Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 87
84
ÚRVAL
stöðugt á Teppahæð, sem er fyrir
ofan Almenninginn á háskólasvæð-
inu, en svo nefnist fallegur gras-
völlur, átta ekrur að stærð. Þangað
kom nú hvert parið af öðru. Þau
teygðu úr sér á hlýrri jörðinni eða
fóru yfir námsefni til undirbúnings
fyrir næstu kennslustundir. Um
miðmorgunsbil var orðið þarna
krökkt af fólki. Þetta minnti helzt
á risavaxinn námssal „úti undir
beru lofti“.
Margir stúdentarnir tóku eftir því
sér til mikillar ánægju, að svörtu
íkornarnir á háskólasvæðinu voru
nú komnir á kreik. Þessar litlu, ó-
stýrilátu ólátaseggir, svartir og gljá-
andi, voru uppáhald allra við há-
skólann. Háskólinn var víðfrægur
fyrir þessa íkorna sína, því að við-
gangur þeirra á háskólasvæðinu var
algert einsdæmi. Garðyrkjumaður
háskólans hafði veitt eitt par árið
1954 á ferðalagi sínu til skóganna í
norðurhluta Kanada. Hann hafði þá
með sér suður til Kent og sleppti
þeim lausum á háskólasvæðinu. Og
þar döfnuðu þeir mæta vel og marg-
földuðu kyn sitt heldur betur. Þeim
samdi vel við grá íkornana, sem
voru fyrir á þessum slóðum, en þeir
ráku þá rauðu burt. Og þegar kom-
ið var fram á árið 1970, höfðu þeir
breiðzt þaðan út um allan bæinn
og úthverfi hans. Ærsl þeirra og eld-
legt fjör gerðu það að verkum, að
þeir voru í miklu uppáhaldi og
voru orðnir einskonar „heilladýr“
háskólans.
En stúdentarnir, sem sneru aftur
til háskólans þennan mánudags-
morgun, urðu nú einnig varir við
aðra gesti. Robert Samps var að
fara í spænskutíma, sem hefjast
skyldi klukkan 9.55. Þegar hann
gekk eftir göngunum í Satterfield-
byggingunni, heyrði hann, að ein-
hver kallaði í hann. Tveir þjóð-
varðliðar komu hlaupandi til hans
og heilsuðu honum með handabandi.
,,Ég þekkti þá báða,“ segir Stamps.
„Annar var í jarðfræðibekknum
mínum í fyrra.“
Nokkrum stúdínum brá illilega í
brún, þegar þær gengu fyrir hornið
á Bowmanbyggingunni og komu þá
skyndilega auga á eitt af hinum
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
85
risavöxnu herflutningafarartækj um,
sem notuð eru til liðsflutninga.
„Skriðdrekar!" æptu þær. Og stúd-
entarnir urðu varir við þjóðvarð-
liðsmenn víðs vegar á háskólasvæð-
inu, enda voru þeir liðsmennirnir
850 talsins.
„Það hefur verið gerð innrás hjá
okkur!“ hrópaði ein stúlkan upp
>yfir sig með vantrú í röddinni.
„Þjóðvarðliðið hefur tekið öll völd
og alla stjórn í sínar hendur,“ sögðu
aðrir. Og þennan morgun skegg-
ræddu stúdentarnir ýtarlega um
Mary Veccio krýpur yfir líki Jeff
Miller.
það, sem gerzt hafði á háskólasvæð-
inu þá um helgina.
Á föstudaginn hafði verið haldinn
mótmælafundur á háskólasvæðinu
vegna þeirrar ákvörðunar Nixons
að senda hersveitir inn í Kambodíu.
Og næstu nótt höfðu orðið stúdenta-
óeirðir á Nyrðra Vatnsstræti í Kent.
Eldar voru kveiktir þar og 47 rúður
brotnar. Útgöngubann hafði þá ver-
ið sett á, bæði í bænum og á há-