Læknaneminn - 01.04.2005, Page 99

Læknaneminn - 01.04.2005, Page 99
Verkefni 3. árs læknanema 31.mars 2002 voru 227 komur barna yngri en 18 ára á heil- brigðisstofnanir landsins vegna eitrana, þar af voru 57 sjálfs- vígstilraunir vegna eitrana. Samkvæmt Landlækni voru beinbrot barna að meðaltali 213 á ári 1999-2002. Ályktun: Heilsa barna er almennt góð en margt má þó betur fara. Skráning á aðstæðum barna og almennri heilsu þeirra er ófull- nægjandi. Sérstaklega er skráningu slysa og sjálfsvígstilrauna ábótavant. Engin barnamiðuð skráning er á félagsaðstæðum barna, það vantar miðlæga skráningu á heilbrigði og ekki er reglu- bundið eftirlit með öllum þáttunum. Vegna vaxandi munar á félagsstöðu fólks vantar tengingu heilsu við félagsstöðu. Áhríf formeðhöndlunar með ónæmisglæðinum LT-K63 á ónæmissvör nýfæddra músa gegn prótíntengdum fjölsykrum Pétur Sigurjónsson', Stefanía P. Bjarnarson1'2, Ingileif Jónsdóttir12. 'Læknadeild Háskóla íslands, 2Ónæmisfræöideild LSH. Bakgrunnur: LT er toxín seytt af E. coli og veldur niðurgangi, en hefur einnig mikia ónæmisglæðandi virkni. LT er gert úr A einingu, ensímhluta sem veldur eituráhrifum, og B einingu sem binst aðallega GM1 ganglíósíði, en einnig öðrum glýkólípíðum. LT-K63 er afbrigði LT með punktsstökkbreytingu í A einingunni og hefur enga eiturvirkni. LT-K63 virkar sem ónæmisglæðir, þegar hann er gefinn samtímis prótíntengdum fjölsykrum undir húð eða um slímhúðir, og eflir ónæmissvör í nýfæddum músum þ.a. þær mynda nær jafngott mótefnasvar og fullorðnar mýs. 3 vikna gamlar mýs mynda sterkara ónæmissvar en 1 viku gamlar mýs gegn bóluefni með LT-K63. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu aldursháð ónæmissvar er þegar prótíntengdar fjölsykrur og LT-K63 er gefið samtímis 7-16 daga gömlum músum. Einnig voru könnuð áhrif formeðhöndlunar með LT-K63 og hvort hann geti virkjað ónæmiskerfi nýbura ef hann er gefinn 1-9 dögum á undan bóluefni. Efniviður og aðferðir: Notaðar voru NMRI mýs. Hver hópur var 8 ungar úr sama goti. Prótíntengt fjölsykrubóluefni, Pnc1-TT, úr fjölsykru S. pneumoniae hjúpgerð 1 tengdri tetanus toxoíði, LT- K63 eða hrein fjölsykra af hjúpgerð 1, PPS-1, voru gefin undir húð. Mýsnar voru blæddar vikulega með skurði á bláæð í skotti og mótefni gegn fjölsykruhluta bóluefnisins mæld með ELISA. Þrem vikum eftir síðustu bólusetningu voru mýsnar sýktar um nef með S. pneumoniae hjúpgerð 1.24 tímum síðar var tekið blóðsýni og sáð á agar, músum fargað, lungu fjarlægð, maukuð og sáð á agar. Ræktað var í einn sólarhring úr blóði en tvo úr lungum og bakteríuvöxtur ákvarðaður (colony forming units, CFU). Niðurstöður: Gott mótefnasvar mældist hjá hópum sem fengu LT-K63 samtímis bóluefni og voru allir varðir gegn blóðsýkingu. Ónæmissvar hjá 7-16 daga gömlum músum var lítið háð aldri þegar LT-K63 og bóluefni var gefið saman. Marktækt