Læknaneminn - 01.04.2005, Side 44

Læknaneminn - 01.04.2005, Side 44
Barna- og unglingageðlækningar: ung sérgrein innan læknisfræðinnar. Bertrand Lauth Barna- og unglingageðlæknir Sérfræðingur á barna- og unglingageðdeild Landspítalans Aðjúnkt við Læknadeild Háskóla islands Barnageðlæknisfræði er nánast ný sérgrein; það er einungis hálf öld síðan sérfræðingar byrjuðu að fjalla um andlegar þjáningar á unga aldri en frumherjar í sérgreininni þurftu að berjast lengi gegn þeim miklu fordómum þegar kom að því að viðurkenna afleiðingar andlegra þjáninga á þroska barna. Heilmikið hefur áunnist á þessu sviði síðastliðna áratugi; á fjórða áratug 20. aldar voru einungis til tveir samanlagðir grein- ingarflokkar, annars vegar þroskahefting og hins vegar skap- gerðar - og hegðunarraskanir. í dag aftur á móti hafa verið skil- greindar og viðurkenndar fjölmargar mismunandi þroska-, atferl- is- eða geðbrigðaraskanir sem hefjast venjulega í bernsku eða á unglingsárum og eru oftast mjög ólíkar geðröskunum fullorð- inna. Endurskoðun alþjóðlegra greiningarkerfa hefur leikið stórt og veigamikið hlutverk sem og gerð og þróun mats-, skimunar- og greiningartækja, sem hvort í senn búa yfir viðurkenndri gagn- semi og áreiðanleika. Þróun þessi hefur leitt á stuttum tíma bæði til mikilvægra framfara í meðferðar- og forvarnarvinnu á sviði barna- og unglíngageðlækninga og einnig leitt til þess að eðli geðsjúkdóma almennt hefur verið endurskoðað. Barnageðlæknisfræði hefur lagt fram mikilvæga þekkingu um þróunarsögu margra geðsjúkdóma og geðrænna vandamála fullorðinna sem hefjast yfirleitt ekki allt í einu, koma ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti, heldur eiga sér oft upptök lengra aftur í tíma, þ.e. í barnæsku. Þannig hafa margir sjúklingar átt við þroska- og geðræn vandamál að stríða um langt skeið en höfðu ekki fengið greiningu á röskunum sínum á barnsaldri. Afleiðingum þessarar þróunar má skipta í tvennt: 1) Aukin krafa á viðurkenningu og greiningu á þroska- eða geðrænum vandamálum barna og unglinga eins fljótt og auðið er; þeim sé veitt viðeigandi og áhrifarík meðferð eins fljótt og auðið er en ekki beðið eftir því, og vonast til þess, að erfiðleikarnir „batni með tímanum", eða hreinlega hverfi með aldrinum. 2) Aukin krafa um að tillit sé tekið til þróunarsögu á unga aldri í greiningarvinnu fjölmargra geðsjúkdóma hjá fullorðnum. Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) í dag Áhuginn fyrir barna - og unglingageðlækningum hefur aldrei verið meiri en einmitt í dag, ekki síst á íslandi, og mikið hefur verið að gerast í greininni hér á landi undanfarin ár. Eftirspurn eftir þjónustu hefur aukist gífurlega og mikil uppbygging hefur átt sér stað á Barna - og unglingageðdeild (BUGL) sem endurspeglast í komutölum á göngudeild, innlögnum á legudeildir og auknum og fjölbreyttari meðferðarúr- ræðum (sjá Töflu 1, 2 og 3). Umfang starfseminnar hefur fyrir löngu síðan sprengt af sér húsnæði deildarinnar sem byggt var í allt öðrum tilgangi á sjöunda áratug síðustu aldar og því eru í dag uppi áform um að bæta verulega aðstöðu og húsnæðiskost BUGL. Á sviði læknavísindanna í barna- og unglingageðlækningum á íslandi hefur líka aldrei eins mikið verið að gerast og undanfarin ár: 100--' 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 Tafla 1: Fjöldi innlagna á legudeildir ■ Barnadeild ■ Unglingadeik □ Kleifarvegur 42 LÆKNANEMINN 2005
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.