Úrval - 01.01.1971, Qupperneq 48
46
ÚRVAL
ins hafði nafn hans verið skráð ým-
ist sem sóknaraðilja eða varnarað-
ilja í hundruðum mála, sem höfð-
uð voru af Verkalýðsmáladeild
Kaliforníufylkis eða gegn henni.
Lánstraustsupplýsingaskrifstofa ein
hafði því hvað eftir annað tekið
eftir því, að grunsamlegur borgari,
Arywitz að nafni, hafði nú rétt
einu sinni lent í meiri háttar mála-
rekstri. Og lánstraustsupplýsinga-
skrifstofan hafði svo selt þessar
„upplýsingar“ sínar öllum þeim
fyrirtækjum og stofnunum, sem
báðu hana um lánstraustsrannsókn
viðvíkjandi Sigmund þessum Ary-
witz.
Það væri hægt að hlæja að þessu
atviki sem fáránlegu óhappi, er sé
bein afleiðing hins flókna kerfis
nútímaþjóðfélags. En í rauninni er
þetta ekki hlægilegt. Slík óhöpp
eru tekin að verða svo tíð í Banda-
ríkjunum, að frumréttindi manna
til raunverulegs einkalífs eru nú
orðin í alvarlegri hættu. Og sumir
eru jafnvel teknir að spyrja, hvort
það sé ekki sem óðast verið að af-
má þau, þannig að það verði bráð-
lega ekki um neina friðhelgi einka-
lífs að ræða, sem borið geti það
nafn með rentu. Á síðustu tveim
áratugum hafa Bandaríkin orðið
(að nokkru leyti af nauðsyn og að
mestu leyti af veigamiklum ástæð-
um) hnýsnasta þjóðfélag allra
tíma, og þjóðin dýrkar nú orðið
staðreyndir og upplýsingar meira
en nokkur önnur þjóð hefur nokkru
sinni gert. Kaupmenn, skattstofur,
lögregla, manntalsstarfsfólk, þjóð-
félagsfræðingar, bankar, skólar,
læknahópai og lækningamiðstöðv-
ar, atvinnuveitendur, stjórnarskrif-
stofur og nefndir, vátryggingarfé-
lög, klúbbar og félög, póstsending-
arvöruhús, lánstraustsupplýsinga-
skrifstofur, skoðanakannarar, aug-
lýsendur, fasteignalánveitendur,
opinber þjónustufyrirtæki, hernað-
aryfirvöld og fjölmörg önnur fyr-
irtæki, stofnanir, nefndir og hópar
hafa hamazt við að tína saman,
geyma og nota hver þau upplýs-
ingaratriði, sem þau hafa getað
grafið upp um allar 205 milljónir
Bandaríkjamanna, bæði upp á eig-
in spýtur og í samvinnu.
NEITUN BYGGÐ Á UPPLÝSING-
UM SPJALDSKRÁR
Þjóðfélagið yrði ekki starfhæft í
núverandi formi án þessa geysi-
lega varaforða af persónulegum
upplýsingum um borgarana. Þær
gera það mögulegt fyrir ríkisstjórn-
ina að innheimta skatta og gjöld og
fyrir banka, skóla og sjúkrahús að
veita milljónum viðskiptavina,
nemenda og sjúklinga þjónustu
sína. Þær gera starfsfólki veitinga-
húsa, flugfélaga og verzlana mögu-
legt að lána fólki, sem það hefur
aldrei augum litið fyrr.
En á einhverju stigi þessarar
hraðfara þróunar hafa Banda-
ríkjamenn byrjað að afsala sér
rétti sínum til raunverulegrar frið-
helgi einkalífs, sem sé vernduð
gegn utanaðkomandi snuðri. Þetta
hefur orðið mögulegt vegna þess,
að þeir hafa hætt að gera sér eins
góða grein fyrir þessum rétti sín-
um sem fyrr. Því hafa þeir látið
það afskiptalaust, að það er smám
saman verið að svipta þá þessum