Úrval - 01.01.1971, Side 116
114
ÚRVAL
ið meiri en 1000 dollara sekt og
eins árs fangelsi.
Dómsmálaráðuneytið áfrýjaði úr-
skurði þessum strax til Hæstarétt-
ar og fór fram á það, að öll ákæru-
atriðin skyldu tekin fyrir í rétti að
nýju hið allra fyrsta. Verjendur
mótmæltu því, að málinu yrði
hraðað, og þeir báru sigur af hólmi.
Málið skyldi sett á málaskrá Hæsta-
réttar og bíða þess, að röðin kæmi
að því.
MIKILL ÁVINNINGUR
Meðan á þessu málavafstri stóð,
vofði ógn skyndilegra, miskunnar-
lausra ofbeldisverka stöðugt yfir
Mississippifylki. Ofbeldisógnir
Klanfélaganna einkenndust af
hrokafullri fullvissu um, að þeir
þyrftu ekkert að óttast af hálfu
réttvísinnar.
Sam Bowers gaf út tilskipun um,
að þ. 1. desember 1964 skyldi
„þriðju og fjórðu gráðu ofbeldis-
verkum" hætt um sinn, þ. e.
sprengjukasti, íkveikjum og dráp-
um, og skyldi hlé þetta standa yfir
í 90 daga. Hann hafði ekki ákveðið
þetta af mannúðarástæðum. Launa-
greiðslur til lögfræðinga fyrir vörn
Klanfélaga í Mississippifylki voru
óðum að tæma alla sjóði samtak-
anna, og nú þurfti að efla þessa
sjóði að nýju.
En það var ekki hægt að halda
aftur af hinum ofstopafyllstu. Um
hálf tylft Klanfélaga kom saman af
tilviljun í kaffihúsi einu í Vidalia í
Louisianafylki, litlum bæ vestan
Mississippiárinnar, beint á móti
Natchez í Mississippifylki. Meðan
þeir ræddu um tilskipun Bowers
og framtaksleysi það og „heiguls-
hátt“, sem einkenndi nú samtökin,
lék einn þeirra sér að silfurdollar.
Og þannig leit Silfurdollarahópurinn
dagsins Ijós. Þar var um að ræða
leynifélag innan samtakanna, leyni-
félag, sem hafði eingöngu ofbeldis-
verk á stefnuskrá sinni.
Fyrsta ikveikjumorð þeirra var
framið þ. 10. desember, og á næstu
mánuðum frömdu þeir fleiri of-
beldisverk. Til dæmis tegndu þeir
dínamitsprengjur við ræsi- og raf-
kerfi einkabíls og vöruflutningabíls
og ollu þá dauða eins manns og al-
varlegum meiðslum annars. Alrík-
isrannsóknarlögreglan þykist ör-
ugglega vita, hvaða Klanfélagar
frömdu verknaði þessa, en það var
ekki hægt að finna vitni, sem væru
fáanleg til þess að bera vitni.
Flestir hvítra íbúa Mississippi-
fylkis kunna að hafa verið hlynnt-
ir kynþáttaaðskilnaði, en þeir gátu
ekki fyrirgefið slík dráp. Reiði al-
mennings í garð Hvítu riddaranna
og viðbjóðar á þeim fór vaxandi
og náði loks hámarki, þegar Klan-
félagar myrtu Vernon Dahmér, 58
ára gamlan, svartan bónda, sem bjó
nálægt Hattiesburg.
Dahmer var á margan hátt sér-
stæður maður. Hann átti 400 ekru
býli, rak dálitla nýlenduvöruverzl-
un, sem var aðeins nokkra metra
frá snotra bænum hans, og rak þar
að auki sögunarmyllu. Oft fór hann
með baðmullartínsluvél sína eða
heybindingarvél heim á bæi hvítra
nágranna sinna og hjálpaði þeim
við uppskerustörfin, áður en hann
lauk við uppskerustörfin heima á
sínum bæ. Dahmer átti marga vini,