Úrval - 01.07.1971, Side 60
58
EFTIR
TREVOR
ARBRISTER
Ilann tók blóðugan vasaklút upp úr
vasa sínum og strengdi þess heit að
standa kgrr á miðjum veginum, þangað til
næsti bíll stanzaði...
r
Eg held, að ég reyni að
ná í Hvíta húsið
að hafði hætt að rigna
*
*
*
*
*
*
*
fyrir miðnætti aðfara-
nótt föstudagsins 5.
júní í fyrra, en bugð-
óttur þjóðvegurinn var
enn blautur, er David
Urey, 34 ára að aldri, ók bílnum
sínum um fjallahéruðin í Vestur-
Virginíu. Þetta var Oldsmobile-
sportbifreið af árgerð 1968. Klukk-
an var nú langt gengin eitt. Hann
sá fáa aðra fólksbíla eða vörubíla
á þessum slóðum, enda var hann að
ferðast um strjálbýlt svæði. Donna,
eiginkona hans, 27 ára að aldri,
blundaði við hlið honum. Hún var
komin næstum fimm mánuði á leið.
Á kodda í aftursætinu svaf Brian,
tveggja ára sonur þeirra. Urey varð
hugsað til þess, hversu heppinn
hann væri, er hann leit snöggt á
þau.
Hann átti heima í McLean í Vir-
giníufylki, skammt frá Washington.
Nokkrum sinnum á ári heimsótti
hann foreldra sína, sem bjuggu í
Elkins í Vestur-Virginíufylki, og
tók ferðin hann 4% tíma. Og nú var
hann einmitt á leið þangað. Venju-
lega lagði hann fyrr af stað en hann
hafði gert í þetta skipti. En hann
hafði verið móttökustjóri í kvöld-