Úrval - 01.01.1971, Síða 3
óSö
/
Uru/
FLESTIR KANNAST viS skáldsög-
una „1984“ eftir George Orwell. Hún
kom út í íslenzkri þýSingu hjá Al-
menna bókafélaginu fyrir nokkrum
árum. Kvikmynd ger'ö eftir sógunni
var ennfremur sýnd í sjónvarpinu
ekki alls fyrir löngu og vakti at-
hygli. Hins vegar hefur líklega fáa
grunað, að sumt af því, sem lýst er
í þessari framtíöarskáldsögu, sé orð-
inn blákaldur veruleiki nú þegar.
Fullyrt er, að mjög bráðlega verði
hægt að hafa aðgang að æviferli
hvers einasta borgara i Bandarikj-
unum með þvi einu að ýta á tölvu-
hnapp, en þessu er einmitt lýst í
sögunni.
A SÍÐUSTU TVEIMUR ÁRATUG-
UM hafa Bandarikin orðið hnýsn-
asta þjóðfélag allra tíma. Þjóðin
dýrkar nú orðið staðreyndir og upp-
lýsingar meira en nokkur önnur
þjóð hefur gert. Kaupmenn, skatt-
stofur, lögregla, manntalssta.rfsfólk,
þjóðfélagsfrœðingar, bankar, skólar,
lœknahópar og lœkningamiðstöðvar,
atvinnuveitendur, stjórnarskrifstof-
ur og nefndir, vátryggingafélög,
upplýsingaskrifstofur um lánstraust
og fjölmargar aðrar stofnanir og
fyrirtœki keppast við að tína saman,
geyma og nota upplýsingaatriði um
íbiiana. Þjóðfélagið yrði ekki starf-
hœft í núverandi formi, án þessa
mikla forða af persónulegum upp-
lýsingum um borgarana. En á ein-
hverju stigi þessarar hraðfara þró-
unar hafa Bandarikjamenn byrjað
að afsala sér rétti sinum til raun-
verulegrar friðhelgi einkalífs, sem
sé vernduð gegn utanaðkomandi
snuðri. Og þrátt fyrir stöðugt vax-
andi fullkomnun tölvutækninnar
sem tekur í œ rikara mæli við þess-
um þœtti þjóðlífsins, eru vélar al-
drei óskeikular. Margir borgarar
verða fyrir barðinu á mistökum vél-
tækninnar hvað upplýsingar varðar
og trú manna á tæknina gerir það
að verkum, að erfitt getur reynzt að
leiðrétta slík mistök, þegar þau eru
einu sinni komin inn í kerfið.
BANDARÍKIN eru fremst í þessari
þróun, en önnur lönd fylgja fast á
600,00. I lausasölu krónur
Myndamót: Rafgraf hf.
Kemur út mánaðarlega. Utgefandi: Hilmir hf.,
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, sími 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónur
60,00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir hf.
LANDSÐOKASAFN
^ * o x o o ‘s$y>
m
ISLANPS