Úrval - 01.07.1971, Síða 91
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
89
Þjóövaröliðið sækir fram, en stúdentarnir hörfa.
„Um hvað ertu eiginlega að tala?“
svertingja.“
„Prófessor Crosby, það getur ver-
ið, að þú sért mjög gáfaður maður,“
sagði stúdentinn. „En það er samt
ýmislegt, sem þú veizt ekkert um.
Ég er frá borginni Newark í New
Jerseyfylki. Og ég veit aftur á móti
um þessa hluti. Það væri öruggast
fyrir þig að koma þér strax burt af
háskólasvæðinu." Og Crosby fór að
ráðum hans.
Canterbury hershöfðingi hélt
beint af fundinum, sem hann hafðí
setið ásamt forráðamönnum skólans
og bæjarins, áleiðis til brunarústa
Þjálfunarmiðstöðvar varaliðsins og
kom þangað skömmu fyrir hálf tólf.
Hann virti fyrir sér fólkið, sem var
á Almenningnum og áleit fyrst í
stað, að þar væri ekki um neina al-
varlega ógnun að ræða. En 15 mín-
útum síðar var hann kominn á aðra
skoðun. Hann varð hissa, er hann
komst að því, að stúdentar héldu
áfram að safnast þar saman, þegar
kennslustund lauk klukkan 11.50,
rétt eins og fundurinn væri enn
leyfður. Og mannfjöldinn óx með.
hverju augnablikinu. Og þegar hann
sá, að um 600 stúdentar höfðu hóp-
azt saman ekki alllangt frá liðssveit
hans, varð hann réttilega áhyggju-
fullur. Hann fyrirskipaði nú, að
stúdentahópnum skyldi tvístrað.
Klukkan 11.48 byrjaði einhver að
hringja sigurklukkunni. Klukka