Úrval - 01.01.1971, Síða 53
ER VERIÐ AÐ SVIPTA NÚTÍMAMENN ...
51
vel eftir að fyrirtækið hafði viður-
kennt, að þessi þriggja ára ofsókn
hefði eingöngu verið þess sök,
hliðraði það sér hjá því (þangað til
blaðamaður hóf rannsókn) að greiða
lögfræðilegan kostnað, sem lækn-
irinn hafði bakað sér, og að senda
skriflega viðurkenningu á mistök-
um sínum.
Það er á allra vitorði, að láns-
traustskortsfyrirtækjum verða á
slík tölvumistök og það ósjaldan.
En samt taka lánstraustsupplýs-
ingaskrifstofur bæjarins eða hér-
aðsins upplýsingum lánstrausts-
kortafyrirtækjanna sem góðri og
gildri vöru, hvérjar svo sem þær
eru. Og lánstraustskortafyrirtækin
virðast aldrei viðurkenna nein mis-
tök. Þegar neikvæðar upplýsingar
hafa verið færðar á nafn einhvers
borgara, þá verða þær kyrrar þar
og elta hann úr einu fylkinu í ann-
að. En skýringin á rangri upplýs-
ingaskráningu fylgir honum ekki
eftir, þ. e. að einhver hafi ruglað
saman tveim nöfnum eða gleymt
að skrá greiðslu eða að tölvurnar
hafi orðið eitthvað „ruglaðar í
kollinum", en það er allt of oft hin
rétta skýring á ástæðu þessarar
neikvæðu upplýsingaskráningar.
ÞÖRF Á REGLUGERÐ
Allir þessir fjallháu haugar opin-
berra aðilja og einkaaðilja af
órannsökuðum, ósönnuðum og að
mestu leyti óskipulegum persónu-
legum upplýsingum hrópa himin-
hátt á haldgóða og trausta reglu-
gerð og leiðbeiningar um slíka upp-
lýsingaöflun. En helztu lánstrausts-
upplýsingaskrifstofurnar hafa bar-
izt gegn slíkri reglugerð, með ör-
fáum undantekningum, og hafa
gert gys að þeirri tillögu, að þær
sendi afrit af gefnum lánstrausts-
upplýsingum til þeirra, sem slíkar
upplýsingar eru veittar um. Þær
hafa barizt gegn öllum þeim til-
lögum um endurbætur, sem gætu
tryggt fórnardýrum það, að þau
gætu heimsótt lánstraustsupplýs-
ingaskrifstofurnar og leiðrétt upp-
•lýsingaskrárnar um sig, sem þar
eru geymdar. Löggjafarþing New
Yorkfylkis og Arizonafylkis hafa
nýlega samþykkt lagafrumvarp um
„réttlátar lánstraustsupplýsingar",
en samkvæmt þeim lögum veitast
fórnardýrum tækifæri til slíkra
leiðréttinga. En í flestum fylkjum
er slíkt ekki hægt, og því skoðast
upplýsingar lánstraustsupplýsing-
arskrifstofa í þeim fylkjum í raun-
inni óvefengjanlegar.
„Við verðum fyrr eða síðar að
koma á laggirnar stofnun, sem hef-
ur eftirlit með tölvunum," segir
þingmaðurinn Sam Ervin frá Norð-
ur-Karólínufylki, „stofnun, sem
getur haft eftirlit-með því, á hverju
tölvurnar eru mataðar og hver hafi
aðgang að slíkum upplýsingum, og
reglum um það, hvernig unnt sé að
þurrka út neikvæðar upplýsingar,
sem hafa ranglega komizt inn í
þær.“
Réttmæti þessa málstaðar er óve-
fengjanlegt, þótt erfiðlega kunni
að ganga að leysa vandamálin, sem
leysa verður, eigi hann að sigra.
Hver og einn hefur þörf fyrir að
vita með vissu, að til sé friðhelgur
staður, þar sem hann er verndaður
gegn viðjum þjóðfélagsins.