Úrval - 01.07.1971, Side 76
74
sem Gowon hefur gerzt talsmaður
fyrir.
ENGIR SÖKUDÓLAR
Hvernig er unnt að útskýra svo
skjótar sættir? Aðalástæðan virðist
vera sú, að Gowon hefur með góð-
um árangri skírskotað til kynþátt-
arstolts negranna, er hann hvatti
hina ólíku og ósamstæðu ættflokka
landsins til þess að sameinast um
draum hans um að sanna, að svart
fólk hafi þær gáfur, þá skipulagn-
ingarhæfileika, þann siðferðisstyrk
og járnvilja til að bera, sem nægi
til þess að skapa raunverulega
mikla þjóð. Hann segir, að Nigería
verði að halda áfram að vera sam-
einuð og að hún verði að ná settu
marki, vegna þess „að fólk af afr-
ískum kynstofni um víða veröld
álítur Nigeríu vera von hins svarta
manns og tæki hans til þess að öðl-
ast sjálfsvirðingu og lyfta sér hvar-
vetna upp úr niðurlægingu."
Gowon skýrði mér frá því, að það
hefði valdið reiði hans að sjá sann-
anir þess, að tilraunin til aðskilnað-
ar Biafra hafi verið gerð vegna þess
að sumir landar hefðu látið blekkj-
ast af hvítum mönnum, sem vildu
endilega búta Nigeríu niður eftir
„Balkanríkjakerfinu“. Hann áleit
uppreisnina vera enn eina nýlendu-
stefnutilraun til þess að halda svört-
um ríkjum á stigi smáríkja, sem
væru hernaðarlega vanmáttug, efna-
hagslega ósjálfstæð og í rauninni á
valdi hvers þess stórveldis, sem
stæði bezt að vígi til þess að not-
færa sér náttúrugæði þeirra til arð-
ráns.
Gowon er engra þjónn. Og það
ÚRVAL
tekst heldur engum að leika á hann.
Hann gerir sér grein fyrir mögu-
leikum Afríku, sem hefur aðeins
þriðjungi fleiri íbúa en Bandarík-
in þrátt fyrir risastærð sína. Hann
veit einnig, að Afríkumenn eru með-
al fátækasta fólks veraldarinnar,
þótt meginland þeirra eigi næstum
4/5 hluta alls gulls heimsins, 95%
af demöntunum, % hluta af kakó-
og pálmaolíukjarnaframleiðslunni
og einnig mikinn hluta af kopar,
úran og cobaltbirgðum heimsins.
Hann segir, að núverandi ástand sé
aðeins afleiðing yfirráða útlendinga
yfir Afríku kynslóð fram af kyn-
slóð.
Gowon álítur, að önnur bölvun
nýlendustjórnar og nýlendustefnu
sé sú, að Afríka er nú sundursneidd
í yfir 50 lönd og stjórnarsvæði, og
landamæri stíi oft í sundur heilum
ættflokkum og að ekkert tillit hafi
verið tekið til eðlilegra landamæra
við þessa skiptingu, heldur sé þar
aðeins um að ræða afleiðingar af
samkomulagi milli Breta, Frakka,
Belgíumanna og Portúgala, sem þeir
gerðu með sér, meðan samkeppni
þeirra um nýlendur var sem áköf-
ust. Hann segir enn fremur, að hin
upphaflega skipting Nigeríu sjálfr-
ar í þrjú fylki, sem Bretar fram-
kvæmdu, hafi verið óskapleg mis-
tök, sem valdið hafi miklu tjóni.
Sumir af áköfustu aðdáendum
Gowons hafa látið í Ijósi ótta um,
að kynþáttabeiskja sú, sem stríðið
kynnti undir, væri að leiða hann út
í kynþáttastefnu, sem einkenndist
af andúð á hvíta kynstofninum og
mundi því loka Nigeríu fyrir er-
lendu framkvæmdafjármagni og