Bænavikan - 07.12.1940, Síða 34

Bænavikan - 07.12.1940, Síða 34
- 32 - ur vopnaðBH manna, sem illir englar siga áfram til þess aó deyða "þessa sakleysingja. Nú er komin sú stund, sem mann- legur máttur getur ekkert, en þá er það, að Guð mun koma til og frelsa sína útvöldu." EGW Okkur er sagt, að það muni verða um miðnætti, að Guð muni sýna sig máttugan og frelsa fólk sitt. Solin mun skyndilega sjást í gegn um myrkrið, sem myndast af þykkum skýjum, er hlaðast upp, Það verður mikill jarðskjálfti,"svo mikill, að enginn hefur slíkur éður verið". Fjöllin hristast eins og - reir af vindi skekinn og eyjar hverfa í hafið, hafnarborgir, hvers íbúar hafa lifað óguðlegu lífi líkt og íbúar sódómu, verða grafnar í sjó. Hinar öskrandi þrumur láta eins og djöfulleg öfl séu að verki og eyðileggja margt og mikið. Hinar fegurstu'borgir jarðar verða að einni rúst. örói og ringulreið ríkir alls staðar. Og vein hinna óguðlegu heyr- ist innan um allt þetta. Djöfullinn og englar hans líta á þetta undrandi og hræddir- ' Fólk Guðs, sem rótt áður var að reyna að flýja undan ofsækjendum sín\im, lítur nú upp með heilagri gleði, er það sór 'merkin vun, að frelsið er nærri. Og mitt í þessum ógurlegu byltingum og ringulreið, verð- ur öllum litið á lítið ský í austurátt. Það er smátt' og dökkt í fyrstu, en það stækkar og verður bjartara eftir því sem það kemur nær, og dýrðarljómi vefst um það.. Og eftir því sem' þetta lifandi ský kemur nær, munu menn sjá betur að Jesús situr þar í hásæti mitt á meðal engla sinna. Hann kemur nú ekki eins og maður, sem kunnugur er sorgurn og með þyrnikórónu á höfðinu, heldur er hann nú Konungur konunganna og Drottinn drottnanna. Nú hrópa hinir óguðlegu til fjalla- anna og hamranna og biðja þá að falla yfir ðig, til þess að hylja sig fyrir augliti hans, er þeir hafa spottað og ekki viljað eiga að frelsara. Þeir verða lémagna og að lokum eyddir af ljómanum af tilkomu Krists. NÚ heyrist rödd Jesú, sem er eins og lúðurhljómur og endurómar um alla jörðina. Grafir opnast og heilagir menn ganga út klæddir ódauðleika. Á sama augnabliki munu hinir heilögu, sem lifa, umbreytast, og verða þeir ásamt hinum, sem risu upp, hrifnir upp til fundar við Drottin í loftinu. Vinir og elskendur, sem orð- ið höfðu að skilja, sameinast nú til þess jað vera saman ei- líflega, og lítil börn eru borin af englum í faðm mæðra sinna. Því næst fer Jesús í broddi fylkingar hinna frels- uðu og englanna til hinna eilífu heimkynna. Enginn maður

x

Bænavikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.