Úrval - 01.07.1971, Side 79
HIN STÓRKOSTLEGA VIÐREISN NÍGERÍU
77
unum sínum upp á okkur. Við höf-
um bara viðskiptatengsl við þá. Það
er allt og sumt. Og þannig verður
það áfram, vegna þess að við borg-
uðum þeim allt, sem við fengum
hjá þeim.“
Sovétríkin fara þarna vissulega
varlega í sakirnar, vegna þess að
þau vita, að Gowon, hinn trúaði
meþódisti, er ekki einn af þeirra
mönnum. Jafnvel njósnasamtök
Vesturlanda, sem eru venjulega
fyrst til þess að æpa „kommún-
isti“, hafa skýrt ríkisstjórnum sín-
um frá því, að þær skuli ekki hafa
neinar áhyggjur af því, að Niger-
ía kunni að gerast sovézkur fleyg-
ur í holdi hinnar svörtu Afríku.
Þau vita, að Yakubu Gowon á
sér draum. Hann vill gera það fyr-
ir Nigeríu, sem Abe Lincoln entist
ekki aldur til að afreka: Hann vill
gera land sitt að miklu ríki, eftir
að hafa bjargað því frá sundrung
og tryggt einingu þess. Og í þessum
draumi Gowons er ekkert rúm fyr-
ir þjónkun við Kreml . . . né nokk-
urn eða nokkuð annað.
Það virðist alltaf sem bezta aðferðin til þess að leysa vandamál sé
sú að eyða peningum einhvers annars.
Milton Friedman.
Þegar Adam var einmana, skapaði guð ekki tíu vini handa honum
heldur eina eiginkonu.
Chad Varcth.
Styrktarfélag klæðskerameistara hélt fína kvöldverðarveizlu i Lund-
únum, og skyldu menn koma i samkvæmiskiæðnaði, með hvita slaufu
og heiðursmerki og orður. Og í miðjum kliðum kom svo Charles prins
labbandi inn í gömilum sportjakka. Undir honum var hann reyndar
i samkvæmisskyrtu. Svo vörpuðu menn öndinni léttar, þar eð þetta
reyndist bara vera konunglegt grín. í tímaritinu „Tailor and Cutter"
hafði birzt grein, þar sem prinsinn var ásakaður um að leggja sig
fram um að vera „hirðuleysislega" klæddur. Charles hafði því dottið
þessi brella í hug. Svo klæddi hann sig úr sportjakkanum og fór í kjól-
jakka og hélt kurteislega ræðu. I 'henni skýrði hann frá þvi, hvers
vegna hann og faðir hans, hertoginn af Edinborg, gengju svona oft
með hendur fyrir aftan bak. „Þetta er ekki erfðaeiginleiki", sagði
Charles, „heldur er ástæðan sú, að við höfum báðir sama klæðskerann,
(Edward Watson, formann klæðskerafélagsins), og hann gerir erm-
arnar svo þröngar, að við komum handleggjunum ekki fram fyrir
okkur".
TIME