hærra ónæmissvar mældist hjá hópum sem voru formeðhöndlaðir með LT-K63 miðað við enga formeðhöndlun. Hópar sem fengu LT-K63 samtímis eða degi fyrr en bóluefni mældust með marktækt hærra ónæmissvar 2 vikum eftir bólu- setningu miðað við hópa sem fengu formeðhöndlun 3-9 dögum fyrr. Þeir hópar sýndu þó marktæka hækkun á ónæmissvari. Aðeins ein mús í formeðhöndluðum hópum var ekki vernduð gegn blóðsýkingu. Formeðhöndlun með LT-K63 jók vernd gegn lungnasýkingu. Ályktun: Formeðhöndlun með ónæmisglæðinum LT-K63 örvar ónæmiskerfi nýfæddra mús þ.a. ónæmissvar gegn fjölsykru- hluta prótíntengds bóluefnis verður sterkara miðað við enga formeðhöndlun. Ónæmiskerfið virðist enn í örvuðu ástandi 9 dögum eftir gjöf á LT-K63, en áhrifin dvína þó með tíma milli meðhöndlunar og bólusetningar. Lykilorð: Ónæmisglæðir, LT-K63, nýburar, pneumókokkar, prótíntengdar fjölsykrur Sýkingarálag og lungnasjúkdómar Rúna Björg Sigurjónsdóttir1 , Hulda Ásbjörnsdóttir1 , Davíð Gíslason2, Christer Jansson3, Þórarinn Gíslason2, Bjarni Þjóðleifsson. 'Háskóla íslands Læknadeild, "LYF-1 Landspitali háskólasjúkrahús, "Respiratory Medicine and Allergology. Akademiska sjukhuset Uppsala. Inngangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir sýna hækkandi tíðni ofnæmis og astma í hinum vestræna heimi og á sama tíma hefur tíðni sýkinga lækkað. Hreinlætiskenningin (the hygiene hypot- hesis) tengir þessa tvo þætti saman og segir að sýkingarálag í æsku sé verndandi gegn ofnæmi og astma. Nokkrar rannsóknir benda til þess að hreinlætiskenningin geti staðist en aðrar hafa verið misvísandi. Helicobacter pylori (Hp) er gram neikvæð bakt- ería sem sýkir um 50% mannkyns. Tíðni Hp sýkinga er mun hærri í vanþróuðum löndum en þróuðum og er Hp sýking talin gefa vísbendingu um almennt sýkingarálag. Tilgangur þessarar rannsóknar var að prófa hreinlætiskenn- inguna með því að kanna tíðni Hp sýkingar hjá slembivöldum einstaklingum, sem voru skoðaðir m.t.t. lungnasjúkdóma og lungnaeinkenna. Efniviður og aðferðir: IgG mótefni gegn Hp var mælt í serum sýnum frá 1288 einstaklingum í ECRHS II (www.ecrhs.org) og mótefni gegn cagA mæld í Hp jákvæðum. Einstaklingarnir voru slembiúrtök frá þremur löndum, íslandi, Svíþjóð og Eistlandi. Einstaklingarnir svöruðu spurningalista um m.a. lungnasjúk- dóma og lungnaeinkenni Niðurstöður: Mótefni gegn Hp voru jákvæð hjá 38% á íslandi, 13% í Svíþjóð og 62% í Eistlandi. Af Hp jákvæðum voru 33% jákvæðir fyrir cagA stofni á íslandi, 69% í Svíþjóð og 69% í Eist- landi. Neikvæð fylgni var á milli ofnæmisastma og HP sýkingar á íslandi (OR 0,5) og Svíþjóð (OR 0,63) en engin marktæk fylgni í Eistlandi (OR 0,93). Umræða: Þessar niðurstöður renna stoðum undir hreinlætis- kenninguna á íslandi og í Svíþjóð, en þar er lág tíðni Hp sýkingar LÆKNANEMINN 2005 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.