Læknaneminn - 01.04.2005, Side 87

Læknaneminn - 01.04.2005, Side 87
Verkefni 3. árs læknanema líkindum einungis prótein og inniheldur því ekkert erfðaefni. PrPSc er umbreytt þrívíddargerð eðlilegs hímnupróteins (PrPC). Príongenið (PRNP) er talið hafa áhrif á móttækileika manna fyrir sjúkdómunum. Sýnt hefur verið fram á að ákveðnar stökkbreyt- ingar eru sjúkdómsvaldandi en einnig virðist breytileiki í nokkrum táknum hafa áhrif á svipfar, smitnæmi og meðgöngutíma príon- sjúkdóma. Mest athygli hefur beinst að tákna 129. Einstaklingar sem arfhreinir eru um metíonín í þessum tákna virðast vera líklegri til að veikjast af príonsjúkdómum og meðgöngutíminn virðist styttri. í Japan hefur fundist breytileiki í tákna 219 sem mögulega hefur verndandi áhrif gegn spCJD. Aðrir táknar hafa einnig verið skoðaðir. Þar á meðal er þögul breyting í tákna 117 auk úrfellinga innan svæðis í N-enda príongensins sem inni- heldur endurteknar oktapeptíð raðir. Þetta verkefni er framhald rannsóknar sem framkvæmd var árið 2003, en þá var breytileiki í tákna 129 í íslensku þýði skoðaður. Markmið þessa hluta er að rannsaka tíðni breytileika í tákna 117 og tíðni 24 basapara úrfell- inga í íslensku þýði og bera saman við tíðni hjá öðrum þjóðum. Við rannsóknina voru notuð sýni úr 208 heilbrigðum íslenskum blóðgjöfum, 104 af hvoru kyni. Príongenið var fjölfaldað með PCR (polymerase chain reaction) og skerðibútagreining notuð til að kanna breytileika í tákna 117. Við könnun á úrfellingu var samanburður gerður á stærð PCR-afurðanna og ef grunur lék á úrfellingu var skerðibútagreining framkvæmd. 4,7% einstakling- anna reyndust vera arfblendnir um breytileikann í tákna 117, 95,3% höfðu ekki breytileikann og enginn var arfhreinn. Breyti- leikinn hefur ekki verið kannaður mjög víða en þetta er sambæri- leg tíðni arfgerða og fundist hefur í Tyrklandi (5%). Úrfelling á 24 basapörum fannst ekki innan úrtaksins en tíðni þessa breytileika í heilbrigðu þýði er talin vera mjög lág. Mynstur alvarlegra handaáverka í íslandi 1994-2003 Brynjólfur Árni Mogensen jr’, Halldór Jónsson jr2, Jóhann Róbertsson2 'Læknadeild Háskóla íslands, 2Bæklunarskurðdeild LSH Fossvogi Inngangur: Handaáverkar eru meðal algengustu áverka sem koma á slysadeildir. Ljóst er að þeir valda miklu vinnutapi og eru þar með dýrir fyrir þjóðfélagið. Alvarlegir handaáverkar teljast beygisinaskaðar, taugaskaðar, aflimanir og brot sem eru innan liðar. Nýgengi alvarlegra handaáverka er 7.5/100.000 íbúa í Noregi. Karlmenn verða fyrir 60-75% af slysunum. Nýgengi handaáverka er að aukast á Norðurlöndum og nú um mundir eru handaáverkar um 20% af öllum vinnuáverkum. Tilgangur: Athuga mynstur alvarlegra handaáverka á fslandi. Efniviður og aðferðir: Fenginn var listi yfir alla sjúklinga sem höfðu lagst inn á bæklunardeild með handaáverka á tímabilinu 1994 - 2003. Aðgerðakóðar sem fylgdu sjúklingunum voru skoðaðir og einungis þeir teknir sem töldust vera með alvarlega handaáverka. Skráðir voru tegundir áverka, kyn, aldur og dreif- ing milli ára. Þá var leitað í tölvuskrám og skjalasafni LSH