Úrval - 01.01.1971, Page 98
96
TJRVAL
tekið neina ákvörðun í málinu.
Skömmu eftir að Klanfélags-
menn höfðu safnazt saman í fim-
leikahúsinu, tilkynnti einn þeirra:
„Niggararnir eru á fundi í kirkj-
unni.“ Hvítu riddararnir hófust
strax handa. „Ef Geithafur er
staddur þar,“ sagði einn þeirra,
sem hafði ekki hugmynd um, að
Schwerner var þá kominn norður
til Ohiofylkis, ,,þá er þetta ágætt
tækifæri til þess að góma hann.“
„Nú, eftir hverju erum við þá að
bíða?“ hrópaði annar. Og 15 fé-
lagsmenn eða enn fleiri héldu strax
burt úr fimleikahúsinu. Þeir tróð-
ust inn í þrjá fólksbíla og einn
sendiferðabíl og lögðu af stað í
áttina til kirkjunnar.
í Zionsfiallskirkjunni voru tíu
safnaðarmeðlimir saman komnir á
sínum vikulega fundi til þess að
ræða fjármál kirkjunnar. Fundin-
um lauk um klukkan níu. Corne-
lius Steele, eiginkona hans og tvö
börn tróðu sér upp í stýrishúsið á
vörubílnum hans. Og James Colð
fékk líka far heim til sín. Hann
varð að vera aftan á pallinum. Steel
kveikti á framljósunum og ók ai
stað frá kirkjunni. Á eftir honuni
-om T. J. Miller í sínum bíl. Þeii
voru aðeins búnir að aka nokkra
metra, þegar vörubíll og fólksbíll
komu æðandi niður eftir malar-
veginum og snarstönzuðu síðan
íyrir framan þa. Fimm menn stigu
út úr bílnum. Þeir voru mef
skammbyssur og riffla.
„Hvar eru hvítu mennirnir?‘'
spurði einn þeirra.
Steele neitaði því, að það hefðu
verið nokkrir hvítir menn á safn*
aðarfundinum í kirkjunni. Klanfé-
lagarnir virtust láta sér svar þetta
nægja og leyfðu Steelefjölskyld-