Læknaneminn - 01.04.2005, Qupperneq 50
Fregnir numdar af Forvarnastarfinu
að bjóða heim læknanemum hvers annars. Héðan frá íslandi
hafa meðlimir í forvarnastarfinu og Alþjóðanefnd FL sótt þessa
fundi og héldu þessar tvær nefndir einmitt FINO ráðstefnuna
síðastliðið haust.
NECSE eru samtök kynfræðslufélaga í N-Evrópu sem voru
stofnuð á síðasta ári og erum við íslendingar stofnfélagar í þeim.
Það er von okkar að þau efli það góða starf sem átt hefur sér
stað á grundvelli FINO og einnig að íslenskir læknanemar sem
sæki þessar ráðstefnur öðlist reynslu og sjái hvernig fræðslu um
kynlíf og getnaðarvarnir er háttað í öðrum löndum, þ.m.t. hinu
rammkatólska Póllandi. Við teljum það fullvíst að reynsla af
þessum fundum muni nýtast í starfsemi okkar hér heima á Fróni,
hér eftir sem hingað til.
Ber þetta árangur?
Oft er erfitt að átta sig á gagnsemi forvarna, þvi þær snúast í
grunninn um það að útrýma því sem réttlætir að þeim sé beitt.
Ein aðferðin er þó að sjálfsögðu sú að athuga fylgni og velta fyrir
sér orsakasamhengi. Meginmarkmið forvarnastarfsins eru eins
og flestir vita: Að berjast móti kynsjúkdómum hjá unglingum,
sporna gegn ótímabærum þungunum unglingsstúlkna og fækka
fóstureyðingum hjá yngsta aldurshópnum (<20 ára). Það er því
forvitnilegt að skoða hvað hefur gerst á þessum fimm starfs-
árum í kynsjúkdómum, unglingaþungunum og fóstureyðingum.
Klamydía er algengasti kynsjúkdómurinn hérlendis og lang-
flestir þeirra sem smitast eru yngri en 25 ára. Árið 2003 fækkaði
smituðum einstaklingum á Göngudeild húð- og kynsjúkdóma
um 24 miðað við árið 1998, þó svo 3000 fleiri kæmu á deildina
árið 2003. M.ö.o. fækkaði smituðum úr 12,5% gesta árið 1998
í 10,1% 2003. Bara milli áranna 2002 og 2003 fækkaði smit-
uðum um 21,7 % (Heimild: www.landlaeknir.is).
Hvað unglingaþunganir snertir hefur þeim einnig fækkað
undanfarin ár. Árið 1999 urðu 262 stúlkur undir tvítugu mæður
en árið 2003 voru þær 165. Mætti því búast við að einhver hluti
þessarar fækkunar væri vegna þess að fóstureyðingum hefði
fjölgað. Sé hins vegar litið á tölurnar sést að á tímabilinu 1998-
2003 hefur fóstureyðingum einnig fækkað meðal unglings-
stúlkna. 1998 voru framkvæmdar 233 fóstureyðingar hjá
stúlkum undir tvítugu sem var 28% allra fóstureyðinga. Árið
2003 voru 139 fóstureyðingar í sama aldurshópi og hafði hlut-
fallið lækkað í 17% allra fóstureyðinga það árið (Heimild:
Kvennadeild LSH).
Við viljum taka það skýrt fram að við erum ekki að eigna okkur
einum heiðurinn að þessu, því fjölmargir hafa lagt sín lóð á
vogarskálarnar: t.d. skólahjúkrunarfræðingar og landlæknis-
embættíð, að ógleymdum unglingamóttökum heilsugæslu-
stöðvanna. Eflaust hefur bætt aðgengi að smokkum og neyðar-
pillunni haft hvað stærstu áhrifin. En við viljum þó trúa þvi að við
eigum einhvern hlut að máli, því rauði þráðurinn í okkar starfi er
að reka áróður fyrir notkun smokksins og annarra getnaðar-
varna, benda á neyðarpilluna og vísa á unglingamóttökurnar og
Göngudeild húð- og kynsjúkdóma.
Öllum er kynfræðsla nauðsynleg og við sjálf höfum bæði gagn
og gaman af, þó ef fram heldur sem horfir, muni atvinnumögu-
leikum okkar sem betur fer fækka í framtíðinni. Sú vinna sem við
höfum lagt í forvarnastarfið, sú ánægja sem starfið veitir okkur,
og sá árangur sem við teljum okkur sjá hefði þó aldrei orðið,
nema fyrir góðan og dyggan stuðning og breiðar axlir lækna-
nema gegnum árin.
Við erum því mjög þakklát fyrír allan stuðninginn frá ríki, sveit-
arfélögum og fyrirtækjum landsins. Við erum líka afar þakklát
öllum þeim læknanemum sem leggja hönd á plóginn til að nálg-
ast viðkvæm málefni og miðla þekkingu sinni til annarra. Við
erum þó fyrst og fremst ákaflega þakklát fyrir að fá að leggja
okkar að mörkum til að heill og hagur íslensks almennings megi
vaxa um ókomna tíð. Ástráður þakkar fyrir sig.
F.h. Ástráðs - forvarnastarfs læknanema:
Kristján Þór Gunnarsson, formaður
Eyjólfur Þorkelsson, meðstjórnandi
48
LÆKNANEMINN
2005