að orsökum, athöfnum og þeim sem voru rangt greindir upphaf- lega. Niðurstöður: Alls 481 einstaklingar voru skráðir með alvarlega handaáverka. Kynjahlutfallið var 78.1% menn og 21.9% konur voru. Fólk á aldrinum 15-24 ára fékk flesta áverkana eða 28.9%. í heildina hefur slysum fjölgað síðastliðin ár, en sökum mismun- andi aðgerðarkóða milli ára og að gögn á árunum 1996-1998 hafa misfarist eru þær niðurstöður ekki marktækar. Flestir áverkarnir voru brot innan liðar á fingri (21.3%), beygisinaskaðar (20.9%). Aflimanir á fingri reyndust vera 9.8%. Launuð vinna (32.6%), athafnir daglegs lífs (26.6%) og tómstundir (20.6%) reyndust vera algengustu athafnir fólks er slys átti sér stað. Af orsökum voru oddhvassir hlutir lang algengastir, 42.9%. Umræða: Mun fleiri karlmenn fá alvarlega handaáverka og er það í samræmi við Norðurlönd. Flestir af alvarlegustu áverk- unum (aflimanir) reyndust eiga sér stað í vinnutíma (68.5%). Meginorsök slysanna voru oddhvassir hlutir, af sina og taugaá- verkum voru það 74.2% allra orsaka. Kramningsáverkar og oddhvassir hlutir voru helstu ástæður fyrir aflimunum. Mynstur áverka og afdrif einstaklinga á gjör- gæsludeild LSH 1994-2003 Bjami Guðmundsson1, Halldór Jónsson jr.2, Bergþóra Ragnarsdóttir3, Kristinn Sigvaldason3 'Læknadeild Háskóla (slands, !Bæklunarskurðdeild LSH, 3Gjörgæsludeild LSH- Fossvogi. Inngangur: Samkvæmt fyrri áverka rannsóknum frá árunum 1974-93 lögðust 80-100 manns árlega inn á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi. Flestir þessara aðila slösuðust í umferðar- óhöppum (53%) og í falli (27%). Frá 1974-93 lækkaði hlutfall látinna úr 12% niður í 7,7% og legudögum á gjörgæslu fækkaði úr 7 niður í 4,5. Mikil framför varð því á þessu tímabili með tilliti til lækkaðrar dánartíðni og fækkaðra legudaga á gjörgæslu, í Ijósi þess að alvarleiki áverka og áverkamynstur hafði lítið sem ekkert breyst. Tilgangur: Að meta alvarleika áverka hjá sjúklingum, sem voru vistaðir á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi á næsta tíu ára tímabili og athuga hvort mynstur þeirra hafi breyst og hvort frekari fram- för hafi orðið í lifun með hliðsjón af fyrri niðurstöðum. Jafnframt að kanna afdrif sjúklinga eftir útskrift frá gjörgæsludeild. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir tölvuskrár allra sjúklinga sem lögðust inn á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi vegna áverka 1994-2003, eða á 10 ára tímabili. Meðtaldir voru nokkrir sem höfðu fengið fyrstu meðferð á öðrum sjúkrahúsum hérlendis, svo og 22 sem höfðu slasast erlendis. Skráð var aldur, kyn, staður, orsök- og mánuður slyss, legudagafjöldi á gjörgæslu- deild og mat á áverkum eftir AIS-ISS kerfi, sem metur alvarleika áverka eftir einföldum skala; 1 (minniháttar)-6(banvænn). Þá var legutími sjúklinga eftir útskrift frá gjörgæsludeild - og afdrif eftir útskrift frá LSH skráð. Niðurstöður: Könnunin tók til 971 manns alls, að meðaltali 97,1 á ári. Flestir voru á aldrinum 15-44 ára þegar þeir slösuð- LÆKNANEMINN 2005 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.