Úrval - 01.07.1971, Page 95
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
93
20 duglegum strákum úr frjáls-
íþróttaflokknum mínum, hefði ég
getað sópað öllum lýðnum burt. Ég
varð svo hneykslaður, að ég sneri
aftur síðar til þess að. safna saman
nokkru af draslinu, sem kastað var.
Og ég hef það enn í fórum mínum,
stór stykki af steinsteypu.“
Þegar þjóðvarðliðsmennirnir
lögðu af stað í áttina til stúdentana,
heyrði einn prófessorinn nokkra
menn hrópa: „Stelpurnar frernst!"
En hróp þetta er orðið frægt ein-
kenni stúdentaóeirða. Þegar þessi
skipun var endurtekin, færðu nokkr-
ar stúlkur sig fram fremst í fylk-
ingarbrjóst hópsins í þeirri trú, að
minni líkur væru á því, að þjóð-
varðliðið mundi skjóta á þær en
karlmennina.
En Vaclav Koutnik, gistiprófessor
frá Tékkóslóvakíu, var hvergi
smeykur. Hann sneri sér að Christ-
ine Wilson stærðfræðikennara og
sagði: „Barnaleikir! Þegar Rússar
hernámu land mitt komu þeir æð-
andi á skriðdrekum. Það verður
ekkert alvarlegt úr þessu.“
M679 sprengjuvarpan, sem hlaðin
var táragassprengjum, er mjög
áhrifamikið tæki til þess að halda
óeirðaseggjum í skefjum. Sé skotið
úr henni í lárétta stefnu, er hraðinn
nægur til þess að drepa mann, sem
er í rúmlega 20 metra fjaarlægð frá
Stúdent þrífur táragassprengju og fleygir henni aftur í Þjóövaröliðið.
Klukkan 12.25 kvaö fyrsta skotið viö.