Úrval - 01.01.1971, Blaðsíða 11
1. HEFTI
30. ÁR
JANÚAR
1971
Hvernig get ég aukið vellíðan mína og lifað lengur?
Hér eru níu ráð til þess, gefin
af lœlcnum við hið fræga
Mayo-sjúkrahús. eftir blake clark
Níu ráð til að lifa lengur
„Hvernig get ég aukið vellíðan
mína og lifað lengur?“
Um 200.000 manns koma ár hvert
til hinnar frægu Mayo-lækninga-
miðstöðvar til þess að reyna að fá
svör við þessum spurningum. Allt
frá aldamótunum, þegar bræðurnir
William og Char-
les Mayo stofn-
settu þessa lækn-
ingamiðstöð í smá-
bænum Rochester
í Minnesotafylki,
hafa yfir tvær
milljónir manna
heimsótt þetta
„Mekka“ lækna-
vísiindanna, kon-
ungar og pípu-
lagningamenn,
forsetar og frægir listamenn, bænd-
ur og framkvæmdastjórar.
Þetta fólk er haldið öllum þeim
kvillum, sem læknavísindunum eru
kunn. En þessu fólki leikur samt
fyrst og fremst hugur á að fá svar
við þessum spurningum: „Hvernig
get ég aukið vellíðan mína og lifað
lengur?"
„Og hverju svarið þið þessu fólki
svo?“ spurði ég tíu af helztu lækn-
um Mayolækningamiðstöðvarinnar
(en meðalstarfsreynsla þeirra við
stofnunina er 20 ár). Svör þeirra
grundvallast á ýt-
arlegum skoðun-
um þeirra á þús-
undum sjúklinga
og prófunum og
athugunum, sem
gerðar hafa verið
á þeim, en sumir
þeirra koma þang-
að árlega. Ein-
kennandi þáttur í
svörum þeirra
allra er hryggð
þeirra vegna þeirrar staðreyndar, að
svo margir þessara sjúklinga hefðu
getað fyrirbyggt eigin sjúkleika eða
ótímabæran dauða. Margir þeirra
hefðu alls ekki þurft að leita til
lækningamiðstöðvarinnar, hefðu
þeir hagað lífi sínu á réttan hátt.
r
Þetssi ráð eru gefin af
nokkrum virtustu lœkn-
um heims. Ef þú fylgir
þeim, gætirðu kamiski
lengt líf þitt um 10—30
ár.
V___________________________7
— Readers Digest —
9