Úrval - 01.01.1971, Síða 4
2
ÚRVAL
/----------------------------------
MÓTLÆTI
Gæfunnar er hverfult hjól,
heimur það mér sýnir;
fokið er í flestöll skjól,
fækka vinir mínir.
En lítt mun ráð að lækka sig
né láta undan síga;
heimurinn mun þá hrækja á mig,
á hálsinn á mér stíga.
Enginn sér það ögn á mér,
á mér láti ég festa;
bezt mun vera að bárma ei sér,
en búast við því versta.
Einn þú sér hvað eg nú ber
allra stýrir láða;
en hvað ég geri og hvernig fer
hamingjan má ráða.
Jón Ólafsson.
v_________________________y
eftir og taka þau sér til fyrirmynd-
ar í þessum efnum. Hér er um að
ræða athyglisvert umhugsunarefni
og greinin „Er verið að svipta nú-
tímamenn öllu einkalífi?“ lýsir vel
hœttum þessa volduga upplýsinga-
kerfis nútímans.
MARGAR FLEIRI ATHYGLIS-
VERÐAR greinar er að finna í
þessu hefti. Við vildum til að mynda
benda á greinina „Níu ráð til að
lifa lengur“, en þau eru byggð á
skoðun fremstu lœkna heims við hið
frœga Mayo-sjúkrahús í Banda-
ríkjunum. Tvær greinar eru um
slysfarir, en þær voru meiri í heim-
inum á síðasta ári en oftast áður,
og völvur spá, að á nýbyrjuðu ári
verði ekki síður mikið um óhöpp og
náttúruhamfarir. Önnur greinin seg-
ir frá jarðskjálftunum i Perú. Frá
þeim var sagt á sínum tima í frétt-
um, en lýsingarnar í þessari grein
gefa betur til kynna hversu ægileg-
ir atburðir gerðust þarna.
BÓKIN FJALLAR AÐ þessu sinni
um leynifélagsskapinn Ku Klux
Klan. Þrír ungr menn hurfu í
Mississippi í júnímánuði árið 1964.
Brátt varð Ijóst, að þeir höfðu ver-
ið myrtir. Bráðdbirgðarannsókn
styrkti þann grun margra, að hreyf-
ingin Ku Klux Klan er óhugnan-
lega sterk í Bandaríkjunum og rœð-
vr þar lögum og lofum, ef henni
býður svo við að horfa. Forsetinn
gaf FBI ströng fyrirmœli: Finnið
líkin og hina seku og brjótið á bak
aftur veldi Ku Klux Klan! Sagan
af þessum atburðum hefur ekld fyrr
verið sögð í smáatriðum.