Bænavikan - 07.12.1940, Side 59

Bænavikan - 07.12.1940, Side 59
- 57 - kalli Guðs þá og tók til starfa með honum fylltur Heilögum anda, eins vill Guð láta okkur starfa með sér til að ljúka við hið mikla verk„ Til þess að geta þetta, verðum við að fara að eins og hinn postullegi söfnuður, Aðeins' með því að verða skírð Heilögum anda, getum við unnið að þvx starfi, sem Guð einn er megnugur að veita framgang. "Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu* .Farið því og kristnið allar þjóðir, skírið þá til nafns Föðurins og Sonarins og hins Heilaga anda, og kennið þeim að halda allt það, sem eg hefi boðið.yður, og sjá eg er með yður alla daga, allt til enda veraldarinnar," Þar sem söfutiurinn er alveg að verða kominn að endi veraldarinnar, þá vill Drottinn nota vald sitt. Það, að Kristur ætlast til, að kraftur Heilags anda hjálpi okkur við starfið, sést á eftirfarandi orðum: "Kristur hefur íofað, að gefa söfnuði sínum Heilagan anda og loforðið nær engu síður til okkar, heldur eþ til hinna fyrstu lærisveina. En eins og öll önnur Toforð, er þetta loforð gefið með skilyrðum. Það eru margir, sem trúa, en krefjast þess, að Kristur efni loforð sín. Þeir tala um Krist og Heilagan anda, en hafa samt engan hag af því. Þeir gefa ekki Guði hjarta sitt, og hin guðdómlega ixmbreyt- ing á sér aldrei stað í þeim. Við getum ekki notað Heil- agan anda. Það er Heilagur andi, sem á að nota okkur. Gegn um Andann starfar Guð í manninum og fær hann til að gera það, sem Guði er þóknanlegt. En margir vilja ekki sætta sig við þetta. Þeir vilja fá að stjórna sér sjálfir. Það er vegna þess, að þeir geta ekki tekið á móti hinni himnesku gjöf„ Aðeins þeir, sem hjóna Guði auðmjúklega, og sem þiggja leiðsögn Guðs og miskunn, fá Heilagan anda. Þessi blessun, sem Kristur hefur lofað, hefur allar aðrar bless- anir í för með sér," ECT "Hinn langi timi, síðan Jesús gaf fyrirheitið, hefur engu breytt um þá ákvörðun Krists, að gefa sínum trúu þjónum sinn Heilaga anda." EGW Jesús viðheldur styrk fagnaðarerindisins alveg fram á síðustu tíma. Jesús vill flýta fyrir því, að staríniu verði lokið. Söfnuðurinn er ekki öflugri til aó Ijúka verk inu núna í eigin krafti, heldur en hann var á tíma postul- anna. Við getum aldrei lokið starfinu, nema með hjálp

x

Bænavikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.