Læknaneminn - 01.04.2005, Side 76

Læknaneminn - 01.04.2005, Side 76
Verkefni 4. árs læknanema formið heldur en á auganu sem er með byrjunarbreytingar. Eftir að örmyndun er komin í auga með vota formið breytist stærð örsins lítið. Vöntun og upphleðsla á litarefni virðist vera vernd- andi breyting í augnbotni og er gangur sjúkdóms hægari ef þessar breytingar eru til staðar. Lykilorð: AMD, nýæðamyndun, drusen, litþekjubreytingar. Ung- og smábarnavemd: Greind vandamál fyrstu 18 mánuðina og viðhorf foreldra Guðbjörg Vignisdóttir', Katrín Davíðsdóttir2, Geir Gunnlaugsson2 Háskóli islands', Miðstöð heilsuverndar barna2 Bakgrunnur: Ung- og smábarnavernd byggist á skipulögðu eftirliti með heilsu barna á fyrstu fimm æviárunum. Boðið er upp á almennan stuðning við umönnun barnsins, fræðslu, læknis- skoðanir og bólusetningar á vissum lykilaldri barnsins, þ.e. með heimavitjunum fyrstu vikurnar eftir fæðingu og síðan heim- sóknum á heilsugæslustöð við 6 vikna aldur, 3, 5, 6, 8, 10, 12 og 18 mánaða, 31/2- og loks 5-ára aldur. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum landlæknisembættisins. Umfang og eðli þessarar þjónustu er víða í endurskoðun í nágrannalöndum okkar. Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar er að kanna: 1) hver séu algengustu vandamál barna og fjölskyldna þeirra sem koma til umfjöllunar og meðferðar á fyrstu átján mánuðunum í ung- og smábarnavernd; og 2) að kanna viðhorf foreldra til þeirrar þjón- ustu sem ung- og smábarnavernd veitir að lokinni átján mánaða skoðun. Aðferðir: Upplýsingar úr sjúkraskrám barna sem fædd eru á bilinu 1. júlí 2001 til 30. júní 2002 voru skráðar í gagnagrunn (Filemaker Pro). Sjúkraskrárnar voru valdar af handahófi á Miðstöð heilsuverndar barna og þremur heilsugæslustöðvum á suð-vesturhorninu. Auk hefðbundinna lýðbreyta voru skráðar upplýsingar um ónæmisaðgerðir, brjóstagjöf og vítamíngjöf. Fjöldi heimavitjana var skráður svo og helstu vandamál sem komu upp í heimavitjunum. Síðan var hver og ein heimsókn athuguð og upplýsingar um þyngd, lengd, höfuðmál, heilsufars- vandamál og félagsleg vandamál skráðar. Notast er við SPSS og Excel við tölfræðilega úrvinnslu gagna. Hannað var spurn- ingablað sem sent var til foreldra 700 barna sem fædd voru á tímabilinu 1. júní 2002 til 30. september 2002. Nöfnin voru valin af handahófi úr þjóðskrá. Spurningarnar taka til allra helstu þátta starfsemi ung- og smábarnaverndar fyrstu átján mánuðina. Rannsóknin hefur hlotið samþykki Persónuverndar og Vísinda- siðanefndar. Niðurstöður: Úrvinnsla upplýsinga úr sjúkraskrám er á frum- stigi. Fyrstu niðurstöður verða kynntar í fyrirlestri þann 19. mars. Spurningalistar til foreldra hafa verið sendir út, en svör hafa enn ekki borist. Áiyktun: Á tímum sparnaðar í heilbrigðiskerfinu er brýnt að skipulagning þjónustunnar sé byggð á vísindalegum grunni og að framkvæmd hennar sé sem hagkvæmust. Viðamikil starf- semi eins og ung- og smábarnavernd í síbreytilegu umhverfi þarf stöðugt að vera í endurskoðun. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar sem framkvæmd er hér á landi og munu niðurstöður hennar nýtast til að efla og bæta þjónustu ung- og smábarna- verndar. Meðferð og eftirlit sjúklinga með háþrýsting í heilsugæslu Jóhanna Ósk Jensdóttir1, Emil L. Sigurðsson, dósent2 'Læknadeild Hl, "Heilsugæslustöðin Sólvangi, Hafnarfirði Inngangur: Háþrýstingur er eitt af stærstu heilbrigðisvandamál- unum í dag, hann eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum og dauða af völdum þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að með því að meðhöndla háþrýsting dregur úr hættu á hjarta- og æðasjúk- dómum ekki síst heilablóðföllum. Erlendar rannsóknir sína að algengi háþrýstings er hátt en aðeins hluti háþrýstingssjúklinga fær lyfjameðferð og enn færri fá meðferð sem dugir til þess að ná blóðþrýstingi í ásættanleg gildi. Tilgangur þessarar rann- sóknar var að skoða meðferð og eftirlit sjúklinga með háþrýsting í heilsugæslu. Tilgáta okkar var að meðferð og eftirlit með háþrýsting sé með svipuðum hætti og erlendis og unnt sé að bæta þá meðferð verulega. Efniviður og aðferðir: Aftursýn rannsókn, þar sem rannsókn- arhóþurinn eru allir þeir sem fengið hafa greininguna háþrýstingur og tilheyra heilsugæslustöðinni Sólvangi. Sjúkraskýrslur þessara einstaklinga voru skoðaðar og upplýs- ingar um meðferð og eftirlit skráðar. Niðurstöður: Alls voru 979 einstaklingar sem reyndust hafa greininguna háþrýstingur. Af þeim voru 27% með blóðþrýsting <140/90 mmHg við síðustu blóðþrýstingsmælingu og 70% með blóðþrýsting >140/90. Meðaltal slagbilsþr. var 145 og hlébilsþr. 86. Á árunum 2002 og 2003 fengu 75% sjúklinga lyfjameðferð vegna háþrýstings. Af þeim voru 36% á tveggja lyfja meðferð og 25% á þremur eða fleiri lyfjum. Af einstökum lyfjaflokkum voru 65% sjúklinga á þvagræsilyfjum, 58% á betahemlum, 26% á ACE hemlum, 25% á kalsíumgangalokum og 28% á Angíot- ensín II blokkerum. Árið 2003 var blóðþrýstingur mældur í 62% tilvika, 24% 1 sinni, 17% 2sinnum og í 21% tilvika oftar. Blóð- prufa hafði verið tekin hjá 78% sjúklinga en þar af hjá 63% frá árinu 2000, af þeim var kólesteról að meðaltali 5,9mmól/L, HDL 1,4mmól/L, þrýglýseríð 1,8mmól/L og blóðsykur 5,9mmól/L. í 51 % tilfella var albumin í þvagi skoðað og í 63% tilvika var EKG tekið, þar af 30% eftir 2000. BMI var mælt í 12% tilfella. Ályktun: Árangur meðferðar við háþrýsting er ábótavant hér líkt og erlendis. Eftirlit með öðrum áhættuþáttum er ekki nógu stöðugt. Það ætti að vera unnt að gera meðferðina og eftilititið markvissara. 74 LÆKNANEMINN 2005
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.