Úrval - 01.01.1971, Side 113
MORÐ í MISSISSIPPI
111
um á bifreið Price, sem ekið var á
oísaferð á eftir stationbifreið ungu
mannanna. Price var kominn ná-
lægt henni, þegar Chaney beygði
af aðalveginum inn á mjóan hlið-
arveg. Varalögreglustjórinn elti
hann á fullri ferð inn á hliðarveg-
inn. Svo sá Chaney rauðu aðvör-
unarljósin á lögreglubifreiðinni og
stanzaði.
Prica gekk að bifreið ungu
mannanna og sagði: „Eg hélt, að
þið ætluðuð tilbaka til Meridian.“
„Við vorum á þeirri leið,“ svar-
aði Chaney.
„Þið hafið þá sannarlega tekið á
ykkur krók,“ sagði Price. ,,Út úr
bílnum með ykkur!“
Hann opnaði hurðina og kippti
Chaney út úr bílnum. Þeir Sch-
werner og Goodman stigu út og
settust í aftursæti lögreglubifreið-
arinnar. Þegar Chaney hélt á eftir
þeim, lamdi Price hann í höfuðið
með barefli og ýtti honum svo inn
í lögreglubifreiðina. Einn af Klan-
félögunum settist svo við stýrið í
bifreið ungu mannanna.
Svo sneri bílalestin við og lagði
af stað til Philadelphia. Kannske
hafa ungu mennirnir álitið sem
snöggvast, að það væri verið að
fara með þá í fangelsið að nýju.
Á leiðinni stönzuðu þeir við
Chevroletbifreið, sem beið við veg-
arbrúnina, og tóku upp þrjá Klan-
félaga. Einn þeirra var sölumaður,
Wayne Roberts að nafni. Skömmu
síðar beygði Price inn á malarveg,
ók eftir honum stuttan spöl og
stanzaði svo.
Frásagnir þeirra Jordans og Bar-
nette um það, sem á eftir fór, voru
ekki samhljóða. Jordan hélt því
fram, að hann hafi farið úr bif-
reiðinni, þegar beygt var inn á
malarveginn, og hafi hann átt að
bíða þar eftir Chevroletbifreiðinni.
Hann sagðist hafa beðið þarna við
vegamótin og hafi skömmu síðar
heyrt ,að hinar bifreiðarnar stönz-
uðu, og síðan hafi svo kveðið við
skot. Hann sagði, að hann hefði
lagt af stað þangað og þegar hann
hefði komið á staðinn, hefðu ungu
mennirnir þrír þegar verið látnir.
Barnette hafði aðra sögu að
segja. Hann sagði, að Jordan hefði
verði viðstaddur á morðstaðnum,
þegar morðin voru framin. Frásögn
hans var á þessa leið: „Wayne (Ro-
berts) hljóp fram hjá bílnum mín-
um í áttina að bíl Price, áður en ég
komst út úr bílnum, opnaði vinstri
afturhurðina, dró Schwerner út úr
bílnum og sagði: „Ert þú þessi
niggarasleikja?“ Schwernersvaraði:
„Herra minn, ég veit, hvernig yð-
ur er innanbrjósts." Wayne var
með skammbyssu í hægri hendinni.
Svo skaut hann Schwerner.
Wayne fór svo aftur að bíl Priee
og dró Goodman út úr bílnum. Svo
fór hann með hann út á vinstri
vegarbrún og skaut hann.
Þá sagði Jim Jordan: „Geymið
einn handa mér!“ Svo fór hann út
úr bíl Price og dró Chaney út. Eg
man, að Chaney hörfaði aftur á
bak. Hann sneri að veginum. Jor-
dan stóð á miðjum veginum og
skaut hann. Svo sagði Jordan:
„Þið skilduð bara eftir niggara
handa mér, en ég drap þó að
minnsta kosti niggara."
Billi Wayne Posey sagði svo að