Læknaneminn - 01.04.2005, Page 97

Læknaneminn - 01.04.2005, Page 97
Verkefni 3. árs læknanema þversniðstímabil, 1967-72, 1974-79, 1979-84, 1985-91 og 1997-02, og var algengi og nýgengi SS2 og efnaskiptavillu metin á hverju tímabili. Niðurstöður: Algengi (95% öryggismörk) SS2 skv. ADA’97 hefur á 30 ára tímabili vaxið úr 3,3% (2,6-4,0) í 4,9% (3,5-5,3) hjá körlum sem er um 48% hækkun og úr 1,9% (1,4-2,4) í 2,9% (1,9-3,9) hjá konum á sama aldri eða um 53% hækkun. Tíma- leitnin var marktæk bæði hjá körlum og konum. Algengi SS2 var marktækt hærra hjá körlum en konum. Fyrir hvern einn sem er með þekkta sykursýki eru nú þrír með óþekkta sykursýki, en hlutfall óþekktrar sykursýki var vaxandi á rannsóknartímabilinu. Algengi efnaskiptavillu hefur aukist enn meira en SS2, úr 4,6% (3,8-5,4) í 8,7% (6,9-10,5) hjá körlum sem er um 89% hækkun og úr 2,8% (2,2-3,4) í 5,0% (3,8-6,2) hjá konum sem er um 79% hækkun. Greiningarskilmerki WHO frá 1999 hafa mestu næmn- ina af þeim þremur skilmerkjum sem borin voru saman. Algengi SS2 með WHO’99 er 24% hærri en með ADA’97 og 16% hærri en WHO’85. Ályktun: Ljóst er að sama þróun er að eiga sér staðar hérlendis og annarsstaðar hvað varðar hækkun á algengi SS2 og efna- skiptavillu en þó er algengi SS2 á íslandi með því lægsta sem þekkist í Evrópu. Lykilorð: sykursýki af tegund 2, skert sykurþol, hækkaður föstu blóðsykur, efnaskiptavilla, algengi, nýgengi. Umfang og eðli brunaslysa á höfuðborgar- svæðinu árin 2001-2003. Kjartan Hrafn Loftsson', Brynjólfur Mogensen2, Jens Kjartansson3. 'Læknadeild Háskóla (slands, 2Bráða- og slysadeild Landspítala-háskólasjúkra- húss, "Lýtalækníngadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Tilgangur: Brunaslys eru talin fremur algeng og geta verið mjög alvarleg. Ekki er vitað um tíðni brunaslysa á íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa Ijósi á umfang og eðli brunaslysa á höfuðborgarsvæðinu árin 2001-2003 með áherslu á bruna af völdum heitra vökva. Kannað verður hvort slysin eigi sér frekar stað í launaðri vinnu eða í frítima og hvar slysin eiga sér stað. Kynjahlutfall og aldursdreifing verða skoðuð, yfirborðshlutfall líkama sem er brent og dýpt bruna af völdum heitra vökva verður gerð nánari skil. Efni og aðferðir: Leyfi var fengið hjá Siðanefnd og Persónu- vernd til að skoða sjúkraskrár sjúklinga sem brendust á tímabil- inu 1. janúar 2001 til 31. desember 2003 með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Allar skráðar komur á slysa-og bráðadeild á Landspítalanum-háskólasjúkrahúss og innlagnir vegna bruna voru skoðaðar. Stuðst var við ICD-10 slysagreiningar fyrir bruna- slys af hverskyns tagi. Nánari skipting var möguleg fyrir tilstilli NOMESCO kerfisins og alvarleiki metin samkvæmt alþjóðlegri áverkastigun. Niðurstöður: Alls eru það 1165 sjúklingar sem brendust á þessu tímabili. 7% þeirra, eða 83, eru innlagðir. Karla/kvenna hlutfallið er 1.3 fyrir alla brenda. Börn á aldrinum 0-4 ára verða langoftast fyrir brunaslysum eða 20%. Þar af eru 34% 1 árs gömul. Aðalorsök fyrir bruna er heitur vökvi 35%, heitur hlutur 30% og eldur 12%. Af völdum heitra vökva brennast konur oftar en karlar og er hlutfallið nú 1.2. Aldurshópurinn 0-4 ára er líka fjölmennastur, eða 13%, og 1 árs börn tæplega helmingur. Um 60% slysanna gerast á heimilum en um 30% við vinnu. Algeng- asta orsök bruna vegna heitra vökva er upphitað vatn og hita- veituvatn, hvor um sig 17%. Ótilgreint heitt vatn er 15% og skipar þá heitt vatn af hvaða toga sem er, rétt tæplega helming allra brunaslysa af völdum heitra vökva. í 97% tilvika var um lítinn áverka að ræða. Ályktun: Heitt vatn er algengasta orsök brunaslysa. Upphitað vatn og heitt kranavatn er jafnalgeng orsök bruna og eiga slysin sér oftast stað inni á heimilum og aðallega í eldhúsinu. Börnin brennast oftast. Margt ber að varast en fullorðnir þurfa að gæta betur að óvitunum. Lykilorð: brunaslys, heitir vökvar, heitt vatn, hitaveituvatn. Mynstur og afleiðingar mjaðmaaðgerða á íslenskum börnum sl. 20 ár Kristinn Logi Hallgrímsson', Halldór Jónsson jr.2, Höskuldur Baldursson2, Sigurveig Pétursdóttir2. 'Læknadeild Háskóla Islands, "Bæklunarskurðdeild LSH í Fossvogi. Inngangur: Síðastliðin 20 ár á íslandi hefur meðferð á mjöðmum barna með yfirvofandi liðhlaupshættu vegna vanþroska (dysplasia acetabuli), drep á mjaðmarkúlu (Perthes) eða of mikillar vöðvaspennu (spasticity) verið þróuð í takt við alþjóðlega þekkingu sérfræðinga hverju sinni. Áður (4,árs verk- efni 1999) hefur nýgengi Perthes sjúkdóms á íslandi verið reiknað út sem 14,5/100.000 einstaklinga. Ekki er unnt að afla slíkrar vitneskju um hina sjúkdómana þar sem liðhlaups vanda- málið kemur aðeins upp hjá hluta einstaklinganna. Tilgangur: Tilgangur og markmið rannsóknarinnar er að varpa Ijósi á mynstur og afleiðingar mjaðmaaðgerða á íslenskum börnum sl. 20 ár. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúklingalista frá tölvu- skrám. Sjúklingarnir höfðu gengist undir vissar aðgerðir, og var því leitað eftir sjúkdómsgreiningu út frá aðgerðarkóðum á tíma- bilinu 1984-2003. Sjúklingar voru flokkaðir niður eftir; ástæðum og tegund aðgerða. Einnig var tekið tillit til aldurs við aðgerð, kyns sjúklings og fjölda aðgerða hvers og eins. Niðurstöður: Listinn sem unnið var með innihélt 109 einstakl- inga sem gengust alls undir 176 mjaðmaaðgerðir á tímabilinu. Aðgerðir á strákum voru 91 en stelpum 85. Algengustu aðgerð- irnar voru osteotomiur (beinskurður) á lærlegg (97) og osteot- LÆKNANEMINN 2005 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.