Læknaneminn - 01.04.2005, Side 41
Sumarvínna í héraði
Umsögn unglæknis:
Unglæknir var á staðnum sumarið 2004. Vinnuálag var í lagi og
hæfilegt. Oftast var nóg fyrir stafni yfir daginn en vaktirnar voru
aftur á móti rólegar. Vinnuaðstaðan var frábær í alla staði. Gisti-
aðstaða var í boði og var hún ágæt. Það var gott starfsfólk á
öllum deildum og einnig gott aðgengi að sérfræðingum. Starfið
var sem slíkt nokkuð fjölbreytt, bæði almenn heilsugæsla ásamt
slysalækningum og lyflækningadeild. Launin voru góð.
Heilsugæslan á Seyðisfirði
Upplýsingar frá Ólafi Sveinbjörnssyni, yfirlækni.
Seyðisfjörður er í Norður Múlasýslu milli Loðmundarfjarðar og
Mjóafjarðar. Sjúkrahúsið er í Norðfirði og tekur aksturinn rúma
klukkustund. Egilsstaðir eru í 30 mínútna akstursfjarlægð og
tekur sjúkraflug þaðan um klukkustund. Akureyri er svo í 3 og V2
klukkustundar fjarlægðar. Á Seyðisfirði búa 700 manns og sinna
tveir sérfræðingar í heimilislækningum heilsugæslunni. Sjúkra-
hús á staðnum er sambyggt öldrunarheimili þar sem er deild fyrir
heilabilaða. Afleysingalæknir fær afnot af íbúð án kostnaðar
ásamt því sem heilsugæslan greiðir fyrir flug. Grænir miðar eru í
boði þótt þeir gefi lítið á veturna, þó er eitthvað að hafa á sumrin.
Afleysingalæknir tekur allar vaktir meðan viðkomandi er á
staðnum. Mjög lítið álag er á vöktum, 1-2 á vakt og rólegt um
helgar og nætur. Ef læknanemi leysir af sjá læknar á staðnum
um símabakvakt í öryggisskyni.
Heilsugæslustofnun Suðurlands-Þorlákshöfn
Upplýsingar frá Helga Haukssyni, lækni.
Upptökusvæðið er Selvogur, Þorlákshöfn og Ölfus að bænum
Læk, samtals 1.411 manns. Það eru 20 til 30 mín. á Selfoss og
40-50 mín. til Reykjavíkur. Það er einn læknir staðsettur í
Þorlákshöfn. Læknabústaður er í Þorlákshöfn með aðstöðu fyrir
fjölskyldu. Bíll er til staðar fyrir starfsfólk heilsugæslunnar. Annað
eftir samkomulagi. Um áramótin 2004/5 hófst sameiginleg vakt
á þjónustusvæðum Árborgar, Ölfuss og Hveragerðis við samein-
ingu heilsugæslustöðva á Suðurlandi. Vaktstöðin verður eftir-
leiðis á Selfossi. Þar sem þessi breyting er nýtilkomin, getum við
ekki sagt til um að svo stöddu hver fjöldinn verður sem mun nýta
sér þessa þjónustu.
Umsögn unglæknis:
Unglæknir var á staðnum sumarið 2002. Vinnudagurinn var yfir-
leitt uppbókaður þegar liðið fer að treysta manni, annars eru
nokkuð margar vaktir (2-3 skipt vaktaplan með Hveragerði).
Vaktirnar hins vegar rólegar, 0-8 komur á vakt en nokkuð um að
maður keyri til Hveragerðis og þá er hægt að rukka fyrir akstur.
Vinnuaðstaða var mjög fín, flest hægt að gera nema endurlífga
á stofnuninni (stuðtæki frá tímum Volta og því ónothæft).
Röntgentæki á staðnum og hjúkrunarfræðingur sem kann að
nota það á dagvinnutíma. Einnig minni háttar aðgerðastofa og
EKG tæki. Hægt að taka blóðprufur á staðnum en sendar í
bæinn til vinnslu. Starfsliðið allt mjög vingjarnlegt og hjálplegt.
Ein hjúkka/ljósmóðir alltaf á staðnum á daginn auk ritara. H1
stöð þannig að maður er eini læknirinn á staðnum. Þar sem
þetta er úti á landi er vinnan aðeins fjölbreyttara en (bænum en
nálægð við Selfoss og Reykjavík fær marga til að keyra á slysó.
Rólegar vaktir gera staðinn ekki þann ábatasamasta en þar sem
maður er með yfirlæknislaun á dagtíma hressist aðeins upp á
launaseðilinn. Hægt að búa heima þegar maður er ekki á
vöktum þannig að miðað við það sæmilega sanngjörn laun. Það
er golfvöllur á staðnum, sundlaug og bakarí (prófaði bara síðast-
nefnda). Annars er stutt í Selfoss.
Heilsugæslan I Vestmannaeyjum
Upplýsingar frá Karli Björnssyni, lækni.
Sjúkrahúsið í Eyjum er beint fyrir ofan heilsugæsluna.
Eyjaskeggjar eru 4300 talsins og starfa þar þrír læknar: hjarta-
læknir, skurðlæknir og svæfingarlæknir. Bakvaktin var tekin af
þeim um áramótin en verður væntanlega sett upp aftur ef
læknanemar verða ráðnir. Vaktbíll fylgir stöðunni og er húsnæði
greitt af heilsugæslunni. Ef um styttri afleysingar er að ræða er
greiddur ferðapeningur. Grænir miðar eru greiddir eftir dagvinnu-
tíma. Nægar vaktir eru í boði og er álag á þeim upp og ofan.
Umsögn unglæknis:
Læknanemi á 6. ári sinnti afleysingum í Eyjum síðastliðið sumar.
Hún var á sólarhringsvakt annan hvern dag. Fyrsta mánuðinn
var mikið að gera á vöktunum. Vaktaálagið minnkaði seinni tvo
mánuðina en kom stundum í bylgjum. Hún fór í vitjanir með
varðskipum ef tilkynnt var um veikan sjómann og nokkrum
sinnum fór hún í sjúkraflug til Reykjavíkur. Mjög góð aðstaða er
í Eyjum, nýuppgerð íbúð, vel útbúinn vaktbíll og einn besti golf-
völlur á landinu. Greitt var fyrir flug til og frá staðnum sem og eitt
flug í mánuði til Reykjavíkur. Hún ber Eyjum söguna vel og er
hæstánægð með tíma sinn þar syðra.
Heilsugæslan á Vík I Mýrdal
Upplýsingar frá Sigurgeiri Má Jenssyni, lækni.
Mýrdalshreppur er annar tveggja hreppa í Vestur-Skafta-
fellssýslu, landfræðilega ekki stór hreppur, héraðinu tilheyrir
eínnig austasti hluti Rángárþings eystra sem áður var Austur-
Eyjafjallahreppur. Héraðið er því meðfram þjóðvegi 1 og eru um
50km frá austri til vesturs. Frekar er það undantekning að Víkur-
læknir sé kallaður lengra til vesturs, inn á svæði þeirra Hvolsvall-
ar-/Hellulækna en algengt að Víkurlæknir sé kallaður til inn í
Klausturshérað sem er næsta hérað fyrir austan Víkurhérað.
LÆKNANEMINN
2005
39