Læknaneminn - 01.04.2005, Síða 66
Otroðnar slóðir
Þórður Þórarinn Þórðarson
læknanemi við HÍ
Sumarið 2003 gerði ég rannsóknarverkefni mitt við læknadeild,
áður þekkt sem fjórða árs verkefni. Þetta sumar mun án efa líða
mér seint úr minni þar sem ég hélt ásamt fjölskyldu minni og
öðrum fjórða árs læknanema alla leið suður (svörtustu Afríku til
þess að framkvæma það, nánar tiltekið til Malaví. Þá um vorið
höfðu Þróunarsamvinnustofnun íslands og Háskóli íslands gert
með sér samstarfssamning sem meðal annars fól í sér að
Þróunarsamvinnustofnun styrkti tvo læknanema til rannsókna á
svæði í kringum Monkey Bay. Þróunarsamvinnustofnun íslands
hefur síðustu ár unnið að uppbyggingu spítala og heilsugæslu í
Monkey Bay og nágrenni, auk fjölda annarra starfa. Verkefni mitt
var að rannsaka bólusetningar barna á svæðinu, en samhliða
verkefni var mat á mæðravernd og fæðingahjálp. Hér ætla ég
ekki að ræða um niðurstöður þess, en frekar að gera tilraun til
þess að lýsa þeirri upplifun sem ferðin var.
Malaví er staðsett í Afríku suð-austanverðri og á landamæri að
Mósambik, Zambíu og Tansaníu. Landið liggur meðfram Malaví-
vatni sem er eitt stærsta vatn Afríku. íbúar eru um 12 milljónir, og
er landið svipað að stærð og ísland. Landið er eitt það fátæk-
TANZANIA
Kort af Malaví
asta í heimi og er meðalaldur aðeins 37 ár. Eins og víða í Afríku
sunnan Sahara er HIV gríðarlegt vandamál og talið er að algengi
HIV smits sé um 15%. Þessar staðreyndir draga ef til vill upp
mynd sem flestir kannast við úr sjónvarpinu þar sem sveltandi
börn stara tómum augum í myndavélina. Líklega hélt maður af
stað með svipaða mynd í farteskinu.
Verkefnið fólst í því að heimsækja 30 þorp í Monkey Bay
héraði og meta þekjun þólusetninga þarna á svæðinu. Það gafst
því einstakt tækifæri til þess að fara ótroðnar slóðir og heim-
sækja þorþ utan alfaraleiða. Ekki var ökufært til allra þorpanna
og þurfti stundum að grípa til þess að nota báta og mótorhjól til
þess að komast á staðinn. Heimsóknirnar gengu jafnan þannig
fyrir sig að þegar komið var á staðinn var þyrjað á því að heilsa
upp á þorpshöfðingjann og fá leyfi fyrir því að valsa um þorpið
hans og taka lýðinn tali. Það var yfirleitt auðsótt mál, enda vissu
þeir oftast að von var á gestum.
/ þorpinu
Rannsóknarvinnan hófst þá á því að hús var valið af handa-
hófi til þess að hefja leit að barni á þeim aldri sem féll að
viðmiðum rannsóknarinnar. Tvær meginaðferðir voru notaðar til
þessa. Þegar fyrir lá nothæft kort af svæðinu var húsum eða
húsaþyrpingum gefið númer sem síðan var valið af handahófi
með því að nota peningaseðil eða “random number table”. Þá
var haldið að því húsi og leitin hafin. Önnur aðferð var að snúa
flösku í miðju þorpsins og velja götu eða gönguleið sem flaskan
benti á. Síðan var búið til kort af gönguleiðinni þar sem öll hús
voru merkt inn á þar til enda hennar var náð. Húsin voru síðan
merkt með númeri á kort og síðan valið af handahófi það hús
eins og áður, sem fyrst var heimsótt. Vakti þessi aðferð mikla
athygli og kátínu þorpsþúa. í fyrsta þorpinu sem var heimsótt
bað þorpshöfðinginn ungan dreng að sýna þessum aðkomu-
LÆKNANEMINN
2005