Úrval - 01.01.1971, Page 46
44
45
Er ver/'ð
að svipta
nútímamenn
öllu
raunverulegu
einkalífi?
ÚRDRÁTTUR ÚR
NEWSWEEK
EFTIR RICHARD BOETH
Mjög bráðlega verður liægt
að hafa aðgang að æviferli
hvers einasta borgara með því
að ýta á tölvuhna-pp.
Lýsingar Onvells í skáldsögunm
„198ý“ verða líklega
orðnar að raunveruleika
löngu fyrir það ártal....
igmund Arywitz virtist
eiga mikilli velgengni
að mæta. Hann hafði
30.000 dollara árslaun
sem framkvæmdastjóri
og gjaldkeri fyrir Al-
þýðusamband Los Angeleshrepps.
Hann naut mjög mikils álits í hví-
vetna, og hann hafði starfað sem
verkalýðsmálafulltrúi Kaliforníu-
fylkis í höfuðborginni Sacramento
í átta ár. En svo fór allt í einu að
halla á ógæfuhliðina fyrir honum.
Á einu ári neituðu fimm deildar-
verzlanir í Los Angeles honum um
lánsúttekt og ein af helztu bílaleig-
unum vildi ekki lána honum, þótt
hann væri með úttroðið veski af
viðurkenndum lánstraustskortum
og hefði alltaf greitt reikninga sína
nógu snemma.
Hann botnaði ekkert í þessu. En
það varð ekkert lát á þessu. Full-
trúi í annarri bílaleigu sagði við
hann: „Jæja, vegna starfs yðar og
góðra launa ætlum við að hætta á
að lána yður þrátt fyrir slæmt láns-
traustsmat yðar.“ Um livaða slæmt
lánstraustsmat var að ræða? Ary-
witz vildi fá skýringu á því. ,,Ja,
það hafa verið höfðuð skrambi
mörg mál gegn yður,“ svaraði full-
trúinn. Arywitz notfærði sér nú
þau áhrif, sem hann hafði á ýmsum
stöðum, og reyndi allt hvað af tók
að komast til botns í þessu og finna
ástæðuna fyrir þessu slæma láns-
traustsmati. Og hann fann hana.
Sem verkalýðsmálafulltrúi fylkis-