Læknaneminn - 01.04.2005, Qupperneq 38
Sumarvinna í héraði
segja til um meðalfjölda sjúklinga á vakt. Það getur verið mjög
rólegt (1 -2 sjúkl á vakt) en svo ef eitthvað er tekur það heilmikla
vinnu því að hér er engin vakt hjúkrunarfólks eða rannsókn, því
sinnum við sjálf. Hér er Ijósmóðir og er læknir viðstaddur
fæðingarnar.
Heilbrigðisstofnun ísafjarðar
Upplýsingar frá Þorsteini Jóhannessyni, yfirlækni.
Heilsugæslan og Fjórðungssjúkrahúsið eru staðsett á ísafirði.
Næsta sjúkrahús er í Reykjavík, flugtími 45mín, keyrslutími 5klst.
Reynt er að sinna öllum tilfellum sem deildarskipt sjúkrahús
ræður við en annað fer langoftast til Reykjavíkur. Heilsugæslu-
stöð er á ísafirði og Flateyri en það eru heilsugæslusel (HO) í
Súðavík, á Suðureyri og Þingeyri. Hjúkrunarkonur er búsettar á
Flateyri og Þingeyri og starfa á stöðvunum þar. ( ísafjarðarbæ
búa um 4300 íbúar og sinnir heilsugæslan þeim auk íbúum
Súðavíkurhrepps en íbúar hans eru 230. Fjórðungssjúkrahúsið
er svo aftur með stærra upptökusvæði þar sem Bolungarvík
telst með en íbúar þar eru um 1000. Suðurfirðirnir nota Fjórð-
ungssjúkrahúsið eilítíð á sumrin. Á heilsugæslunni starfa nú þrír
læknar og sinna einnig Suðureyri 1/2 dag í viku, Súðavík 1/2
dag í viku og Þingeyri 1/2 dag í viku. Einnig er heilsugæslulæknir
búsettur á Flateyri sem sinnir þeim stað og fer 1/2 dag í viku til
Þingeyrar. Við Fjórðungssjúkrahúsið eru starfandi tveir læknar;
lyf- og skurðlæknir. Heilsugæslulæknar skipta með sér vöktum
sem eru tvær, þ.e. forvakt sem er alltaf til taks og bakvakt.
Heilsugæslan er með leiguíbúðir á sínum snærum, sem eru full-
búnar húsgögnum. Flugfar er borgað fyrir lækna „heiman og
heim“. Vaktlæknir á hverjum tíma hefur vaktbíl til umráða. Vakt-
agreiðslur eru miðaðar við sjúkrahústaxta og því er ekki greitt
fyrir Græna seðla. Ekki eru til neinar tölur um fjölda sjúklinga sem
sinna þarf á vakt, oftast er lítill erill á næturnar en oft nóg að gera
fram yfir „kvöldmat".
Umsögn unglæknis;
Unglæknir var á staðnum sumarið 2004. Vaktafjöldi var pass-
legur; tvær forvaktir og tvær bakvaktir í viku. Mjög lítið að gera á
bakvöktum, aðeins kallað í hana til aðstoðar við bráðaaðgerðir
(botnlangar etc.) eða til að fara með í sjúkraflug. Persónulega var
aldrei kallað á mig allt sumarið. Héraðið er mátulega vel uppalið,
mikið af ferðamönnum um sumar, talsvert að gera um helgar en
stundum ekki neitt. Aðstaða á heilsgæslu er þægileg, hjúkkur
sjá að mestu um ungbarna- og mæðravernd. Meina/Rtg-
tæknar sjá um ALL4R blóðprufur og röntgenmyndir, og eru á
vakt allan sólarhringinn og koma glaðir inn um nótt til að taka
mynd eða blóðprufur ef vaktlæknir telur þörf vera á. Einnig er
vakthjúkka tíl aðstoðar á „Slysó“, ef maður skyldi lítið kunna á
umbúðir o.s.frv. Þarna eru glæsilegar nýjar íbúðir á vegum
sjúkrahússins, allt til alls og allar græjur í eldhúsinu (espresso vél
o.s.frv.). Tveir mjög góðir sérfræðingar eru á staðnum; yfirlækn-
irinn, sem er skurðlæknir, og svo meltingasérfræðingur, nýfluttur
frá USA. Báðir mjög samviskusamir og vilja láta hringja í sig.
