Læknaneminn - 01.04.2005, Blaðsíða 42

Læknaneminn - 01.04.2005, Blaðsíða 42
Sumarvinna í héraði Samgöngur eru góðar, næsta upptökusjúkrahús er á Selfossi og þangað er um ein og hálf klst. í sjúkrabíl og síðan Reykjavík, um 2 klst. í sjúkrabíl. Selfoss getur tekið flest tilfelli en samt algengt að maður fari til Reykjavíkur, sjúklingar vilja það oftast sjálfir og sérstaklega ferðamennirnir. Upptökusvæðið er þessi 50km spotti meðfram þjóðvegi 1. Heimamenn eru ekki þúsund, fjölgar síðan er vora tekur og þetta er vinsælt ferðamannasvæði. H1- stöð, þ.e. maður er einn, 75km í næsta lækni fyrir austan (Klaustur) og 80km í vestur (Hvolsvöllur). íbúðir sem afleysinga- læknar hafa haft til afnota held ég að hafi verið allsæmilegar og búnar öllum nauðsynlegum hlutum. Ekki hefur verið krafist leigu af afleysara eða síma- og rafmagnskostnaði. Heilsugæslan hefur bíl, VW Golf, árg. 2005. Einingafjöldi á veturna á vöktum hefur legið nú í mörg ár um 1000-1500 á mánuði en á sumrin hefur þetta legið frá 2500-4000 ein. á mánuði. Einn læknir og fær hann því allar vaktirnar. Vaktir geta verið rólegar en það getur líka verið mikið að gera. Flestu er hægt að sinna á heilsugæslunni en þar er auðvitað líka hægt að sinna sjúklingunum heima hjá þeim og getur því bæði verið um nokkuð langan veg að fara og tekið tíma. Sjúkraflutningur til Reykjavíkur tekur oftast um 6 klst. Útköll geta verið mjög fjölbreytt, bílslys, veikindí bæði í þorpinu og á bæjum og síðan eru ferðamenn að þvælast um fjöll og fyrnindi. Sjúkrabíll er í Vík, alltaf mannaður 2 sjúkraflutningamönnum, 7-8 til staðar í Víkinni sem ganga vaktir og allir menntaðir og sumir með mikla reynslu í gegnum árin. Sem sagt, lítið og sætt sveita- hérað sem hefur margt að bjóða, svo ekki sé minnst á mikla náttúru og símasamband er gott og hægt að skoða margt á bíl eða gangandi þó á vakt sé. Umsögn unglæknis: Ég var á Vík sumarið 2003, skipti ég sumrinum með bekkjarfé- laga þannig að þetta voru bara 6 vikur. Ég hef aldrei verið í eins rólegri vinnu. Maður var með móttöku frá 9-12 og 13-16 fjóra daga í viku. Hálfan dag í viku á Hjúkrunarheimili staðarins og hálfur dagur fór í rannsóknir, blóðtökur og svo framvegis. Vana- lega var fullbókað sinn hvoru megin við helgina en minna að gera í miðri viku. Læknirinn á staðnum hefur verið þarna í tæp 20 ár og lítið um mál sem eru í lausu lofti. Utan dagvinnutíma var líka mjög lítið að gera og aldrei neitt á nóttunni. Það liðu oft heilu helgarnar án þess að vaktsíminn hringdi. Þá var það vanalega túristi sem hafði snúið ökkla, brotið sig eða vantaði lyfin sín. Það voru nokkur bílslys, þar af eitt banaslys en mest er þetta minni háttar. Á stöðinni starfar hjúkrunarfræðingur og móttökuritari og í næsta húsi er einnig hjúkrunarheimili með u.