Úrval - 01.07.1971, Page 66
64
Hinn ógleymanlegi
Stanley Stein
*****
c* að var á gamlárskvöld
árið 1963. Það var ný-
búið að draga tjaldið
frá á frumsýningu á
leikriti eftir Tennessee
Williams við sj álf a
Breiðgötu í New York. Stjarnan í
leikritinu var Tallulah Bankhead.
Búningsherbergi leikkonunnar troð-
fylltist að sýningu lokinni. Kampa-
vín og gullhamrar flóðu þar í stríð-
um straumum eins og vatn. En
mesta hlýjan og birtan stafaði samt
frá innilegu brosi snyrtilegs, lítils
manns. Hann var í mjög góðum,
klæðskerasaumuðum fötum og með
dökk sólgleraugu yfir vansköpuðu
nefi. Þetta var Stanley Stein.
„Stanley, elskan,“ sagði Tallulah
með sinni frægu milljóndollara
controlaltrödd. „Mig langar til þess
að kynna þig fyrir höfundinum."
„Ég naut leikritisins yðar mjög
mikið, herra Williams, sagði Stan-
ley Stein. „Ég hef alltaf verið vit-
laus í leiklist. Ég hefði kannski orð-
ið leikari, ef ýmislegt hefði farið
öðru vísi en það fór.“
Stanley var blindur. Sjón hans
hafði eyðilagzt árið 1937 af völdum
Hanusensgerilsins, en gerill sá veld-
ur holdsveiki. í 33 ár samfleytt hafði
hann verið sjúklingur á ríkissjúkra-
húsinu í Carville í Louisianafylki,
einu stofnuninni í Bandaríkjunum
Gæti þessi ókunni maður
skilið þá eldraun, sem hinir
holdsveiku urðu að ganga
í gegnum?
EFTIR
LAWRENCE G. BLOCHMAN