Hjúkrunarfræðingar eru góðir, yfirhjúkkan er svæfingahjúkka og
karlmaður. 1 -2 sinnum í viku er utanbæjarheilsugæslum sinnt og
er það skemmtileg tilbreyting (Súðavík(IOmín), Suðureyri, Flat-
eyri, Þingeyri(40mín)). Launin eru föst, engir grænir, en á móti
kemur að vaktakaupið er þeim mun hærra og t.a.m. mætti
hugsa bakvaktarkaupið sem launauppbót þar sem (lítið sem)
ekkert álag er á þeim vöktum. Miðað við álag sem var sumarið
2004 græddi ég á því að fá föst laun en ekki laun miðað við
vinnu (s.s. græna miða). Þarna er hægt að fara á kayak, í
sjóferðir og stutt er á Hornstrandir. Golfvöllur á ísafirði og í
Bolungarvík (spítalamót í ágúst). Aðeins innisundlaug á ísafirði
en flott útilaug á Suðureyri. Bakvaktin er með jeppa og má
skreppa upp á fjöll (útkallstími um 2 klst.). Það var gott veður sl.
sumar.
Heilsugæslan á Laugarási
Upplýsingar frá Gylfa Haraldssyni, yfirlækni.
Svæðið nær austur frá Þjórsá og vestur að Sogi. Þetta eru í raun
gömlu sex hrepparnir í sveitum Árnessýslu. Rúmur hálftími er að
Sjúkrahúsi suðurlands og rúmur klukkutími á löglegum hraða til
Reykjavíkur. Á svæðinu búa 2.860 manns auk sumarhúsa en
þau eru 4.600 talsins. Þegar mikið er um að vera getur fjöldi
sumarhúsagesta náð 10.000 og fer helmingur allrar helgarvinnu
í sumarhúsafólk. Tveir heilsugæslulæknar vinna saman og
skipta með sér vöktum. Þeir sinna heilsugæslu við Laugarvatn
tvo eftirmiðdaga í viku. Bakvakt er til staðar fyrir læknanema
nema þegar læknarnir eru báðir í fríi. íbúð er í boði gegn vægri
leigu og ferðaþeningur er greiddur til og frá Reykjvík. Heilsu-
gæslan er með tvo bíla og fylgir annar vaktinni. Grænir miðar eru
greiddir og er nóg af vöktum í boði. Álag á vöktum er misjafnt
og mest um helgar, 5-10 manns þegar mest er.
Heilsugæslan á Ólafsfirði
Upplýsingar frá Ásgeiri H. Bjarnasyni, yfirlækni.
Ólafsfjarðarbær á Tröllaskaga í Eyjafjarðarsýslu. Héraðið
samanstendur af bæjarbúum Ólafsfjarðar sem eru 990 talsins.
Hjúkrunar og öldrunarheimili er sambyggt heilsugæslunni og er
vaktasamvinna með Dalvík eftir samkomulagi. Sjúkrahúsið á
Akureyri (FSA) er í 40 mínútna akstursfjarlægð. Afleysingalæknir
fær þriggja herbergja íbúð frítt. í Ólafsfirði er góður níu holu golf-
völlur og er hægt að vera í golfi á vaktinni. Ferðir til og frá Ólafs-
firði eru greiddar og á staðnum er vel útbúinn vaktbíll. Grænir
miðar eru greiddir í útköllum á vaktinni og einnig eru greiðslur
fyrir röntgen. í boði eru vaktir alla daga ef vill en annars samvakt
með Dalvík eftir samkomulagi og þá sérstaklega um helgar. Álag
á vöktum er mjög lítið.
36
LÆKNANEMINN
2005