Bænavikan - 07.12.1940, Side 42

Bænavikan - 07.12.1940, Side 42
- 40 - . kvöld eftir kvöld<. . Múhamedstrúarmenn, Hindúar og Zoroistar koma allir á sömu samkomuna.. N-C.Y/ilson, sem er formað.ur deildarinnar, skrifar: "Við erum enganvegin hræddir við óvini Sannleikans, enda þótt þeir séu margir og voldugir, Við 'þekkjum þann Guð, er við 'þjóniim, og hann leiðir þessa hreyfingu fram til sigurs* Hinn sami G-uð, sem leiddi ísrael, er með okkur þann dag í dag»" Mörg góð tækifæri bíða okkar víða um Suður-Asíu, Kristni- boði, sem er fyrir stóru kristniboðsfélagi, hefur nýlega skrifað okkur viðvíkjandi hreyfingu í áttina til kristindóms- ins meðal Hindúa í héraði því, er hann starfar í. Hann seg- ir að félag sitt geti ekki orðið við bænum frá þessu fólki, og hann biður okkur um að hjálpa sér. Það eru mörg þúsund sálir, sem hér er um að ræða. Við erum nú að rannsaka þetta, og vonum að geta haldið áfram jafn óðum og Guð opnar leiðina. Einn af starfsmönnum okkar í Suður-Indlandi hefur skrifað um starf sitt, sem hann hefur unnið í jborpi, þar sem ein- tómir Hindúar búa. Fyrst var hörð mótstaða og virtist sem skærur mundu hefjast milli hinna ýmsu flokka. En bróðir okkar starfaði áfram af kappi, og nú hefur Guð launað honum ríkulega. 14 karlmenn og þar fyrir utan konur og börn, sem áður voru stránglega trúuð á hindúavísu, hafa nú opinberlega gerst Aðventistar. í hinni stóru borg, Bambay, hefur starfsmaður okkar nú nýlega endað starftímabil sitt. Guð hefur blessað þetta starf og erum við mjög ánægðir með árangurinn, þar sem þó nokkuð margir hafa komið með beint frá hindúisma og ákveðið að halda öll boðorð Guðs-. Slíkt örvar mjög alla.starfsmenn okkar, sem vinna þar^ sem heiðindómurinn hefur sitt sterkasta vígi. Afrika tekur einnig á móti. Frá austri og vestri, norðri og suðri koma fregnir um að starfið haldi áfram á þessu myrka meginlandi. Hvergi hafa verið gefnar eins framúrskarandi fallegar skýrslur eins og einmitt í Mið-Afriku. Og annarsstaðar frá í sömu álfu koma fregnir um, að þjóðflokkar, sem rómaðir hafa verið fyrir grimmd og vonsku, séu nú að biðja um kristniboða. Herbert Hanson, sem hefur verið í Etíópíu, þar sem starfið hefur. farið illa, skrifar frá Addis Abeba: "Við höldum vikulega samkomur, og komum um ý0 saman.

x

Bænavikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.