Læknaneminn - 01.04.2005, Side 40

Læknaneminn - 01.04.2005, Side 40
Sumarvinna í héraði Heilsugæsla Rangárþings Upplýsingar frá Þóri B. Kolbeinssyni, lækni. Heilsugæsla Rangárþings er nú orðin hluti af Heilbrigðisstofnun Suðurlands og er staðsett í Rangárvallasýslu. Þar eru 2 heilsu- gæslustöðar að Hellu og Hvolsvelli. 2 dvalarheimili aldraðra eru á svæðinu, Kirkjuhvoll á Hvolsvelli sem hefur um 35 öldrunar- pláss og Lundur á Hellu er með 25 hjúkrunarpláss og 8 dvalar- heimilispláss. Næsta sjúkrahús er á Selfossi, 35 km frá Hellu, rúmlega 20 mín akstur. Sé þörf á hátæknisjúkrahúsi er farið á LSH, 100km frá Hellu. íbúafjöldi á svæðinu er 3100 manns. Mikið er þó af heilsársbústöðum svo mikill fjöldi getur dvalist á svæðinu auk síðan ferðamanna. Vaktsvæðið í Rangárþingi er stórt. Það nær frá Þjórsá að vestan og rúmlega 90 km í austur- átt að Holtsós. Það nær inn á mitt hálendið og er sölu- og gisti- staðurinn Nýidalur á Sprengisandsleið um 220 km inn í landi og að austanverðu nær svæðið að Vatnajökli við Jökulheima. Á hálendinu eru fjölmargir vinsælir ferðamannastaðir sem sinnt er eins og Þórisvatn, Veiðivötn, Landmannalaugar, Hekla, „Lauga- vegurinn", Emstruleið og Þórsmörk. Fimmvörðuháls er á mótum vaktsvæðis okkar og heilsugæslustöðvarinnar í Vík í Mýrdal sem tekur við austan við okkur. Aðalþjónustan er við þéttbýlissvæðin en fyrir kemur að sinna þarf útköllum á hálendissvæðin og eru þau metin í samráði við þyrlulækna. Þrjár læknisstöður eru við stöðvarnar, sem stendur eru 2 setnar til langtíma af sérfræð- ingum. Vaktlæknir er einn en náin samvinna er meðal starfandi lækna. Læknar sem koma í afleysingar eða skammtímastöður hafa haft afnot af vaktíbúð í heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli; svefnherbergi, stofa, eldunaraðstaða og bað með sturtu. Sé þörf á stærra húsnæði hefur verið reynt að hjálpa við útvegun þess og hefur húsnæði verið frítt. Vaktbíll er til afnota en til að njóta svæðisins og þar eð stutt fjarlægð er á höfuðborgarsvæðið er gott að hafa eigið ökutæki. Laun eru samkvæmt kjarasamn- ingum. Auk fastalauna, vaktlauna og grænna seðla á vöktum og vottorð, er greitt sérstaklega fyrir þjónustu við dvalarheimili. Greiddar eru gæsluvakt 1 og 2 þ.e. vaktlækni og annar læknir á bakvakt. Greitt samkvæmt taxta heilsugæslustöðva. Vaktir eru þrískiptar en oft eftirláta fastalæknar fleiri vaktir yfir til afleysinga- lækna. Reiknað er með að læknanemar hafi ætíð reyndan lækni á bakvið sig. Álag á vöktum er mismunandi. Að sumarlagi eru útköll 2-6 að meðaltali á virkum dögum en 10-20 um helgar. Flestir koma á stöðvarnar til viðtals. Umsögn unglæknis: Ég skellti mér í hérað í 3 mánuði sumarið 2004. Fyrir valinu varð Heilsugæsla Rangárþings á Hvolsvelli og Hellu. Þetta er stórt hérað sem teygir sig í Landmannalaugar og inni í því er m.a. Þórsmörk, Galtalækur og Bakkaflugvöllur, sem getur kippt í um Verslunarmannahelgina. Einnig er mikil umferð um þjóðveginn og hvað varðar útköll um helgar er sumarbústaðabyggðin ansi drjúg. Auðvitað er oft fjör á vöktunum en það er alltaf möguleiki á að hringja í bakvaktina ef í harðbakkann slær. Einnig hringdi ég stundum á LSH og talaði við sérfræðing á vakt og voru þeir undantekningarlaust hjálplegir. Ég vann nær eingöngu á heilsu- gæslustöðinni á