Læknaneminn - 01.04.2005, Síða 43
Sumarvinna í héraði
Greitt er fyrir ferðir ef um lengritímaráðningu er að ræða. Greitt
er fyrir græna miða eftir kl. 6 á kvöldin. Afleysingalæknir að sumri
má reikna með að vera á fjórskiptri vakt. Álag á vöktum getur
verið nokkuð og þá einkum tengt ferðamönnum og stundum er
um að ræða að sækja þurfi ferðamenn upp í Mývatns-
sveit/hálendið á sjúkrabíl og flytja til Húsavíkur eða Akureyrar og
þannig getur forvakt verið nokkuð erilsöm en alltaf er reyndur
læknir á bakvakt til stuðnings. Yfir sumartímann er meðalfjöldi
sjúklinga á vakt frá 16 til kl. 08 daginn eftir, 5-10. Oftast er þó
þokkalega rólegt á nóttunni. Vakt á sjúkrahúsinu fylgir forvaktinni
og er ekki sérstaklega launað fyrir útkall á sjúkrahúsi, enda eru
laun á forvöktum í samræmi við það.
Umsögn unglæknis:
Unglæknir var á staðnum sumarið 2004. í Ijósi þess að ég hafði
einungis lokið 4.ári þegar ég tók að mér starfið þá var þetta tals-
vert álag, a.m.k. í upphafi, enda nánast allt nýtt sem fyrir augu
bar og margt sem þurfti að lærast á stuttum tíma. Héraðið er
stórt, starf Heilbrigðisstofnunarinnar er viðamikið og því að
mörgu að hyggja fyrir lítt reynda. Einnig ber að nefna að mikill
ferðamannastraumur er um héraðið yfir sumarmánuðina. Vinnu-
aðstaðan er að mínu mati eins og best verður á kosið í héraði.
Bakvaktarlæknir alltaf tiltækur og aðrir læknar ávallt til þjónustu
reiðubúnir. Röntgen og rannsókn á staðnum, alltaf starfsfólk á
vakt og tækjakostur aðgengilegur og góður. Vanir hjúkrunar-
fræðingar á heilsugæslu sem og á sjúkrahúsi, einnig meina-
tæknar, sálfræðingar, næringarfræðingar, sjúkraþjálfarar o.s.frv.
innan seilingar. Auk þess er mikill og góður samgangur við FSA.
Allt starfsfólk þarna er til mikillar fyrirmyndar, vinalegt og ávallt
reiðubúið til hjálpar. Læknar á staðnum sérstaklega elskulegir og
ávallt hægt að leita til þeirra, frábært starfsfólk að mínu mati,
mikil samheldni og mjög góður starfsandi. Hvíldaraðstaðan var
góð, ég hafði íbúð með öllum nauðsynjum til umráða. Mikil fjöl-
breytni í vinnunni, nánast öll flóran, ekki hægt að benda á neitt
sérstakt, almenn heilsugæsluvinna á dagtíma en á vöktum getur
nær hvað sem er komið upp. Kom mér kannski mest á óvart að
talsvert er um akútmál á vöktum, en aðstaða er góð, vel búnir
neyðarbílar, góðir og metnaðarfullir sjúkraflutningamenn, góð
aðstaða á sjúkrahúsi sem og nálægð við Akureyri. Launin voru
prýðileg. Það er góð sundlaug í bænum og stutt í Náttúruböðin,
nýtt blátt lón við Mývatn. Golfvöllur er í útjaðri bæjarins, einnig
skotæfingasvæði. Miklir möguleikar á stangveiði sem og allri
annarri útivist enda mikil náttúrufegurð í héraðinu, stutt að Detti-
fossi, Ásbyrgi, Tjörnesi, Mývatni, Kröflu, Dimmuborgum ofl ofl.
Ekki má gleyma Hvalamiðstöðinni auk fjölmargra hvalskoðunar-
báta. Flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. HÞH fær mín
bestu meðmæli. Einnig vil ég benda á heimasíðu Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga, www.heilthing.is.
LÆKNANEMINN
2005
41