Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 89
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
87
hafnasvið og réttur þjóðvarðliðsins
átti því að ákvarðast í sameiningu
af LeRoy Satrom bæjarstjóra í Kent
og Sylvester T. del Corso herhöfð-
ingja, yfirmanni þjóðvarðliðssveit-
anna.
Þennan sunnudag höfðu forráða-
menn háskólans og ýmsir meðlimir
þjóðvarðlíðssveitanna komið saman
í skrifstofubyggingu háskólans til
þess að reyna að leysa þetta flókna
mál. Umræður urðu mjög ítarlegar
um eitt atriði þess. Það fjallaði um
hvaða takmarkanir mundu gilda um
starfsemi háskólans og háskólastúd-
entana við yfirlýsingu fylkisstjór-
ans. Leyfði yfirlýsing um neyðar-
ástand, að hópar manna kæmu sam-
an á háskólasvæðinu? Forráðamenn
háskólans ræddu þetta um hríð við
meðlimi þjóðvarðliðsins, og loks gaf
Harry D. Jones major, yfirmaður
145. fótgönguliðssveitarinnar, eftir-
farandi yfirlýsingu: Það ætti ekki
að leyfa neina fundi eða samkomur
utandyra.
Þennan dag voru útbúnir 12.000
bæklingar í háskólanum og þeim
dreift á háskólasvæðinu. í þeim
voru birtar fjölmargar fyrirskipan-
ir, þar á meðal sú yfirlýsing, að
allir fundir og mótmælasamkomur
væru bönnuð utandyra samkvæmt
skipunum fylkisstjórans, hvort sem
um friðsamlegar samkomur væri að
ræða eða ekki. Þessari orðsend-
ingu var útvarpað hvað eftir annað
af útvarpsstöð háskólans. Á mót-
mælafundinum á föstudeginum
hafði verið tilkynnt að haldinn yrði
mótmælafundur um hádegi næsta
mánudag til þess að mótmæla íhlut-
un Bandaríkjamanna í málefni
Kambodíu. Þessi mótmælafundur
hafði nú greinilega verið bannaður.
En því miður var þúsundum stúd-
enta og kennara, er sneru aftur til
skóians eftir helgina, ókunnugt um
orðsendingu þessa. Þegar þeir héldu
til kennslustofa sinna, fréttu þeir
um mótmælafund þennan hjá öðrum
stúdentum og sáu tilkynningar um
hann, sem skrifaðar höfðu verið á
skólatöflurnar.
Það var einnig annað, sem olli
ringulreið á háskólasvæðinu, og
virtist þar vera um miklu ógnvæn-
legri þátt að ræða. Þennan morgun
var á nokkurra klukkustunda tíma-
bili skýrt frá samtals 15 fyrirhug-
uðum sprengingum. Hætta varð
kennslu æ ofan í æ, og síðan varð
að rannsaka, hvort þetta hefði við
rök að styðjast eða væri bara blekk-
ing.
Það ríktu því ekki venjulegar að-
stæður á háskólasvæðinu þennan
morgun. Þar var ekki lengur um
að ræða venjulegan stað, þar sem
stúdentar söfnuðust saman til náms
og skemmtana, heldur ríkti þar nú
óvissa, ótti og skipulagt óeirða-
ástand.
KLUKKAN GLYMUR
Robert H. Canterbury hershöfð-
ingi, helzti aðstoðarmaður del Corso
hershöfðingja, yfirmanns þjóðvarð-
liðssveitanna, boðaði til nýs fundar
klukkan 10 fyrir hádegi, meðan
kennsla var í fullum gangi. Átti að
ræða þar framkvæmdaáætlun dags-
ins. Á meðal viðstaddra voru þeir
Satrom bæjarstjóri og Robert L.
White, rektor Kentfylkisháskólans.
Enn á ný var rætt um mótmæla-