Úrval - 01.01.1971, Page 124
Nokkrir heimskunnvr menn svara þessari miklu ráðgátu liver á
sinn hátt.
Hvað
gerist þegar maður
deyr
George S. Arundale, þriðji al-
þjóðaforseti Guðspekifélagsins:
DauSinn er einfaldlega sú breyt-
ing sem á sér stað þegar einstakl-
ingurinn varpar frá sér jarðneska
starfstækinu og dvelst um tíma í
innra vitundarástandi. Hann er einn
áfanginn á braut endurholdgunar-
innar.
Eg lít á dauðann sem vin, sem
þjón er hjálpar manni að afklæð-
ast jarðnesku yfirhöfninni þegar
hún er orðin slitin eða á annan hátt
ónothæf. Eftir þá breytingu sem
við köllum dauða, lifum við í öðr-
um fötum unz að því kemur, að
við snúum aftur til ytri skilyrða
sem útheimta enn á ný yfirhöfn.
David Ben-Gurion,
st jórnmálaleiðtogi:
Það er varla hægt að ætlast til,
að ég svari spurningu sem aldrei
hefur verið gefið fullnægjandi svar
við.
Eina gagnlega spurningin sem
unnt er að svara í þessu sambandi,
er: „Hvernig eigum við að verja
lífi okkar — okkur sjálfum og
mannkyninu til heilla?“
Dauðinn er endir lífsins, og þess
vegna er það aðeins lífið sem hef-
ur einhverja þýðingu fyrir okkur,
og spurningin er: „Hvernig eigum
við að gera lífið fegurra og gagn-
legra, bæði fyrir okkur sjálfa og
aðra?“
Paul Brunton, höfundur bóka um
heimspekileg og dulspekileg efni:
Ég lít á dauðann frá sama sjón-
arhóli og ég lít á fæðinguna —
þetta eru tvö fullkomleg, eðlileg og
óhjákvæmileg fyrirbrigði, tengd
122
— Gangleri —