Úrval - 01.01.1971, Síða 43
NÍTJÁN KEÐJUÁREKSTRAR . ..
41
henni og fann tanngarð sjúklings-
ins síns á gólfinu og stakk honum
varlega í vasann. Umhverfis hann
kváðu við neyðaróp, logarnir
snörkuðu og allt var hulið reykjar-
mekki, en samt var það honum
nokkur huggun, þótt einkennilegt
megi virðast, að hann skyldi hafa
fundið tanngarðinn.
f----------------------->
UM SANNLEIKA
• Betri er beizkur sannleiki
en blíðmál lygi.
Skyndilega lauk keðjuárekstrun-
um, en þeir urðu samtals 19 á tæp-
um stundarfjórðungi. Þokunni
létti svolítið á slysstaðnum og í
næsta nágrenni hans vegna hitans
frá brennandi Tempestbifreiðinni
undir húsvagninum og frá eldhaf-
inu í bílhrúgunni þar fyrir fram-
an. Loks hafði vegalögregluþjónum
tekizt að stöðva alla umferð.
Slökkviliðsmenn sprautuðu vatni
og froðu á heitan propanegasgeym-
inn. Hann sprakk ekki.
Winkler vegalögreglumaður var
miður sín, eins og von var. Hann
virti fyrir sér valinn á hraðbraut-
inni, 380 feta svæði algers hryll-
ings. Hann virti fyrir sér þessa
hauga af járnarusii. Sex manneskj-
ur höfðu látizt, rúmlega tuttugu
bifreiðir höfðu eyðilagzt algerlega,
sex vörubifreiðir ýmist skemmzt
eða eyðilagzt. Jafnvel yfirborð ak-
brautanna var svo illa skemmt, að
það varð að leggja nýtt slitlag á
það. Það, sem við augum hans
blasti, var sönnun þess, hvílík fá-
vizka það er að aka eftir hrað-
brautunum í þoku.
• Sannleikur er sagna bezt-
ur.
• Oft er sannleikur seinn úr
munni.
• Oft sezt ryk á sannleik, ef
sópara vantar.
• Sannleikurinn er sagnafár,
en lygin langorð.
• Sannleikanum verður
hver sárreiðastur.
• Sannleikurinn bítur bezt.
V.
• Sér á sannleikur tíma.
Allt íslenzkir málshœttir.