Úrval - 01.07.1971, Side 101
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
99
liliiltimi
■illlll
iiiliÍSÍiÍI
þá, hvort þeir vildu koma með á
mótmælafundinn. En hvorugur
þeirra kærð sig um það. Annar
svaraði: „Nei, það verða einhver
vandræði þar.“ Jeff lagði því einn
af stað í áttina til Almenningsins.
Jeff hrópaði hvað efir annað
ókvæðisorð að þjóðvarðliðunum,
meðan á átökunum stóð. Hann er
mest áberandi á einni ljósmyndinni,
þar sem hann öskrar að þjóðvarð-
liðunum og sýnir þeim lítilsvirð-
ingarmerki með því að teygja
löngutöng beggja handa langt upp í
loftið. Á annarri mynd sést hann
kasta táragashylki aftur að þjóð-
varðliðunum. Hann hoppaði í loft
upp af kæti, þegar þjóðvarðliðarnir
urðu að yfrgefa stöðu sína við girð-
inguna og tóku að hörfa upp hæð-
ina, að því er virtist.
Vinur hans, Dane Griffin að nafni,
var staddur hjá bonum, þegar skot-
in kváðu við. „Þetta hljóta að vera
tóm skothylki," sagði Dane. Svo
sneri hann sér að Jeff til þess að
segja við hann, að samt væri það
víst vissara fyrir þá að hörfa þaðan.
En þegar hann sagði þetta, var Jeff
þegar hniginn niður og lá þar í
blóðpolli, sem sækkað óðum, því að
kúla hafði hæft hann beint í and-
litið.
Jerry Persky, sem var góður vin-
ur Jeffs, skoðaði líkama hans
augnabliki síðar til þess að fullvissa
sig um, hvort lífsmark leyndist með
honum. Hann sagði síðar: „Ég
vissi jafnvel ekki, að það var Jeff,