Úrval - 01.01.1971, Síða 96
94
ÚRVAL
herferðar þeirrar, sem beinast
Skyldi að því að fá negrana til þess
að láta skrá sig á kjörskrá. Einn
helzti samstarfsmaður hans var
tvítugur, grannvaxinn negri í Meri-
dian, James Chaney að nafni. Hann
kynnti Schwerner fyrir ýmsum
negrum þar í bæ og ók fyrir Sch-
werner bláa Ford-stationbílnum,
sem var í eigu Ráðs hinna samein-
uðu félagasamtaka negranna. Hann
var þaulkunnugur öllum malarveg-
unum, sem hrísluðust um skógana
og strjálbýlar sveitirnar umhverfis
bæinn. Þetta vor hélt hann oft inn
í afskekkta hliðarvegi, þegar hann
hélt, að einhver væri að veita þeim
Schwerner eftirför.
I augum flestra hvítra bæjarbúa
var Schwerner aðskotadýr, sem var
komið þangað af ráðnum huga til
þess að stofna til óeirða. Klanfé-
lagar kölluðu hann brátt „Geithaf-
urinn“ sín á milli í fyrirlitningar-
tón (því að hann var með vanga-
skegg). Þeir kölluðu hann líka
„trúlausa Gyðinginn". Hann fór að
fá upphringingar ýmissa, sem létu
ekki nafn síns getið, en jusu yfir
hann svívirðingum og hótunum í
þessum dúr: „Helvítis kommúnist-
inn þinn.... „Við viljum ekki
neina trúleysingja hérna.“. .
„Snautaðu úr bænum, eða þér
verður annars kálað.“
Þeir létu sér ekki nægja svívirð-
ingar og formælingar, ónæði og
ógnanir. Nokkrum vikum á undan
,,herkvaðningarfundi“ Bowers í af-
skekktu kirkjunni í skógarrjóðrinu
höfðu Hvítu riddararnir komið
saman með leynd í Meridian til
þess að ræða, hvað gera skyldi við
Schwerner. „Hann er leiðtogi Ráðs
hinna sameinuðu félagasamtaka
negranna,“ sagði einn þeirra. „Við
ættum að kála honum.“
En Klanfélagi einn úr næsta
hreppi, sem staddur var á fundi
þessum, greip þá fram í. „Látið þið
Geithafur eiga sig,“ sagði hann í
varnaðarskyni. „Þið komið okkur
bara í klandur, ef þið gerið það
ekki. Fylkisstjórn Ku Klux Klan-
samtakanna hefur þegar samþykkt
útrýmingu hans . . . en það er bara
önnur félagsdeild, sem á að sjá um
hana.“
Og þannig hafði félagsmönnum
verið tilkynnt, að Schwerner ætti
ekki langt eftir ólifað.
BLÓÐ OG ELDUR
Um miðjan júnímánuð kom fram-
varðarliðssveit innan Ráðs hinna
sameinuðu félagssamtaka negranna
saman í Vestræna kvennaskólanum
í bænum Oxford í Ohiofylki. Þar
var um 200 manna sveit að ræða,
sem komin var þar saman til þjálf-
unar. Þau Rita og Mickey Schwer-
ner og James Chaney óku þangað
norður eftir, þegar þrír dagar voru
eftir af fyrsta námskeiðinu.
Flestir sjálfboðaliðarnir, sem þar
voru saman komnir, voru háskóla-
stúdentar, frá 18 til 25 ára að aldri.
Fjórir af hverjum tíu þeirra voru
konur. Þeir voru alls ekki komm-
únistar, heldur voru flestir þeirra
hugsjónamenn og konur, sem áttu
það eina markmið að hjálpa negr-
unum í Suðurríkjunum að bæta
kjör sín.
Námskeiðið stóð í eina viku, og
á því fluttu 80 þauvanir starfs-