Úrval - 01.01.1971, Page 14
12
ÚRVAL
en það voru stórar fituíellingar
framan á maga hans,“ sagði dr.
Clifford F. Gastineau, forstöðu-
maður innkirtlasjúkdómadeildar.
„Ég sagði honum, að fyrir honum
lægi að leysa tvö verkefni, í fyrsta
lagi yrði hann að minnka líkams-
þyngd sína, þangað til hún væri
orðin eðlileg, og svo yrði hann þar
að auki að létta sig Um hálft pund
frá hinni eðlilegu líkamsþyngd
sinni á ári hverju upp frá því.“
Þegar hann verður orðin 60 ára,
verður hann þannig 15 pundum
léttari og hefur þannig sama hlut-
fall milli vöðva og fitu og ungur
maður. Minnizt þess, að feitt fólk
verður venjulega ekki gamalt.
5. Hættu að reykja.
Þeir læknar, sem þekkja tóbak-
ið bezt af eigin reynslu, hata það
mest. Dr. Daniel C. Connolly
hjartasérfræðingur reykti áður 40
vindlinga á dag. En þegar hann sá
hinar hörmulegu afleiðingar reyk-
inga meðal sjúklinga sinna, hætti
hann alveg reykingum, og hið sama
gerðu fléstir samstarfsmenn hans á
sviði hjartasjúkdóma. „Sjúklingar
finna hjá sér mikla hvöt til þess
að hætta að reykja, eftir að þeir
hafa fengið hjartaáfall,“ sagði
hann. „Við viljum, að þeir finni
þessa hvöt hjá sér, áður en til slíks
kemur.“
„Sérgrein mín er æðakölkun,"
sagði dr. John L. Juergens. „Eg
segi þeim vinum mínum, sem eru
æðaskurðlæknar, að ég geti gert
eins mikið fyrir sjúka fætur sjúkl-
ings með því að fá hann til þess að
hætta að reykja eins og þeir geta
gert fyrir hann með því að skera
hann upp.“ Dr. Juergens hefur
fylgzt mjög ýtarlega með líðan 159
vindlingareykingamanna, sem þjáð-
ust af æðakölkun á háu stigi í út-
limum. Enginn af þeim 71, sem
hætti að reykja, þurfti að láta taka
af sér útlim. En 10 af þeim 88, sem
héldu áfram að reykja, þurftu að
láta taka af sér útlim. „Nikótínið
þrengir mjög æðar manna,“ segir
dr. Juergens. „Ég segi við sjúkl-
ingana: „Þér verðið að velja á
milli vindlinganna yðar eða fót-
leggsins.”
Dr. David T. Carr, sem hefur
meðhöndlað mörg hundruð sjúkl-
inga, sem þjáðst hafa af. lungna-
krabbameini, hatar vindlinga af
heilum huga. Hann álítur þá vera
versta skaðvaldinn á sviði sjúk-
dóma í brjóstholi. Hann segir, að
með því að hætta reykingum, geti
milljónir manna gert stórt átak í
því að vernda heilsu sína og lengja
líf sitt. Hann segir sjúklingum sín-
um, að tóbak muni ekki verða gert
útlægt úr þjóðfélaginu. Svo bætir
hann við: „En þú einn getur bjarg-
að þér undan banvænum áhrifum
þess.“
6.Varaðu þig á áí'enginu.
Dr. Gastineau segir, að fæstir
geri sér grein fyrir því, hversu
fljótt skaðleg áhrif áfengisins fara
að segja til sín. Hann bendir á, að
áfengi sé mjög hitaeiningaauðugt.
„Eitt Martinihanastél fyrir hádeg-
Þannig hv.gsar franskur skopteiknari sér, að tóbaksdjöfullinn líti út.