Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 41
Viltu auka ordaforda ? binn ?
Hér á eftir fara 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu.
Prófaðu kunnáttu bína í islenzkri tungu og auk þú við orðaforða þinn með
því að finna rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri
en eina merkingu að ræða.
1. harðangur: auðn, skjóllaust svæði, neyð, grimmd, þrek, staður, þar sem
neyð ríkir, 'hávaði.
2. snerra: rösk kona, vindhviða. rigningarskúr, kvenskass, lasleiki, montrófa,
iharður bardagi.
3. hask: asi, rifrildi, hávaði, átök, fjör, flýtir, peningakastleikur.
4. að lagga: að lagfæra, að dragast aftur úr, að setja botn í, að birta til,
að rugga, að lifna við, að sleppa taki á.
5. að mottast yfir e-u: að stæra sig af e-u, að flýta sér að e-u, að dunda
við e-ð, að svífa yfir e-u, að gína yfir e-u, að hæðast að e-u, að hlakka
yfir e-u.
6. að kuðlast við e-ð: að fikta við e-ð, að þrjózkast við e-ð, að slá slöku
við e-ð, að gera e-ð kiaufalega, að keppast við e-ð, að þrástagast á e-u,
að skipta sér af e-u.
7. snörl: korr, matarsamtiningur. flýtir, betl, eldiviður, ögn, slór.
8. að formæla: að styðja, að skipa fyrir, að taka málstað e-s, að bölva, að
galdra, að ihrósa, að bnnsyng.ja.
9. lurða: leti, bleyða, deyfð, subba, k.iaftakind, lasleiki, arða, ihnökri, ósam-
komulag.
10. hjúfur: gjá. úði, ihúpskorpa, stagl, regnýringur, jag, lélega unnið verk,
klambur, klípa.
11. foræðuskapur: óhemjuskapur, dugnaður, fífldirfska, galdrar til meins,
blót, stuðningur, skörungsskapur, illmennska.
12. eirð: vægð, ró, uppnám, óróleiki, ofsi, vægðarleysi, hlífð, bundin.
13. að klykkja: að hringja. að krækja saman, að lyfta á hest, að teygja, að
ljúka e-u, að taka á sig krók, að lagfæra, að þrástagast á e-u.
14. að snerla: að hrjóta, að tyggja harðan mat, að fá sér smábita, að hrygla,
að flýta sér, að koma við, að loka með handfangi.
15. að heimila: að leyna, að villa, að útskýra, að afla vitneskju, að leyfa, að
geyma vitneskju, að sanna.
16. að hrúðra (hrúðga): að ihyljast húðskorpu. að flækja, að vefja sig að,
að spilla, að safna saman, að græða, að dúða.
17. klungróttur: slóttugur, blettóttur, þrjózkur, vandrataður, grýttur, greið-
fær, duttlungafullur.
18. að lunka e-n: að skamma e-n, að baknaga e-n, að tala e-n til, að blekkja
e-n, að slá e-n, að kjassa e-n. að rugla e-n.
19. varamennska: góðmennska, níðingsháttur, heigulsháttur, fífldirfska, und-
irferli, hreinskilni, illmennska.
20. .móskulegur: góðlegur, slægðarlegur, gráleitur, óhreinn á lit, heiðskír,
raunalegur, þreytulegur. fýldur, mórauður.