þ.b. 20 heimilis- mönnum, þar er einnig hjúkrunarfræðingur. Stöðin rekur sjálf sitt apótek og lendir maður j nokkrum útköllum vegna þess (óþolin- móðir Reykvíkingar sem bara verða að fá Nícorette strax).Lækn- irinn var ekkert á staðnum en alltaf hægt að hringja í hann ef einhverjar spurningar varðandi sjúklingana. Fræðilega séð hefði verið hægt að leggja sjúklinga inn á Selfossi en það gekk hins vegar aldei hjá mér og þurfti maður þá alltaf að fara til Reykja- víkur. Það gat verið frekar pirrandi að þurfa að fara í 8 k|st flutn- ing út af minni háttar málum bara af því að maður gat ekki haft sjúklinga í obs. Eins var það þannig að það var bara einn sjúkra- flutningamaður og því þurfti læknir alltaf að vera í bílnum ef þar var sjúklingur. Stöðin sjálf var ágætlega útbúin, forláta röntgen- tæki og flest það sem þarf til að stunda fína læknisfræði. Blóð- prufur setti maður bara á rútuna og gat fengið niðurstöður í síma daginn eftir. Gallinn er sá að maður er alltaf á vakt og lítið var hægt að komast útúr þorpinu því símasamband var takmarkað þar í kring. Þarna er mjög fallegt umhverfi og veðrið var alltaf gott svo maður eyddi tímanum á ströndinni, í golfi eða í íþróttahús- inu. Nýtt íþróttahús er á staðnum og hafði ég aðgang að því allan sólarhringinn. Þar var hægt að fara í badmington eða lyfta, nú eða sparka bolta. Eins spilaði ég fótbolta með liðinu á staðnum 2 sinnum í viku. Niðurstaðan var nú samt sú að mér leiddist oft á tíðum og var ég þó bara í 6 vikur. Launin voru sennilega með lægri á landinu. Margt smátt skapar eitt stórt og ef maður er á vakt 24/7 þá virðist þetta væn summa. Sumarið sem ég var þarna var íbúðin sem ég bjó í ekki uppá marga fiska, en mér skilst nú að það sé betra síðan. Þetta var fínn tími á Vík, það er gífurlega þroskandi að taka að sér svona stöðu en maður verður að vera tilbúinn að takast á við hvað sem er, hvenær sem er. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Húsavík Upplýsingar frá Ásgeiri Böðvarssyni, yfirlækni. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga er á norðausturhorni landsins. Heildarupptökusvæði Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga er milli 6-7000 manns á mjög stóru svæði. Aðalbækistöðin er á Húsa- vík þar sem er sjúkrahús fyrir 40-50 sjúklinga og þar er einnig heilsugæslustöð, sem þjónar í kringum 4000 manns. Þar vinna fjórir heimilislæknar, lyflæknir, skurðlæknir og kvensjúkdóm- alæknir í hlutastöðu. Undir Heilbrigðisstofnun Þingeyinga heyrir H1 heilsugæslustöð á Þórshöfn á Langanesi sem er í 200 km fjarlægð og önnur H1 stöð á Kópaskeri sem er innan við 100 km frá Húsavík. Auk þess eru heilsugæslustöðvar mannaðar hjúkr- unarfræðingum á Raufarhöfn, Mývatnssveit og Laugum. Sjúkra- húsið á Húsavík getur annast öll meðal alvarleg tilfelli á svæðinu, en alvarlegri tilfelli fara til Akureyrar eða til Reykjavíkur. Klukku- tíma keyrsla er frá Húsavík til Akureyrar, en þrír til fjórir tímar frá Þórshöfn (flugvöllur þar). Fjöldi heilsugæslulækna á Húsavík eru fjórir, en fleiri koma að því að standa vaktir. Afleysingalæknir tekur þátt í mönnun forvaktar, en hefur alltaf bakvakt á bak við sig. Stofnunin útvegar gistiaðstöðu fyrir þá sem eru lengur en eina, tvær vikur, annað hvort húsnæði stofnunarinnar eða leigu- húsnæði og er þá í flestum tilfellum hægt að semja um fjöl- skylduaðstöðu. Leiga er afar lág. Bíll fylgir ekki nema á vaktinni. LÆKNANEMINN 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.