
leiga í styttri afleysingum, svo ræðst það af fjölskyldustærð hvort
húsnæðið hentar. Það hefur verið greitt fyrir ferðir. Bíll fylgir vakt-
inni en ekki bakvaktinni. Greitt er fyrir unnin verk á vakttíma, að
meðaltali kannski 700-800 einingar í mánuði á tvískiptri vakt.
Síðan er greitt fyrir vottorð. Oftast eru tvískiptar vaktir og svo
gæsluvakt 2 eða bakvakt þess á milli. Það fer eftir hversu
reyndur læknir er á móti manni, hversu langt maður leyfir sér að
fara á bakvaktinni. Álagið er mjög breytilegt og ekki hægt að
LÆKNANEMINN
2005
35