Hvolsvelli en einnig var ég 2 vikur á Hellu. Ég er því fróðari um Hvolsvöll eins og gefur að skilja og einbeiti mér því að þeim bæ í þessum pistli. Ég var þar í lítilli íbúð sem er í heilsu- gæsluhúsinu, opnaði einar dyr á morgnana og var komin í vinn- una! Þetta er ágætis aðstaða og ég hafði allt sem ég þurfti. Vakt- bíll er til afnota á vöktunum og til að sinna útköllum á dagvinnu- tíma. Starfsfólkið er allt mjög almennilegt. Guðmundur læknir er duglegur að leiðbeina og einnig er Arndís hjúkrunarfræðingur hjálpleg. Vinnan ertöluvert fjölbreytt, svona eins og dæmigert er í heimilislækningunum. Oft eru auðvitað tíu manns með kvef á dagsskránni en inn á milli koma svo meira spennandi tilfelli. Maður tekur sjálfur blóðprufur og röntgenmyndir. Vaktafrí eru 2 dagar í mánuði og lítið mál að fá aukavaktir. Launin eru fín og var ég amk. ánægð með sumarhýruna þetta árið. Það er flott sund- laug á Hvolsvelli og önnur ágæt á Hellu. Fyrir golfarana er Strandavöllurinn náttúrulega frábær og menn verða ekki sviknir af honum. Einnig er hægt að skella sér í líkamsræktarstöð sem er með fá en mjög nothæf tæki. Það sem ég er ekkert fyrir að plaffa niður fiðurfé þá var ég ekkert að díla við bændurna um að fá að komast í gæs hjá þeim en mér skilst að það sé ekki mikið mál. Ég var ( það heila tekið mjög ánægð með dvölina á Hellu og Hvolsvelli. Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Upplýsingar frá Erni Ragnarssyni, yfirlækni. Sauðárkrókur stendur nokkuð miðsvæðis í Skagafirði. Næsta sjúkrahús er FSA og er um 1 klst akstur þangað með sjúkrabíl. Ef þarf að fara til Reykjavíkur með sjúkling er yfirleitt farið með sjúkraflugi. Heilbrigðisstofnunin innifelur bæði heilsugæslu og sjúkrahús með lítilli sjúkradeild auk hjúkrunarheimilis. Læknar sinna allri stofnuninni á vöktum. Upptökusvæðið er allur Skaga- fjörður nema Fljót sem eru við austan- og norðanverðan fjörð- inn. íbúar eru um 4500. Þarna starfa fjórir heilsugæslulæknar, einn lyflæknir og einn geðlæknir. Auk þess koma yfir vetrartím- ann skurðlæknar frá FSA og eru hér í 1-5 daga hver (alm.skurð- læknir, þvagfæraskurðlæknir, æðaskurðlæknir, bæklunarlæknir, kvensjúkdómalæknir). Þá koma nokkrir sérfræðingar af og til og eru með móttöku (augn-, HNE-, húð-, tauga-, barna-, melting- arfæra- og öldrunarlæknir). Einn læknir er á gæsluvakt og annar á bakvakt (gæsluvakt I og II). Skurðlæknar eru á bakvakt þegar þeir eru til staðar. Húsnæði er frítt og útvegað af stofnuninni. Ef fjölskylda fylgir með er að sjálfsögðu tekið tillit til þess. Vaktbíll er til staðar til notkunar fyrir vakthafandi lækni. Greitt er fyrir ferðir til og frá staðnum, flug eða fast gjald ef ferðast er á eigin bíl. Greitt er fyrir græna miða á vöktum. Undanfarin sumur hafa afleysingalæknar verið að taka 2-3ju hverja vakt. Vaktir skiptast milli þeirra sem eru í vinnu hverju sinni en heimamenn hafa verið viljugir að láta þær eftir yngra fólki. Það má því segja að hægt sé að fá eins margar vaktir og menn vilja. Mjög mismunandi álag er á vöktum en á vakt virkan dag (16-08) koma ca 2-3 í skoðun og auk þess er eitthvað af símtölum. Einnig þarf að sinna sjúkra- og hjúkrun- ardeild. Um helgar koma ca 15 (10-20) auk símtala og deilda- vinnu. LÆKNANEMINN 2005
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.